Bændablaðið - 26.03.2015, Page 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Hlýr strákajakki
PRJÓNAHORNIÐ garn@garn.is
Nú á þessum kalda og vindasama
vetri er gott að eiga hlýja og mjúka
vetrarflík.
Ekki vilja allir krakkar hafa lopa
næst sér og því kemur sér vel að hafa
Gipsy garnið sem er til í mörgum
fallegum litum, sjá útsölustaðina og
litina á www.garn.is.
Stærð:
2-3, 4-5, 6-7 ára.
Efni : Kartopu Gipsy
no 410 Mosagrænn 3-4 dokkur
no 25 Kremhvítt 1 dokka
no 1001 Ljósgrátt 1 dokka.
Nógur afgangur er í húfu ef vill.
Annars ótal litasamsetningar að eigin vali í boði.
Tölur 5–6 stk. sjá www.garn.is Töluland, mikið úrval
af tölum og upplýsingar um sölustaði.
Prjónar:
Hringprjónn og sokkaprjónar nr 7.
Heklunál nr 5.
Prjónafesta 12 l og 17 umferðir slétt prjón gera 10x10
sm.
Aðferð:
Bolurinn er prjónaður í hring á hringprjóninn og
ermarnar á sokkaprjóna upp að handveg, þá er flíkin
sameinuð á einn hringprjón.
Bolur:
Fitjið upp 65-71 -78 lykkjur á hringprjón nr 7
með mosagrænum og prjónið perluprjón 6
umferðir fram og til baka. Tengið nú í hring og
og bætið við 1 lykkju við samskeytin og sú lykkja
er prjónuð brugðin upp alla flíkina en telst ekki
með í lykkjufjölda, er notuð til að sauma í þegar
peysan er klippt í sundur. Prjónið nú 1 umferð
slétt í hring og aukið út um 7-7-6 lykkjur þá eiga
að vera 72-78-84 lykkjur á prjóninum. Prjónið nú
mynstur nr 1. Í fyrstu umferð eftir mynstur þarf
að auka út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir stærð 4-5
og 6-7 til að lykkjufjöldinn passi fyrir mynstrið
í axlarstykkinu. Þannig verða 72-80-86 lykkjur
á prjóninum.
Að því loknu er prjónað slétt upp að höndum
32-35-38 sm eða eins og þið viljið hafa peysuna
síða. Í síðustu umferðinni eru settar 6 lykkjur
í hliðunum á hjálparprjón þannig: Brugðna
miðjulykkjan að framan er ekki talin með. 15-17-
18 lykkjur framstykki 6 lykkjur á band/nælu,
30-34-38 lykkjur bakstykki 6 lykkjur á band/
nælu, og 15-17-18 lykkjur framstykki. Geymið
bolinn og prjónið ermar.
Ermar: Fitjið upp á sokkaprjóna nr 7, 20-24 26
lykkjur með mosagrænu, prjónið perluprjón í hring
6 umferðir. Prjónið nú 1 umferð slétt og aukið út
um 4-6-4 lykkjur þá eiga að vera 24-30-30 lykkjur
á prjónunum. Prjónið nú mynstur 1 og í annarri
umf eftir mynstur er aukið út á miðri undirermi um
2 lykkjur.
Prjónaðar 6-8-10 umferðir slétt og aukið út um 2
lykkjur á undirerminni, endurtekið 1-2-3 sinnum
enn.
Prjónið nú þar til ermin mælist 31-34-37 sm eða eins
langa og þið viljið hafa hana. Í síðustu umferðinni eru
6 lykkjur undir miðri erminni settar á band/nælu.
Geymið og prjónið hina ermina eins.
Axlarstykki: Axlarstykki er prjónað eftir mynstri nr
2 og tekið úr eftir því.
Sameinið nú ermar og bol á hringprjóninn þ.e.
framstykki , ermi, bakstykki, ermi og hitt framstykkið.
Prjónið nú 3-5-7 umferðir slétt með græna litnum.
Prjónið nú mynstur nr 2 og takið úr eftir
skýringarmyndinni.
Prjónið síðan perluprjón fram og til baka sem kraga
7 umferðir og aðrar sléttar 7 umferðir , fellið svo
laust af.
Frágangur:
Lykkið saman undir höndum og gangið frá lausum
endum.
