Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015 Græjur og tækni Bandarískur maður var hand-tekinn fyrir að skjóta niður dróna á dögunum. Dróninn var á flugi yfir garði mannsins í Ken- tucky þegar hann skaut hann niður með haglabyssu. Skaut dróna í garðinum B arrack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur gefið út tilskipun þess efnis að Bandaríkin skuli hafa lokið við smíði heimsins hröðustu tölvu fyrir árið 2025. Ofurtölvan sem um ræðir yrði tuttugu sinnum hraðvirkari en heimsins hraðasta tölva í dag, sem er í Kína, samkvæmt því sem fram kemur á vef BBC. Hún myndi því geta innt af hendi eina trilljón út- reikninga á sekúndu, eða milljarð milljarða, en slíkur hraði er kall- aður „exaflop“ í tölvugeiranum og yrði tölvan fyrsta tölva heims til að ná slíkum hraða. Sérstakur starfshópur verður skipaður til að annast þær rann- sóknir og margvíslega vinnu sem til þarf, svo markmið forsetans komist í framkvæmd. Mun hópurinn heita NSCI eða „National Strategic Computing Initiative“. Til að setja getu tölvunnar í sam- hengi má ímynda sér allt frá hundrað milljón og upp í milljarð venjulegra fartölva og leggja hraða þeirra saman, eins og fram kemur á Washington Post. Breytingar á mörgum sviðum Ljóst er að tilkoma tölvu með slíkt bolmagn muni hafa umtalsverðar breytingar í för með sér á ýmsum sviðum. Með ofurtölvunni verður meðal annars hægt að framkvæma útreikninga og líkja eftir flóknum aðstæðum í svokölluðum hermi, auk þess sem hún mun koma Banda- ríkjamönnum að gagni við vísinda- legar rannsóknir af ýmsu tagi. Einnig er vonast til þess að hana megi nýta við greiningu veðurmæl- inga, með það að markmiði að spá með nákvæmari hætti um veðrið, eða við greiningu krabbameins með því að greina röntgenmyndir af sjúklingum. Greint er frá því í bloggfærslu frá Hvíta húsinu að tölvan muni líka vera vísindamönnum geimrann- sóknarstofnunarinnar NASA innan handar við hönnun straum- línulagaðra farartækja, en með henni verður hægt að mæla og greina loftmótstöðu og ókyrrð í loftinu með nákvæmari og skilvirk- ari hætti en fram til þessa. Áætlnunin um smíði tölvunnar er mjög í takt við tímann, að mati Richards Kenway, sérfræðings við Edinborgarháskóla. Þar tvinnast saman metnaðurinn fyrir því að forrita nýjan tölvubúnað og bæta læsi og greiningargetu á gögnum, sérstaklega gögnum í miklu magni. Hann segir tölvuna munu hraða á framþróun í lyfjageiranum og á þá nánar tiltekið við lyf sniðin að þörfum einstaklinga. „Lyf dagsins í dag eru sniðin að meðalmanneskjunni,“ útskýrir hann. „Þau virka ágætlega fyrir suma en ekki fyrir aðra. Stóra áskorunin í lyfjageiranum er að færa okkur frá „meðallyfjum“ og í átt að lyfjum sem taka mið af ein- staklingnum, því þá má taka tillit til erfðafræðilegra eiginleika og lífsstíls viðkomandi.“ Tilkoma tölvunnar kynni auk þessa að hafa í för með sér breyt- ingar á kortlagningu loftslagsbreyt- inga til lengri tíma, að mati Marks Parsons, annars sérfræðings í Ed- inborg, sem ræddi við BBC. Í dag reyna vísindamenn að kortleggja loftslagsbreytingar næstu ár en ná- kvæmni slíkrar vinnu er að ýmsu leyti takmörkuð. Hraðasta tölvan er í Kína Í dag er hraðasta tölva heims í höndum Kínverja. Ofurtölvan, sem ber heitið Tianhe-2, er hýst í tölvu- miðstöð ríkisins í Guangzhou. Hún vinnur á hraða sem mælist 33.86 svokölluð „petaflop“, sem er næst- um því tvöfalt meira en næsthrað- asta tölvan, sem er bandarísk. Ekki fer milli mála að framan- greind áætlun Bandaríkjamanna í þessum efnum er tilraun til að bjóða forystu Kínverja birginn, að mati Parsons. „Bandaríkin hafa áttað sig á því að ef þau vilja halda velli í kapp- hlaupinu muni það kosta fjárfest- ingu af þeirra hálfu,“ sagði hann í samtali við BBC. 60 milljón punda rafmagns- reikningur Ljóst er að fjöldi áskorana verður á vegi hópsins sem falið