Bændablaðið - 26.03.2015, Side 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Uppeldi kvígna
Meðalaldur kvígna við burð var
29 mánaða árið 2014. Rannsóknir
hafa leitt í ljós að hagkvæmast er að
kvígur beri um 24 mánaða gamlar.
Þá er tekið inn í útreikninga
húspláss, fóðrunarkostnaður og
nyt. Einnig verður frjósemin betri
þar sem oft reynist erfiðara að fá
kvígur til að festa fang eftir því sem
þær verða eldri.
Það liggja því mikil sóknarfæri
í að lækka kostnað vegna uppeldis
kvígna í fjósum landsins. Til að svo
geti orðið þarf hver dagur í uppeldi
að nýtast markvisst til vaxtar og
þroska. Kynþroski stjórnast aðallega
af þroska og að litlu leyti af aldri.
Bóndi sem setur á 20 kvígukálfa
á ári er með að jafnaði 40 gripi í
uppeldi ef burðaraldur er 24 mánuðir.
Hins vegar ef burðaraldur er 28
mánuðir þarf fjöldi gripa að vera að
jafnaði 47 eða 7 gripum fleiri. Fóðrun
á kvígunum lengist einnig um 4
mánuði og má áætla að viðhaldsfóður
fyrir 20 kvígur í þann tíma nemi um
10 þús fóðureiningum eða rúmlega
40 rúllum. Miðað við þær forsendur
er kostnaðurinn um 500 þús á ári,
bara vegna viðhaldsfóðrunar á
kvígum.
Nú skulum við skoða hvernig
rannsóknir sýna að best sé að ala
upp kvígur svo þær geti borið við
24 mánaða aldur og skilað topp
afurðum í framhaldinu. Bent er á að
nákvæmari leiðbeiningar um fóðrun
kálfa er hægt að fá hjá ráðunautum
RML.
Það hefur sýnt sig að kvígukálfar
sem vaxa hratt og vel alveg frá
upphafi skila því til baka í meiri
mjólk á fyrsta mjaltaskeiði. Það
er því til mikils að vinna að byrja
vel. Góð broddmjólkurgjöf eins
fljótt og unnt er eftir fæðingu
skiptir miklu máli. Rannsóknir hafa
sýnt fram á að frjáls aðgangur að
kjarnfóðri fyrstu tvo mánuði ævi
þeirra skili þroskameiri gripum, s.s.
á mjólkurskeiði þeirra. Við 9 vikna
aldur má takmarka kjarnfóðurgjöfina
við 1-2 kg á dag hafi fóðrun gengið
vel fyrstu vikurnar. Tímabilið 3-12
mánaða er kallað krítíska tímabilið,
en á því þroskast júgurvefurinn.
Hann er gerður úr tveimur tegundum
vefja, bandvef og kirtilvef. Það er
mikilvægt að vöxturinn sé ekki of
hraður vegna of sterkrar fóðrunar á
þessu tímabili. Ef vöxtur er of hraður
vex bandvefurinn (fituvefurinn) á
kostnað kirtilvefsins. Það er mjög
neikvætt þar sem mjólkurblöðrurnar
eru í kirtilvefnum og getur þetta
valdið því að mjólkurframleiðsla
kvígunnar verður takmörkuð seinna
meir vegna minni kirtilvefs. Á þessu
tímabili er þó ekkert sem segir að ekki
megi fóðra nokkuð vel. Til dæmis
er æskilegt að halda kjarnfóðurgjöf
áfram og hefur það reynst vel á
tilraunabúinu Stóra-Ármóti að gefa
alltaf fast 1 kg af kjarnfóðri á dag.
Ef kvígurnar vaxa of hægt (og eru of
litlar við burð) mjólka þær ekki vel á
fyrsta mjaltaskeiði; vegna lítils forða
(fitu), lítillar átgetu og vegna mikilla
orkuþarfa til eigin vaxtar. Því er best
að þær vaxi miðlungs hratt á krítíska
tímabilinu. Bandarískar rannsóknir
hafa sýnt fram á að yngri kvígur
mjólka meira og endast betur. Slíkt
fæst með því að fullnýta vaxtagetu
þeirra strax frá upphafi og gæta þess
að missa alls ekki niður vöxtinn á
krítíska tímabilinu. Það sem ávinnst
líka með því eru hávaxnari gripir, þar
sem vöxtur fótleggja er hve mestur
fyrstu mánuði ævi þeirra.