Saumið niður sitt hvoru megin við brugðnu lykkjuna
á saumavél tvisvar með þéttu spori og tvinna í sama
lit og garnið.
Klippið milli saumanna.
Heklið listann með fastahekli fram og til baka og
gerið ráð fyrir 5-5-6 hnappagötum með jöfnu
millibili á vinstra kanti fyrir strák og hægri fyrir
stelpu. Tvær umferðir á tölukantinn en 3 umferðir á
hnappagatakantinn og hnappagötin gerð í annarri
umferð.
Festið tölur á móti. Líka má setja rennilás fyrir þá sem
það vilja frekar. Saumið niður kragann á röngunni
og dragið hann aðeins sama ef ykkur finnst hann
of víður.
Góða skemmtun,
Inga Þyri Kjartansdóttir
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
2 8 7 9 1
6 3
1 7
2
9 6 5
7 1
7 9 6 5 8
6 4 3
2 5
Þyngst
2 8 1 3
6
5 9
1 9
8
6 5 1 7 4
4 2
2 5 1
7 8 6
9 4 7
1 8 4
2 7
9 6 8
7 3
5 4 1
5 1
6 1 3
8 2 4
8 2 9
5 6
7 2 3
1 4
3 8 2
8 1 7
6 3
3 9 5
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ætlar að verða dýralæknir
Svava Margrét er 9 ára gömul og
uppáhaldsmaturinn hennar eru
litlar sænskar kjötbollur. Hún
fór á leikjanámskeið í sumar sem
henni þótti mjög skemmtilegt og
hún ætlar að leggja fyrir sig að
verða dýralæknir.
Nafn: Svava Margrét Sigmarsdóttir.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Skriðuvellir 5.
Skóli: Kirkjubæjarskóli á Síðu.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Tónmennt, sund, íþróttir
og æfingarnar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Jagúar.
Uppáhaldsmatur: Litlar sænskar
kjötbollur.
Uppáhaldshljómsveit: Á enga.
Uppáhaldskvikmynd: Scooby Doo-
bíómyndirnar.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var í
fyrsta skipti ekki með bleiu.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi sund, krakkablak,
frjálsar og fótbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Dýralæknir.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Smakka sviðasultu.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að vera ein heima og
hafa ekkert að gera.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Ég fór á leikjanámskeið og
með systur minni í sund.
16. apríl:
Dagur
raddarinnar
Alþjóðlegur dagur raddarinnar
er haldinn árlega hinn 16. apríl.
Félag íslenskra söngkennara,
FÍS, efnir til viðburðarins í ár og
hvetur félagsmenn sína til að taka
þátt í að vekja athygli á mikilvægi
raddarinnar.
Tónlistarskólar, kórar og fleiri eru
hvattir til að opna sínar dyr þennan
dag og vekja athygli á mikilvægi
raddarinnar. Á Facebook er vakin
athygli á deginum á slóðinni
https://www.facebook.com/groups/
Radddagurinn/?fref=ts þar sem allir
eru hvattir til að efna til einhvers
konar viðburðar, tengdum degi
raddarinnar. Einnig er heimasíða
á netinu helguð Alþjóðlegum degi
raddarinnar, http://world-voice-day.
org/. /MHH
Stormfall á
Vesturlandi
Nokkrar skemmdir urðu á skógum
vestanlands í óveðrinu sem gekk
yfir landið laugardaginn 14. mars.
Nýgrisjaðir skógar eru gjarnan
viðkvæmir fyrir stórviðrum meðan
trén sem eftir standa eru að styrkja
rótarkerfi sitt. Stormfall er því
óhjákvæmilegur fylgifiskur grisjunar
í þroskuðum skógum þótt það sé enn
nokkurt nýnæmi í hugum Íslendinga.
Í stormskýrslu frá Valdimar
Reynissyni, skógarverði á
Vesturlandi, og sagt er frá á
vefnum skogur.is kemur fram að
umrætt óveður hafi valdið ýmsum
skemmdum í sveitum vestanlands,
ekki aðeins á mannvirkjum heldur
einnig á skógum. Engar skemmdir
urðu á húsakosti Vesturlandsdeildar
Skógræktar ríkisins en nokkrar
skemmdir urðu á skógi, aðallega
á tveimur stöðum, Stálpastöðum
í Skorradal og Norðtunguskógi í
Þverárhlíð í Borgarfirði. /MÞÞ