Þjóðmál - 01.03.2009, Page 72
70 Þjóðmál VOR 2009
peningagreiðslur í bókhaldi Íslandsbanka
umfram hlutabréfin í Baugi .
Allir hluthafar Arcadia Holding fullyrða
að þeir hafi EKKI fengið krónu í reiðufé frá
Baugi . Þeir hafi einungis fengið greitt með
hluta bréfum í Baugi hf .
En hvert fóru þessi hundruð milljóna sem
tekin voru úr sjóðum almenningshlutafélags
ins Baugs?
Við rannsókn málsins komu fram
vísbend ingar . . .
Í bókhaldi almenningshlutafélagsins
Baugs voru skráðar 95 milljón krónur
sem runnu til KB banka með skýringunni
„ráðgjöf vegna Arcadia Holding“ . En í
yfirheyrslum hjá lögreglu fullyrti Hreiðar
Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, að
þessi bókhaldsfærsla Baugs væri röng .
KB banki hefði ekki fengið neinar slíkar
ráðgjafagreiðslur frá Baugi: „Hreiðar kveðst
telja að umrædd greiðsla, sé greiðsla frá
Baugi til Kaupþings í Lúxemborg sem hafi
verið ráðstafað áfram til félagsins Gaums
Holding og þaðan áfram inn í sjóði FBA
Holding . . . Hreiðar segir að fyrirmæli um
ráðstöfun greiðslunnar með þessum hætti
geti bara komið frá greiðandanum .“
Greiðandinn var almenningshlutafélagið
Baugur .
Eigandi Gaums Holding í Lúxemborg
heit ir Jón Ásgeir Jóhannesson .
FBA Holding var stofnað af ORCA
hópn um svokallaða og einn eigandi þess er
Jón Ásgeir Jóhannesson .
Fjármálastjóri Baugs hf . vissi ekki um
þessa 95 milljóna greiðslu .
Einungis tveimur mönnum virðist hafa
verið kunnugt um þessa 95 milljóna milli
færslu úr sjóðum almenningshlutafélags
ins Baugs inn á reikninga tengda forstjóra
Baugs í Lúxemborg, sem hefur ströngustu
bankaleyndarlög Evrópu .
Og þessir tveir menn eru … Jón Ásgeir
Jóhannesson og Tryggvi Jónsson .
En hvert fór afgangurinn af þeim hundr
uð um milljóna sem hurfu út af banka reikn
ing um almenningshlutafélagsins Baugs
við kaup in á hlutnum í Arcadiaversl un
arkeðjunni?
Hver skyldi nú hafa fengið alla þessa
peninga?
5 . hluti
Leynibanki Baugs hf .
Það er dapurlegt að lesa í fréttum blaðanna um hinar gríðarlegu lánveitingar
sem íslensku bankarnir hafa stundað til
„vildarvina“ sinna . Hundruð þúsunda
milljóna hafa horfið til einstakra manna
til að viðhalda viðskiptaveldi þeirra – og
afleiðingin er hrun bankanna og upplausn
íslensks samfélags .
Þessar undarlegu lánveitingar eiga sér
langan aðdraganda .
Eitt stærsta almenningshlutafélag Íslands
stundaði nefnilega gríðarlega lánastarfsemi
í þágu stærstu hluthafa sinna svo að þeir
gætu byggt upp stærsta viðskiptaveldi
Íslandssögunnar á undraskömmum tíma .
Og enginn vissi af þessum lánveitingum
nema þeir sjálfir .
Eftirfarandi upplýsingar koma úr
eiðsvörnum og vottuðum framburðar
skýrslum fjölda einstaklinga hjá lögreglu og
dóm stólum .
Einn af stóru ákæruliðunum í Baugsmál
inu snerist um ólöglegar lánveitingar úr
sjóðum almenningshlutafélagsins Baugs til
forstjóra félagsins .
Sá forstjóri heitir Jón Ásgeir
Jóhannesson .
Baugur hf . var á þessum tíma stærsta
almenningshlutafélag Íslands í eigu þúsunda
Íslendinga og lífeyrissjóða .
Og nokkurn veginn svona gekk hin leyni
lega „lánaþjónusta “ almenningshlutafé
lagsins Baugs hf . fyrir sig: Forstjóri Baugs,