Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 42
legasta barn sem ég hef séð,“ segir hún en eftir það var sérstakt samband á milli Hilmis og afa hans Páls og voru þeir mestu mátar þau tæp fjögur ár sem þeir fengu saman. Tók tíma að læra að elska hann Sumarið og haustið sem Hilmir fæddist leið og hjónin tókust á við þetta nýja verkefni sem þau höfðu fengið upp í hendurnar 19. júní. Móðir Sólnýjar var langt leidd af Alz- heimers og lést í febrúar árið 2012 þannig að þetta voru erfiðir tímar. „Ég tók rosalegar dýfur og fyrstu mánuðirnir voru stundum dálítið óraunverulegir. Mér fannst eins og hann væri ókunnugur. Stundum þegar ég vaknaði á morgnana horfði ég bara á hann og hugsaði: hvaða barn er þetta? Ég er al- veg hreinskilin með það að það tók mig tíma að læra að elska hann. En ástæðan fyrir því held ég að hafi verið að ég var hrædd. Stundum efaðist ég um að ég væri nógu góð móðir til að geta komið til móts við þarfir hans. Það voru bara alls konar tilfinningar sem komu upp sem maður á kannski ekki auðvelt með að tala um en kannski var þetta bara skólabókardæmi um eðlilegt sorgar- ferli,“ segir hún. Sólný heimsótti móður sína á hverjum degi með litla drenginn og horfði upp á móð- ur sína hverfa inn í heim Alzheimers. „Þetta tók mörg ár og var mjög erfitt að horfa upp á, hún hafði alltaf verið svo lífsglöð og þarna varð ákveðin persónuleikabreyting,“ segir Sólný, en nokkrum mánuðum áður en Hilmir fæddist hafði hún fengið heilablóðfall. Mitt í öllu þessu fæðist svo Hilmir og telur Sólný það hafi verið örlögin sem stýrðu því. „Ég trúi því að hann hafi átt að koma. Þetta var allt skrifað í skýin,“ segir hún. Innihaldsríkt að ala hann upp Lífið hélt áfram hjá stóru fjölskyldunni í Grindavík og þau kynntust drengnum með Downs-heilkennið. „Þegar kona gengur með barn er oft sagt að aðalatriðið sé að eignast heilbrigt barn en í einhverjum kerfum flokk- ast Hilmir ekki heilbrigður af því að hann er með auka litning, en fyrir mér er hann bara heilbrigður. Hver segir að ég sé heilbrigðari en hann? Viðmiðin breytast. Hann hefur svo margt sem við hin höfum ekki og ég er búin að læra margt af honum á stuttum tíma og kannski mest um sjálfa mig. Ég þurfti að hægja alveg gífurlega á mér. Það er mjög ólíkt að ala hann upp miðað við hina strák- ana þar sem hlutirnir gerast bara sjálfkrafa. Þegar hann nær tökum á því sem hann hef- ur verið að æfa lengi er það stór gjöf. Til dæmis þegar hann lærði að skríða, ganga og ná tökum á táknum til að tjá sig var mikil gleði á heimilinu og okkur fjölskyldunni fannst við bara vera að upplifa kraftaverk lífsins,“ segir Sólný. „Það er innihaldsríkt að ala hann upp og gefandi en á sama tíma krefjandi. Hann er að sumu leyti hömlulaus og það þarf að setja honum mörk, mjög skýr mörk. Maður þarf alltaf að vera til staðar fyrir hann andlega, það er bara þannig. Það er enginn afsláttur,“ segir hún. Fór í andlegt gjaldþrot Sólný segir að hún hafi keyrt sig áfram á þessum erfiðu tímum en andvökunætur, áhyggjur og veikindi móður hennar tóku á andlegu hliðina. „Þetta var erfiður tími og ég vann ekkert úr því á þessum tíma, ég fór þetta bara á hnefanum. Svo deyr mamma þegar hann er hálfs árs og ég vann aldrei úr sorginni, ég þurfti að halda áfram með mitt líf og fjölskyldunnar. Þannig að áramótin 2013-14 var ég komin í andlegt gjaldþrot, ég bara gat ekki meir. Ég þurfti að taka ákvörðun hvernig ég ætlaði að halda áfram og játaði mig sigraða. Ég bara strandaði. Mér leið mjög illa, var orðin þunglynd og kvíðin og þurfti að ákveða hvernig lífi ég vildi lifa,“ segir hún og ákvað þarna um ára- mótin að breyta lífi sínu. „Ég leitaði aðstoðar hjá fagfólki og lagði af stað í andlegt ferða- lag sem stendur enn,“ segir Sólný og bætir við að lífið hafi breyst mikið til hins betra. „Þegar ég var búin að taka þessa ákvörðun um að endurskoða líf mitt þá bara opnaðist allt. Ég fékk fullt af fólki inn í líf mitt sem ég kalla engla. Ég er búin að fá svo margar fallegar gjafir á þessu eina og hálfa ári að það er alveg magnað. Um leið og ég fór að taka sjálfa mig í gegn þá fór allt að breytast í kringum mig; þegar maður hættir að reyna að breyta og stjórna öðrum. Það eina sem maður getur gert er að breyta sjálfum sér,“ segir hún. „Ég á langt í land, ég er auðvitað bara að vinna í mínu lífi eins og aðrir, bara einn dag í einu en ég er sterkari. Það eru alltaf ný og ný verkefni. Nú nýlega dó svo pabbi,“ segir hún en hann lést í febrúar á þessu ári og er hún enn að syrgja hann. Þau voru mjög náin. Gömul fjölskyldumynd af stórfjölskyldunni en systkinin eru sex. Stórfjölskyldan saman komin þegar Hilmir fæddist. Á myndinni eru allir synirnir og dæturnar Alexsandra og Máney . Ljósmyndir úr einkasafni Sólný er hér með Hilmi nýfæddan. Fjölnir er duglegur að hjálpa bróður sínum. Hilmir og afi hans Páll voru mestu mátar. Sólný erfði fallega söngrödd frá móður sinni. Litla fyrirsætan Hilmir. Hilmir fer gjarnan út á náttfötum. Hilmir með kúta í sveitalaug. Ljósmynd/Sissa Ljósmynd/Sissa Viðtal 42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.