hefur verið að hanna tölvuna. Margra ára rannsóknar- og þróunarvinna bíður þeirra sem hann skipa. Einna helst má nefna að ein- stakir hlutar tölvunnar munu þurfa að vera hagkvæmari í orkunýtingu en tíðkast í dag, en ætla má að raf- mangsþörf tölvunnar verði gríð- arleg. „Ég mundi segja að þeir stefni á hér um bil 60 megavatta orkuþörf. Ég get ekki ímyndað mér að þeir nái að fara niður fyrir það,“ segir Parsons. Til samanburðar er orku- þörf álvers Norðuráls í Grund- artanga á bilinu 500 til 550 mega- vött, samkvæmt grein á mbl.is. Rafmagnsreikningurinn mun ná umtalsverðum hæðum á bandarísk- um markaði. „Það munu fara að minnsta kosti 60 milljónir punda á ári bara í rafmagnskostnað,“ segir hann, en það jafngildir hér um bil 12,5 milljörðum íslenskra króna. Obama vill hröðustu tölvu heims BARRACK OBAMA BANDARÍKJAFORSETI VILL SJÁ HEIMSINS HRÖÐUSTU TÖLVU Í SÍNU HEIMALANDI FYRIR ÁRIÐ 2025, OG BÝÐUR ÞANNIG FORYSTU KÍNVERJA Í ÞEIM EFNUM BIRGINN, EN HRAÐASTA TÖLVA HEIMS ER KÍNVERSK Í DAG. Matthías Tryggvi Haraldsson mth@mbl.is Bandaríkin hafa áttað sig á því að ef þau vilja halda velli í kapphlaupinu muni það kosta fjárfestingu af þeirra hálfu. Ljósmynd/Ralph Alswang Svo virðist sem Bandaríkjamenn og Kínverjar etji kappi um heimsins hröðustu tölvu. Kínverjar eiga tvöfalt hraðari tölvu en Bandaríkjamenn í dag. Evan Sharp, einn stofnandi Pinterest-síðunnar sem margir þekkja, sendi frá sér yfirlýsingu í lok viku þess eðlis að fyrirtækið hyggist ráða fleiri konur til starfa á nýju ári og einnig aðra starfsmenn sem myndu flokkast til minnihlutahópa, svo sem fólk af rómönskum ættum og afrískum uppruna. Hann tilkynnti að stefnt sé að því að konur verði að minnsta kosti um 30% verkfræðinga hjá fyrir- tækinu og einnig að miðað verði að því að hafa 8- 12% verkfræðinga af rómönskum eða afrískum uppruna, en verulega hallar á slík þjóðerni í þess- um bransa. Þetta vinsæla fyrirtæki, sem metið er á 11 milljarða dollara, gengur út á að notandi síðunnar eða smáforritsins Pinterest getur safnað saman í möppur myndum af fallegum hlutum og þannig jafnvel nælt sér í innblástur. Myndirnar eru síðan flokkaðar niður og má þar nefna tísku, hönnun, heimili, mat, bíla, ferðalög, húðflúr og þar fram eftir götunum. Vilja ráða fólk sem telst til minnihlutahópa HIN VINSÆLA MYNDASÖFNUNARSÍÐA PINTEREST HEFUR LÝST YFIR MARKMIÐUM SÍNUM FYRIR ÁRIÐ 2016, AÐ RÁÐA FLEIRI KONUR TIL STARFA. Óhætt er að segja að Pinterest hafi sett sér flott markmið fyrir árið 2016. Þess er ekki langt að bíða að kínverskir koníakssvelgir geti geng- ið úr skugga um hvort Remy Martin-flöskurnar þeirra séu þær einu sönnu með því einu að seilast ofan í vasann sinn og grípa í snjallsímann, að sögn talsmanns franska koníaksframleiðandans. Snjallflöskur af tegundinni Remy Martin Club Connected Cogniac verða nefnilega með tölvuflögu í tappanum sem sannar uppruna áfengisins. Flöskurnar verða fyrst um sinn einungis seldar í Kína og þá einungis í næturklúbbunum í þremur stærstu borgunum. Neytendur geta þá sótt sér smáforrit af vefnum sem var hannað í samstarfi við tæknifyrirtækið Selinko, sem þeir hlaða í snjallsímann sinn. Að því loku eiga þeir sem kaupa flöskuna að geta sannreynt hvort flaskan sé óekta með því að skanna örflöguna sem er falin í tappa flöskunnar. Það er ekki tilviljun háð að Kínamarkaður hafi orðið fyrir valinu við kynningu vörunnar, að sögn Florence Puech, annars talsmanns fyrirtækisins. Í Kína er talsvert um að áfengið sé falsað og selt undir fölskum formerkjum. Þar að auki er Kína einhver stærsti markaður Remy Martin í heim- inum ásamt Bandaríkjunum. Frakkar eru hins vegar ekki sérstaklega hrifnir af drykknum og er því meirihluti fram- leiðslu drykkjarains fluttur úr landi. Snjallkoníak í Kína SANNLEIKINN Í TAPPANUM

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.