Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Síða 2
Í fókus 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015 Þetta er rangtúlkað í fjölmiðlum og ég er eig- inlega sammála lögreglustjóranum. Þetta er það viðkvæmt mál. Ragnar Steingrímsson Ég veit það ekki. Þau hljóta að hafa mesta reynsluna af þessum málum, þannig að við verðum að treysta því að lögreglan viti betur en almenningur. Guðfinna Björk Sigvaldadóttir Það mega alveg koma fram öll kynferðis- afbrot í fjölmiðlum. Fólk þarf að vita hvað er að gerast og hvað eru mörg mál sem koma upp. Helena Ómarsdóttir Þetta er ofblásið og ég styð hana í því sem hún er að gera. Mér finnst þetta ekki vera þöggun, langt frá því. Jóhannes Egilsson Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. SPURNING DAGSINS HVAÐ FINNST ÞÉR UM BRÉF LÖGREGLUSTJÓRA UM AÐ FARA EKKI MEÐ KYNFERÐISAFBROT Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Í FJÖLMIÐLA? Íshúsið við Strandgötu í Hafnarfirði er orðið ansi skemmtilegt að heimsækja en í fyrra var því breytt í vinnustofur fyrir 30 hönn- uði og listamenn. Mikið líf er í húsinu auk þess sem þar er að finna litla verslun þar sem afraksturinn er seldur. Innlit 24 Í BLAÐINU Morgunblaðið/Styrmir Kári ÁSGEIR GUÐMUNDSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Púkar en ekki púkó Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Þormóði Karlssyni heitnum muna margir eftir, listamaður og lífskúnstner sem varð ungur að aldri fyrir fólskulegri árás á götum New York-borgar. Árásin var hatursglæpur en Þormóður var samkynhneigður. Sýning á mál- verkum hans verður opnuð á föstudaginn kemur. Menning 48 Ein stærsta útihátíð um verslunarmannahelgina frá byrjun er án efa Uxi, en hún var haldin árið 1995 á Kleifum við Kirkjubæjarklaustur. Sunnudagsblaðið rifjar upp hátíðina. Í máli og myndum 46 Sífellt fleiri Íslendingar leggja leið sína til Asíu enda er þar margt fallegt að sjá og afar frábrugðið íslenskri menningu. Taíland er til að mynda stórfenglegur staður sem vert er að ferðast til og skoða nánar. Ferðalög 20 Ásgeir Guðmundsson sér um Innipúkann, tónlistarhátíð sem haldin er á Húrra og Gauknum í Reykjavík um versl- unarmannahelgi. Ásgeir lærði hagfræði og lögfræði en starfar á sviði tónlistar og umboðsmennsku. Hann er fem- ínisti og innipúki og hefur ekki orðið sólbrúnn í tuttugu ár. Hvað er Innipúkinn orðinn gamall og hvernig kom hann til? Við erum að halda Innipúkann í fjórtánda skiptið í ár, er ég nokkuð viss um. Stofnendur hans eru að sjálfsögðu enn við- loðandi hátíðina og skipa öldungaráð sem er vitrast allra og má alltaf leita til um ráðleggingar og blessun. Grímur Atla- son sagði Innipúkann 2002 hafa verið „svar okkar flotta fólksins við plebbisma útihátíðanna“ en það ár mættu um 400 manns á Púkann. Þið eruð með mikið af flottri tónlist í ár – fyrir hverju ert þú spenntastur? Oftast á ég mjög auðvelt með að svara svona spurningum en á í erfiðleikum með það núna. Hvert eitt og einasta slot er svo stútfullt af hæfileikum og kraftmikilli sköpun að ég hafði hugsað mér að bókstaflega hlaupa á milli staðanna og reyna að sjá allt. Jakob Frímann og Amabadama frumflytja nýtt lag á föstudeginum, Sudden Weather Change er með „comeback“ á laugardeginum og svo er Babies-ball á sunnudeginum. Svo allt hitt, ég meina það, þetta er rosalegt. Eiga partíþyrstir Íslendingar að sleppa Eyjum og hópast í staðinn á Húrra og Gaukinn? Já. Ef þeir kunna gott að meta. Við erum líka með tyrft útisvæði fyrir þá sem geta ekki án þess verið. Svo verður veðrið líka best í Reykjavík. Þetta er ekki flókið. Hvernig er Innipúkinn frábrugðinn öðrum tónlistarhátíðum? Fyrir utan að vera hátíð sem var beinlínis stofnuð til höfuðs útihátíð- um þá er það helst þessi mikla áhersla á íslenska tónlist af ýmsum teg- undum þar sem grasrótin fær að njóta sín í bland við lengra komna og allir fá jafnan hlut af hagnaði hátíðarinnar. Innipúkinn er ein- hvers konar árshátíð reykvísku senunnar og bíður alltaf upp á óvænt atriði þar sem goðsagnir mæta til leiks og kenna þeim yngri nokkur trikk úr bókinni. Síðast var það Megas og nú er Jak- ob Frímann að skóla til þessa reggíhippa í Amabadama. Er mikið um púka inni á hátíðinni hjá ykkur? Gestir, aðstandendur og listamenn Innipúkans eiga það sameig- inlegt að vera púkar inn við beinið. Við neitum að drekka volgan bjór í dós, syngja hópsöngva og þykjast sannfærð um ágæti kringumstæðna sem augljóslega eru hræðilegar. Þetta eru ekki fordómar heldur þvert á móti upplýst vanþóknun. Við erum púk- ar, ekki púkó.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.