Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Qupperneq 30
Langur göngutúr er holl hreyfing
fyrir alla fjölskylduna og hægt er
að gera gönguna gríðarlega
skemmtilega. Takið með ykkur
lítið box eða kassa í gönguferð-
ina og safnið svo saman í kassann
fallegum fjársjóði sem á vegi ykk-
ar verður, svo sem skeljum,
steinum, laufblöðum eða öðru
sniðugu. Snjallt er að foreldrar
séu tilbúnir með myndavél eða
snjallsíma til að smella mynd af
barninu þegar eitthvað sérlega
fallegt finnst, slíkar myndir eru
oft tilvaldar til stækkunar.
Þegar heim er komið getur
verið gaman að skreyta kassann
með listaverki
eftir börnin. Til
þess er gott að
nota vaxliti, tússpenna eða jafn-
vel límmiða og glimmer, eitthvað
sem gerir kassann sérstakan og
persónulegan. Næst þegar rignir
eða einhverjum leiðist er upplagt
að taka fram fjársjóðskassann og
skoða og rifja upp hvar fjársjóð-
urinn fannst og af hverju var
ákveðið að taka hann með heim.
Fjársjóðs-
söfnun
Nauthólsvík, fjaran eða hrein-
lega sandkassi á róló má nýta til
að reisa saman sandborgir. Það
eina sem þarf eru fötur og
skóflur. Fyrir þá sem vilja taka
leikinn alla leið er upplagt að
taka nokkra litla bíla með og
jafnvel playmo-karla og -konur
og útbúa heilt samfélag í sand-
inum, kastala, skurði og vegi.
Hér ræður hugmyndaflugið för.
Borgir og
bæir úr sandi
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015
Fjölskyldan Á sunnudag stendur Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fyrir glæsi-legum tónleikum í garðinum fyrir alla fjölskylduna kl. 14.30 en garð-
urinn fagnar 25 ára afmæli í ár. Vinsælir tónlistarmenn stíga á svið,
svo sem AmabAdamA, Dísa og fleiri. Garðurinn er opinn kl. 10-18.
Músík og gleði í Húsdýragarðinum
Þó að það sé vissulega mýta að börn vilji ekki
grænmeti, þá eru þó mörg þeirra sem fúlsa
við því. Skemmtileg leið sem gæti breytt því
er að búa til listaverk úr grænmeti og ávöxt-
um. Skerið niður og skrælið gulrætur,
gúrku, kál, banana, appelsínur, jarð-
arber, vínber og hvaðeina sem
ykkur dettur í hug og
leyfið barninu að
ákveða hvað skal búa
til. Einnig má nota
brauðmeti og alls-
konar álegg.
Hvort sem dýr, skor-
dýr, bílar, trúðar, álfar
eða tröll verða fyrir valinu
þá er aðalfjörið að borða
listaverkið þegar það er tilbúið.
Ekki gleyma að smella mynd af
verkinu til minningar.
Matarlist sem eykur
matarlyst
Krökkum þykir flestum gaman að ævin-
týrasögum, hvað þá ef foreldrarnir hafa
fjörugt ímyndunarafl og spinna sögur frá
hjartanu. Ekki skemmir fyrir ef tónlist án
söngs er spiluð undir. Klassísk tónlist með
fjölbreyttum hljóðfærum getur skapað
grunn að góðri sögu eins og til dæmis
verk Sergei Prokofiev frá árinu 1936
um Pétur og úlfinn. Leyfið barninu
einnig að spreyta sig með í sögunni
og spyrjið ef því dettur einhver snið-
ugur karakter í hug eða eitthvað
skemmtilegt atvik sem ætti að eiga
sér stað.
Sögustund með klassískri tónlist
Það er alltaf gaman að blása sápukúlur.
Skiptir engu máli hvort um er að ræða
þriggja ára einstakling eða þrítugan,
það er eitthvað við sápukúlur því þær
færa mikla gleði í umhverfið. Prófið að
blanda ykkar eigin blöndu í stað hefð-
bundinna sápukúla og búa til ofvaxnar
sápukúlur. Það er gert með því að
blanda einum hluta af uppþvottalegi
við 10 hluta af vatni. Bætið glyseríni
eða glyseróli við, en það fæst í apó-
teki, til þess að kúlurnar haldist. Í raun
er hægt að nota hvaða verkfæri sem
er sem myndar hring utan um kúl-
urnar, svo sem band, plasthringi sem
festir eru á goskippur, bogið herðatré
eða annað sem ykkur dettur í hug. Þá
er bara að hella blöndunni í stórt ílát,
helst sem flatast, og hefjast handa við
að búa til glæsilegar sápukúlur.
Sápukúlustuð
Samvera á
sumardögum
Á SUMRIN NJÓTA FJÖLSKYLDUR ÞESS AÐ VERA SAMAN OG
SKAPA SKEMMTILEGAR MINNINGAR. EKKI FARA ALLIR Í FERÐA-
LÖG ÚT FYRIR LANDSTEINANA EÐA INNANLANDS EN NJÓTA
ÞESS FREMUR AÐ VERA HEIMA VIÐ, ÚTI Í GARÐI EÐA FINNA
EITTHVAÐ SKEMMTILEGT AÐ GERA Í NÁNASTA UMHVERFI.
HEIMATILBÚNIR LEIKIR ERU ÁN EFA VINSÆLIR MEÐAL ÞEIRRA
YNGSTU OG KOMA HÉR NOKKRAR FÍNAR TILLÖGUR.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is