Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 25
G
amalt frystihús við höfnina í Hafnarfirði
hefur svo sannarlega fengið nýtt hlutverk
en þar eru vinnustofur þrjátíu lista- og
handverksmanna. Ólafur Gunnar Sverris-
son, skipasmiður rekur húsið ásamt konu sinni Önnu
Maríu Karlsdóttur. Víðs vegar um húsið eru listamenn
og hönnuðir að störfum og fallegir munir verða þar til
í höndum þeirra. Í húsinu er keramik- og textíl hönn-
un, hnífar eru smíðaðir, lampar búnir til, myndir mál-
aðar og húsgögn smíðuð svo eitthvað sé nefnt. Sett
hefur verið upp búð þar sem hægt er að kaupa
munina, en opið er fyrir gesti og gangandi öll fimmtu-
dagskvöld frá 17-21. Einnig er opið fyrsta laugardag í
hverjum mánuði frá 13-17.
Gaman að vinna með öðrum
Hönnuðurnir og listamennirnir sem sitja að störfum
eru allir sammála um að í húsinu sé góður andi. Þau
eru alsæl að fá að starfa í þessu skemmtilega og
bjarta húsi við höfnina. Þau segja að það sé mikill
munur að vinna að list sinni á meðal annarra lista-
manna því oft geti verið einmanalegt að vera einn að
vinna. Í húsinu hjálpast allir að og svo er voða gott að
fá sér kaffi saman á kaffistofunni eða spjalla saman
við gluggann og horfa yfir höfnina.
Dagný Gylfadóttir er keramikhönnuður og er aðallega að vinna með postulín,
ljós og kertastjaka. Hún segir að andinn í húsinu sé mjög góður.
Aron Freyr Stefánsson er fjórtán ára. Hann segist vera með öðruvísi áhugamál
en margir jafnaldrar því hann býr til keramikbíla sem hann svo selur.
Evangelos Tsagkouros er kominn alla leið frá Grikklandi en hann smíðar hnífa
frá grunni. Hann segir það sé frábært að vera í húsinu, alltaf líf og fjör.
Góður andi við höfnina
ÍSHÚSIÐ VIÐ STRANDGÖTU Í HAFNARFIRÐI FÉKK NÝTT HLUTVERK Í FYRRA ÞEGAR ÞVÍ
VAR BREYTT OG ERU NÚ ÞRJÁTÍU HÖNNUÐIR OG LISTAMENN ÞAR MEÐ VINNUSTOFUR.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
HÖNNUN OG LIST Í ÍSHÚSI HAFNARFJARÐAR
2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Faxafeni 5, Reykjavik, S: 588 8477 | Skeiði 1, Ísafirði, S: 456 4566 | Dalsbraut 1, Akureyri • S: 558 1100 • www.betrabak.is
TIMEOUT STÓLLINN
Hannaður með fagurfræði
og þægindi að leiðarljósi.
Hönnuður: Jahn Aamodt