Vítamín, stein- og snefilefnaáhrif
á vöxt og þroska
Mikilvægt er að öllum vítamín, stein-
og snefilefnaþörfum sé mætt. Íslensk
hey eru almennt lág í natríumi, joði,
seleni, kopar og zinki. Áhrif skorts
af hverju þessara efna hefur áhrif á
vöxt og frjósemi að einhverju leyti.
Skortur á natríumi (salti) getur
lýst sér sem léleg nýting á orku og
próteini sem veldur hægum vexti.
Selen og E-vítamín skortur veldur
hvítvöðvaveiki eða stíuskjögri sem er
nokkuð algengur í sauðfé en þekkist
einnig í nautgripum. Selenskortur
getur haft áhrif á framleiðslu
vaxtarhormóns og getur því seinnkað
kynþroska gripa. Einnig getur hátt
brennisteinsgildi dregið úr upptöku
selens. Því er mjög mikilvægt að
hafa aðgengi að seleni fyrir kálfa,
eða bera á selenbættan áburð.
Sérstaklega núna á þeim tíma sem
virkt eldgos hefur verið á landinu og
vitneskja er ekki fyrir hendi ennþá
um afleiðingar þess á búfé. Fóðrið
þarf að innihalda 0,1-0,2 mg/kg þe af
seleni heildarfóðri kvígna. Of mikið
járn í fóðri getur skert upptöku gripa
á öðrum steinefnum (sérstaklega
fosfór), dregur úr vexti og veldur
almennu oxunarálagi í frumum gripa.
Koparskortur veldur hægum vexti
og óeðlilegri beinmyndum ásamt
ófrjósemi, líkt og zinkskortur gerir.
Aðgengi að steinefnum og
vítamínum er því jafn nauðsynlegt
fyrir gripi í uppvexti og mjólkandi
kýr.
Kynþroski
Kynþroski stjórnast aðallega af
þroska og að litlu leyti af aldri.
Kvígur verða kynþroska þegar þær
ná 42 % af þyngd fullorðinna kúa
(ÞFK) eða um 210 kg. Eðlilegt er að
kvígur hafi fest fang við 55 % af ÞFK
275 kg. Sýnt hefur verið fram á að
hagkvæmast sé að láta kvígurnar bera
24 mánaða og að þær hafa náð 85%
ÞFK eða 425 kg. Algjör lágmarks
þyngd við fyrstu sæðingu er því 260-
270 kg.
Samkvæmt BS-verkefni
Ragnhildar Önnu Ragnarsdóttur,
„Samhengi milli þunga og
brjóstsummáls íslenskra nautgripa“,
má miða við að kvígur hafi náð 150
cm brjóstummáli eða meira við fyrstu
sæðingu.
Beiðsliseinkenni
Hafi kvígan fengið gott uppeldi sjást
oft fyrstu einkenni beiðslis þegar hún
hefur náð eins árs aldri. Það er þó
ekki sjálfgefið að sjá einkennin og
því nauðsynlegt að þekkja kvígurnar
vel til að sjá beiðslishegðun hjá
þeim. Samkvæmt BS-verkefni
Jónu Þórunnar Ragnardóttur,
„Frjósemiseiginleikar íslenskra kúa -
Þættir til að meta frjósemi„ hefur það
sýnt sig að beiðsliseinkenni og lengd
beiðslis eru alltaf að minnka sem
hvetur okkur til að vera enn betur á
tánum við beiðslisgreiningu. Einnig
hefur hlutfall kúa sem standa undir
öðrum kúm lækkað á síðastliðinni
hálfri öld úr u.þ.b. 80% kúa og niður
í 50% kúa. Samhliða því er tímabil
sýnilegs beiðslis líka að minnka úr
u.þ.b. 15 klst í um 5 klst. Það segir
okkur að ef aðeins er farið í fjósið
á mjaltatíma/gjafatímum þá eru
ansi miklar líkur á að missa af þeim
kvígum sem sýna aðeins beiðsli í
stuttan tíma. Mjalta og gjafatímar
henta heldur ekki nógu vel til að líta
eftir beiðslum því þá eru gripirnir oft
órólegir eða spenntir meðan þeir bíða
eftir mjöltum eða nýju, spennandi
fóðri. Á kvöldin er hins vegar rólegt
yfir hópnum og því heppilegur tími
til að kíkja út í fjós og jafnvel hringja
á frjótækni fyrir morguninn.
Fóðrun við sæðingu
og fram að burði
Mælt er með því að gefa kjarnfóður
að 14 mánaða aldri eða þangað til
kvígurnar eru sæddar. Kostnaður við
það er þónokkur, en líta þarf svo á
að það er líka kostnaður falinn í því
að hafa kýr í fjósinu sem ekki skila
fullum afurðum. Þörf fyrir kjarnfóður
er sérstaklega mikil ef gróffóðrið er
ekki af allra bestu gæðum. Stærri og
þroskaðri gripir við burð þurfa ekki
að eyða eins mikilli orku í vöxt á
fyrsta mjaltaskeiðinu og skila því
meiri mjólk í tankinn í staðinn.
Átgeta kúnna ræðst einnig af stærð
þeirra sem hefur bein áhrif á hve
mikla mjólk þær geta framleitt.
Lykilatriði er að kvígurnar séu
hæfilega feitar við burð, hvorki of
(burðarerfiðleikar) né van (lægri
nyt). Á Stóra-Ármóti hefur gefist vel
að gefa kvígum í uppeldi 1 kg/dag
af hápróteinblöndu (20% prótein).
Þær ná þá yfirleitt markmiði um
ca. 250 kg þunga við 1. sæðingu
um 13-14 mánaða aldur. Offóðrun
fyrir þann tíma getur haft neikvæð
áhrif á fanghlutfall kvígna, þar sem
æskilegra er að þær séu í bata en
ekki aflögn þegar sæðingar fara
fram. Þegar líður að burði, u.þ.b.
tveimur til þremur mánuðum fyrr,
þarf að gæta sérstaklega að því að
offóðra ekki kvígurnar. Því er mælt
með því að gefa þeim trénisríkt
fóður síðustu tvo mánuði fyrir burð.
Óhófleg þungaaukning á því tímabili
getur leitt til þess að kálfarnir verða
allt of stórir í móðurkviði, sem er
eingöngu ávísun á burðarerfiðleika.
Vítamín, stein- og snefilefna áhrif
á kynþroska og frjósemi
Líkt og nefnt er hér áður þarf öllum
vítamín, stein- og snefilefnaþörfum
að vera mætt. Hér nefni ég helstu
áhrif á frjósemi. Joðskortur hefur
áhrif á fósturþroska. Selenskortur
getur valdið fósturdauða og föstum
hildum, sérstaklega ef samfara er
E-vítamín skortur. Nægilegt selen í
fóðri skilar lífseigari kálfum.
Fosfórskortur hefur neikvæð
áhrif á frjósemi að því leytinu að
það dregur úr virkni eggjastokkanna.
Samband magnesíum og kalí skiptir
gífurlegu máli. Ef offramboð
er á kalí í fóðrinu þá minnkar
upptaka á magnesíum samhliða ef
magnesíum er af skornum skammti
í fóðrinu. Magnesíumskortur veldur
graskrampa og lystarleysi.
A-vítamín (beta-karotín) er
mikilvægt vítamín sem hefur áhrif á
frjósemi, þar sem það hefur bein áhrif
á myndun gulbús. Því er mikilvægt
að það skorti ekki þegar kvígurnar
eiga vera orðnar kynþroska eða við
13 mánaða aldur. Eins er mikilvægt
að það skorti ekki fram að burði, þar
sem broddur er mjög ríkur af því.
Kvígur sem skortir A-vítamín hafa
lengra bil á milli 1. og 2. sæðingar.
D-vítamín hefur áhrif á uppsog
kalks (Ca) og fosfórs (P). Því
er jákvætt að veita aðgang að
D-vítamíni skömmu fyrir burð.
Hátt hlutfall niðurbrotins próteins
og því hátt ammóníak (NH3) í
vömb hefur bein áhrif á frjósemi.
Amínósýrusamsetning próteina er
misjöfn og er hagstæðari samsetning
í fiskimjöli og öðru dýrapróteini
heldur en jurtapróteini.
Kvígur á beit skortir verulega
ýmiss nauðsynleg bætilefni t.d.
selen. Góð reynsla er á meðal bænda
á að gefa forðastauta, svokallaða
„Alltrace“. Þeir eiga að tryggja öll
nauðsynleg bætiefni. Þá þarf að gefa
1–2 mánuðum fyrir burð en virkni
þeirra varir í a.m.k. 6–7 mánuði. Í
þessu samhengi verður einnig að
minnast á ormalyfsgjöf sem á að fara
fram a.m.k. einu sinni á ári hjá öllum
uppeldisgripum, oftar ef ormasmit
er mikið. Góð beitarstjórn getur
takmarkað smit.
Almennt er því hægt að mæla
með því að kvígur hafi aðgang að
fjöl-steinefnum hvort sem um er að
ræða innandyra eða á beit.
