Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 35
2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Glæsileg armbandsúr
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
29.200
32.500 36.990 27.300 33.800
24.700 39.900 31.500
N
ýlega lagði ég leið mína
á Eiðistorg á Seltjarn-
arnesi, líkt og all-
margir Vesturbæingar
gera öðru hvoru. Á leiðinni í versl-
unina gekk ég framhjá þremur
stúlkum sem þar höfðu komið sér
fyrir með tombólu – ekki óvanaleg
sjón á Eiðistorgi. Stúlkurnar, sem
voru á að giska sjö eða átta ára
gamlar, kölluðu til mín þegar ég
gekk framhjá, spurðu hvort ég
vildi kaupa af þeim og bentu á dót-
ið sem þær höfðu raðað snyrtilega
á flísalagt gólfið. Ég stoppaði,
sagði þeim eins og var að ég væri
því miður ekki með reiðufé á mér,
einungis kort, en óskaði þeim góðs
gengis. Síðan kvaddi ég og hugðist
halda inn í verslunina.
Ég hafði gengið örfá skref þegar
ég heyrði kallað á eftir mér:
„Biddu bara pabba þinn að gefa
þér pening! Eða bróður þinn.“ Ég
sneri mér að stúlkunum á ný og þá
bætti sú þriðja við: „Eða manninn
þinn!“
Ég var orðlaus, brosti einungis
eins fallega og ég gat og hélt síðan
mína leið. Atvikið hefur þó sótt á
mig síðan. Í fyrsta lagi þykir mér
dálítið undarlegt að átta ára stelp-
ur geri ráð fyrir því að fjórtán ár-
um eldri stelpa „eigi mann“. Enn
furðulegra þykir mér þó að sú hug-
mynd að konur séu karlmönnum
háðar hvað peninga varðar, sé
komin inn í koll íslenskra kvenna
áður en þær ná tíu ára aldri.
Ég vildi óska þess að ég hefði
ekki bara brosað og gengið í burtu,
þennan dag á Eiðistorgi. Ég vildi
að ég hefði gefið mér tíma til að
setjast niður með þessum þremur
stelpum og spjalla við þær. Ætli
mæður þeirra séu upp á feður
þeirra komnar þegar þær ætla að
kaupa eitthvað? Spyrja einstæðar
íslenskar mæður feður sína leyfis
áður en þær fjárfesta í nýjum bíl?
Eða hefur bróðir þeirra kannski
fjárforræði yfir þeim? Því á ég
bágt með að trúa. Hvaðan kemur
þá hugmynd stúlknanna á Eiðis-
torgi um fjármál ungra kvenna?
Ég vildi óska þess að ég hefði
útskýrt fyrir tombólustelpunum að
þótt sumar konur gangi að jafnaði
ekki með reiðufé á sér, þá vinni
langflestar konur sér sjálfar inn
fyrir eigin peningum – þær þurfi
ekki að biðja manninn sinn um að
gefa sér peninga. Lendi þær í
bráðum fjárskorti, þá geta þær
vissulega beðið einhvern um að
lána sér pening – en ekki einungis
pabba sinn eða bróður, heldur
einnig mömmu sína, systur, eig-
inkonu eða vinkonu.
En þetta gerði ég því miður
ekki, heldur verslaði og fór síðan
heim. Ég vona því að stúlkurnar
hafi komist að því seinna um dag-
inn að konur eiga líka peninga og
þurfa engan að spyrja áður en þær
eyða þeim. Og sjái ég tombólu-
stúlkurnar einhvern tíma aftur, þá
mun ég ekki láta mitt eftir liggja.
Margt hefur unnist konum – og í
leiðinni körlum – í hag en ekki má
sofna á verðinum. Ég var á aldur
við stúlkurnar þrjár í gær, þær
verða á mínum aldri á morgun og
þá taka þær við kyndlinum. Gæt-
um þess að missa hann ekki og
gefum okkur tíma til að ræða við
börnin okkar um svo mikilvæg
málefni.
Hvaða hugmyndir ætli þessar stúlkur hafi um fjármál kvenfyrirmynda sinna?
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fjárhagurinn
háður körlum?
SÚ HUGMYND VIRÐIST SNEMMA SKJÓTA RÓTUM Í HUGUM
STÚLKNA, OG HUGSANLEGA DRENGJA LÍKA, AÐ KARL-
MENN HAFI MEIRA MEÐ PENINGA AÐ GERA EN KONUR.
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Ætli konur spyrji einhvern leyfis áður en þær kaupa sér nýjan bíl?
Morgunblaðið/Þórður
FEMÍNISMI Á EIÐISTORGI
S
vokölluð unisex-föt njóta nú sífellt
meiri vinsælda en fötin eru ókyn-
bundin. Þau henta þannig báðum
kynjum en hugmyndin um unisex-
klæðnað gerir ráð fyrir því að fólk velji sér
föt eftir smekk, fremur en eftir kyni.
Unisex-föt urðu vinsæl rétt eftir miðja
síðustu öld, um svipað leyti og annarrar
bylgju femínismi kom fram. Kyn og kynja-
hlutverk voru endurskoðuð og fatatíska var
stór hluti af aðgreiningu kynjanna – og er
raunar enn.
Nú eru unisex-föt hins vegar að ryðja sér
til rúms á ný – í verslunarhúsinu Selfridges
í London var t.d. nýlega opnað tveggja
hæða verslunarrými með unisex-fötum og
vakti það mikla athygli.
Illa er hér hægt að greina hvort um karla eða konur er að
ræða og bæði klæðast sams konar fötum.
Þessir unisex jakkar eru meðal þess sem til sölu er í sérstakri
unisex deild Selfridges í London.
Kanye West klæðist unisex blússu sem hann hannaði sjálfur.
Unisex-
fatnaður
vinsæll
Framúrstefnuleg og nútímaleg unisex-föt eftir fata-
hönnuðinn Damien Fredriksen Ravn.