Þjóðmál - 01.03.2011, Blaðsíða 30
28 Þjóðmál VOR 2011
Seðlabankastjóri klúðrar
sölunni á Sjóvá
Fyrirtækið SjóváAlmennar tryggingar hf . sætti sér
stöku eftirliti Fjármálaeftirlits
ins (FME) á árunum 2008 og
2009 samkvæmt 90 . gr . laga
nr . 60/1994 um vátryggingastarfsemi, þar
sem félagið uppfyllti ekki skilyrði lág marks
gjaldþols . Samkvæmt drögum að efna hag
sreikningi frá 28 . febrúar 2009 var eigið
fé félagsins neikvætt um 13,5 milljarða kr .
(ma .kr .) en þurfti að lágmarki að vera já
kvætt um 2 ma .kr . Var því ljóst að leggja
þyrfti félaginu til nýtt eigið fé að fjárhæð
15,5 ma .kr . til að uppfylla grunnskilyrði
um vátryggingarekstur . Að öðrum kosti yrði
félagið gjaldþrota . Fjármálaráðuneytið lagði
fram tæpa 12 milljarða króna til að Sjóvá
gæti haldið áfram . Síðan var stefnt að sölu
fyrirtækisins í opnu ferli . Seðlabanki Íslands
stöðvaði ferlið .
Már Guðmundsson seðlabankastjóri sat
fyrir svörum í viðskiptanefnd Alþingis 28 .
janúar 2011 um söluferli Sjóvár . Bar Már
við trúnaði og neitaði að svara flestum
spurn ingum sem nefndarmenn beindu til
hans .
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður
Sjálf stæðisflokksins, sat nefndarfundinn
með Má . Sigurður Kári sagði
að fundinum með Má mætti
líkja við hálf gerða leik sýn ingu .
„Þarna voru engar upp lýsingar
veittar sem máli skipta . Ekki
mátti skilja seðla banka stjór ann öðru vísi
en svo að þingið þurfi að leita til dóm stóla
til að fá upplýsingar um þessa sölu, sem er
ein stærsta einkavæðing sögunnar . Þetta
söluferli hefur verið eins langt frá því að
vera opið og gagnsætt og hugsast getur,“
sagði Sigurður Kári við Morgunblaðið .
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyf
ingarinnar, á einnig sæti í nefndinni . Hún
sagði við Morgunblaðið eftir fundinn með
Má: „Af hálfu seðlabankastjóra fóru fyrstu
40 mínútur fundarins í það að upp lýsa
fundar menn um þagnarskyldu Seðla bank
ans . Már sagði að ferlið yrði opið og gagn
sætt þegar yfir lyki . Persónulega þykir mér
mikilvægt að svona söluferli séu opin og
gagn sæ meðan á þeim stendur . Þessi fund ur
var súrrealískur .“
Skúli Helgason, einn fulltrúa Sam fylk ing
arinnar í viðskiptanefnd, leit fundinn með
Má öðrum augum og sagði við Morgunblað-
ið: „Þetta var mjög gagnlegur fundur og
upp lýsandi . Við fengum bæði upplýs ingar
ÞJÓÐMÁL
• ÚTTEKT •