Við uppeldi á kvígum er því að
mörgu að hyggja og er hér ekki um
tæmandi upptalningu að ræða. Menn
eru hvattir til að kynna sér einnig
viðmið vegna aðbúnaðar, en góður
aðbúnaður hefur einnig gífurlegt
vægi í vexti og þroska gripanna.
Ráðunautar hjá Ráðgjafarmiðstöð
Landbúnaðarins veita meðal annars
ráðgjöf vegna fóðrunar og aðstöðu
ásamt flestum öðrum þáttum sem
viðkoma búrekstrinum.
Guðný Harðardóttir og
Guðfinna Lára Hávarðsdóttir,
ráðunautar.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Innigarðar
Innigarðar ehf. leggur áherslu á að
þjónusta alla sem hafa gaman af ræktun
og á það jafnt við um þá sem rækta inni
á heimilinu, í gróðurhúsi eða úti í garði.
Fyrirtækið rekur verslun með garðyrkju-
vörur jafnt fyrir áhugafólk og atvinnu-
menn.
Fyrirtækið er fjölskyldufyrirtæki rekið af
Maríu Norðdahl og Pétri Þórissyni. Upphaf-
lega var það sérverslun með vatnsræktun-
arkerfi sem hentuðu fyrir heimili og minni
stofnanir en með tímanum hefur vöruúrvalið
aukist, í dag er að finna í versluninni flest
það sem áhugafólk um ræktun þarf. Úrvalið
er það fjölbreytt að fyrir ræktunarfólk er um
sannkallaða dótabúð að ræða.
Ræktum inni allt árið
María segir að hvort sem hugmyndin sé að
rækta í vatni, kókos eða venjulegri mold gildi
alltaf sömu lögmálin. „Til að ná árangri þarf
að tryggja að plönturnar fái lýsingu, hita,
næringu og vatn. Ef rækta á í vatnsræktunar-
kerfi er ræktuninni stjórnað á öllum stigum,
hita, næringu, pH gildi vatnsins og lýsingu.
Þegar rækta á krydd, salat, tómata eða annað
um hávetur og það nýtur ekki sólar þarf góða
gróðurlýsingu. Við bjóðum mjög gott úrval af
gróðurlömpum og perum fyrir hvaða ræktun
sem er. Langbest er fyrir fólk að kíkja í búð-
ina til okkar hafi það áhuga á inniræktun, sjá
hvað er í boði og leita ráða.“
Ræktum utandyra á sumrin
Að sögn Maríu er ótrúlegt hvað sjálfvirk vökv-
un getur auðveldað ræktendum lífið og tryggt
um leið meiri vöxt og betri uppskeru.
„Við gerum mikið af því að
aðstoða viðskiptavini okkar
við að hanna og setja saman
sjálfvirk vökvunarkerfi fyrir
gróðurhús og matjurtagarða.“
Innigarðar bjóða nokkrar
gerðir af vökvunarklukkum
frá Gardena sem tengdar eru
ýmist á vatnskrana eða vatns-
tunnu og þaðan með fittings
í grátslöngu sem temprar
vökvunina. „Enginn þarf
að hafa áhyggjur af þurrki í
beðunum eða að komast ekki
í frí.“
Alsjálfvirk vökvunarkerfi
„Eitt af skemmtilega dótinu sem við bjóðum
er alsjálfvirk vökvunarkerfi sem heita Auto-
pot. Kosturinn við Autopot er að það notar
ekki rafmagn og ekki þarf að leggja vatns-
leiðslur að, nóg er að eiga góða vatnsfötu til
að fylla á. Kerfið er frábært í gróðurhús og
á skjólgóðum stöðum utandyra. Autopot er
ódýrt kerfi sem auðvelt er að stækka eftir
þörfum.“
Allt til ræktunar
Þeir sem eiga sér draum um að forrækta sitt
eigið grænmeti eða sumarblóm fá allt sem
til þarf hjá Innigörðum sem er með yfir 400
tegundir af matjurta- og blómafræjum á
boðstólum auk potta og annars sem þarf til
ræktunarinnar.
Dótabúð ræktandans
Innigarðar ehf.
Hraunbær 117
110 Reykjavík
Sími: 534 9585
Vefsíða:
www.innigardar.is
Jarðaber í vatnsrækt í köldu gróðurhúsi. Fiskabúrahitari
settur í tankinn til að tryggja uþb. 20° hita á vatninu.
Jöfn og góð vökvun tryggir góðan vökst.
Alsjálfvirkt ræktunarkerfi með flotrofa sem tryggir
vökvun í langan tíma.