Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 11
2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11
nokkra kílómetra sunnan við
Hveravelli og nærri þeirri línu þar
sem halla fer norður í mót.
„Stílhreint rís það upp frá
hrauninu sem hefur á sínum tíma
umkringt það að mestu, fellið sem
fær nafn af Kili og markar í hug-
um marga Suðurmörk hans,“ segir
í Árbók Ferðafélag Íslands 2001.
Þar er áréttað er að fjallið sé 1.008
metra hátt. „Hlíðar Kjalfells eru að
mestu brattar skriður og víðast
klettabelti í efstu brún,“ segir enn-
fremur um þetta systurfjall Herðu-
breiðar. Og þau eru, til viðbótar
við þau sem hér eru að framan
nefnd, sjálfsagt miklu fleiri á
landsvísu ef eftir því væri skimað.
Geta sjálfsagt bætt við listann og
haft margt til síns máls.
Sannleikur og orð
„Það er fjall í Kinninni fyrir norð-
an, sem heitir Bakrángi ef maður
sér austaná það, Ógaungufjall ef
maður stendur fyrir vestan það, en
utanaf Skjálfanda kalla sjófarendur
það Galta,“ segir Halldór Laxnes í
Íslandsklukkunni. Orðin, sem
skáldið leggur í munn Arnas Ar-
næusi, eru oft tiltekin sem dæmi
um hve erfitt getur verið að höndla
sannleikann og koma með eitthvða
algilt svar við stórum spurningum .
Í raun og veru er slíkt aldeilis úti-
lokað.
Svar við þeirri spurningu um
hvað líkist hverjum er afstætt og
byggist á mati og smekk þeirra
sem fyrir svörum verða hverju
sinni. Grjótnegld staðreynd er þó
að systkinafjöllin fjögur sem nefnd
eru hér að framan mynduðust öll
með sambærilegum hætti, það er í
eldgosi undir ísaldarjökli og af því
ræðst lögun þeirra. Að því leyti
eru þau systkinin drottningarinnar
- Herðubreiðar - þó alltaf megi
deila um hvort þau hafi endilega
sömu lögun og sama svip.
Hlöðufell setur svip sinn á landið, en til þess sést úr Laugardal og af Kjalvegi
við Gullfoss, þar sem þessi mynd af því var tekin með lúpínubreiðu í forgrunni.
Eiríksjökull blasir við í austri þegar farið er yfir Holtavörðuheiði, en oftar en
ekki er fjallið hulið skýjum. Fjallið er illkleift og þangað fara næsta fáir.
Hlöðufell er kennimark á Kili og er í hrauninu ekki langt sunnan við Hveravelli.
„Tengslin eru til staðar og við eigum í
margvíslegri samvinnu við fólk í
Utah, sem meðal annars lúta að sagn-
fræði og að rekja saman ættir Eyja-
fólks og þeirra sem fóru vestur,“ seg-
ir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum.
Íslendingadagur verður í borginni
Spanish Fork í Utah í Bandaríkj-
unum 12. september nk. og þess
minnst að 160 ár verða liðin frá því að
fyrstu Íslendingarnir settust þar að, í
fyrirheitna landi sínu við Saltvatnið
mikla. „Það er magnað að hugsa til
þess að 1874-1895 hafi um 200 manns
flutt frá Eyjum vestur um haf og stór
hluti þeirra til Utah
á forsendum morm-
ónatrúar. Á þeim
tíma var söfnuður
mormóna ekki stór
og Eyjamenn því
stórt hlutfall hóps-
ins sem síðar varð
undirstaða al-
heimstrúar, sem 15 milljónir manna
fylgja í dag,“ segir Elliði.
Vestmannaeyjabær hefur sam-
þykkt þátttöku í undirbúningi að há-
tíðinni í Utah í september til að minn-
ast þessara tengsla. Óvíst er þó að
Eyjamenn sendi fulltrúa vestur.
VESTMANNAEYJAR
Uppruni mormónatrúar heimsins er meðal annars úti í Vestmannaeyjum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Efla tengsl við Utah
Elliði Vignisson
Einkenni móbergsstapa er að þau
eru formsterk og regluleg í allri
lögum. Þau urðu til við eldgos und-
ir jökli á ísöld. Neðsta lag þeirra
er oftast bólstraberg, myndað við
svo háan vatnsþrýsting að berg-
kvikan sundraðist ekki, móberg er
miðlag og hraun liggur efst, runnið
eftir að gosopið náði upp úr jökl-
inum.
„Þetta eru fjöll sem mynduðust
undir lok ísaldar, það er fyrir
10.000 til 12.000 árum. Þegar jökl-
arnir bráðnuðu ört við lok þessa
kalda tímabils jókst eldvirkni mjög,
á Norðurlandi til dæmis var hún 30
sinnum meiri en nú er,“ segir Sig-
urður Steinþórsson jarðfræðingur
og lengi prófessor við Háskóla Ís-
lands að spurður um jarðmyndanir
þessar.
„Atburðarásin var í stuttu máli
sú að undir jökli hófust eldgos og
eldurinn braut sér leið gegnum ís-
inn,“ segir Sigurður. „Herðubreið
er sennilega þekktust fjalla sem
mynduðust með þessum hætti, en
þau eru mörg fleiri og að minnsta
kosti 40. Fyrrum voru uppi ýmsar
hugmyndir um myndun þessara
fjalla, en stapakenningin um að
þau hafi orðið til í eldgosum undir
jökli er nú almennt viðurkennd.
Sennilega eru staparnir náskyldir
dyngjunum svonefndu, til dæmis
Skjaldbreiði og Trölladyngju, sem
urðu til eftir að ísaldarjöklana
leysti snemma á nútíma.“
TUGIR STAPA UM ALLT LAND
Bólstrar, móberg
og hraun á toppi
„Þetta eru fjöll sem mynduðust undir lok ísaldar, það er fyrir 10.000 til 12.000
árum,“ segir Sigurður Steinþórsson jarðfræðingur um stapana í landslaginu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í Snæfellsstofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðu-
klaustri stendur yfir sýningin Yfir hrundi askan
dimm. Þetta er verkefni Elsu G. Björgvinsdóttur í
þjóðfræði við HÍ og fjallar um Öskjugosið 1875.
Skriðuklaustur
Fyrsti kostur í sundlaugarmálaum á Sauðárkróki er endur-
uppbygging núverandi laugar á Króknum. Þetta samþykkti
byggðarráð Skagafjarðar nýlega. Málið er komið í vinnslu,
en úrbætur í sundmálum hafa lengi verið í deiglu nyrðra.
Sauðárkrókur
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino