Þjóðmál - 01.03.2011, Side 62

Þjóðmál - 01.03.2011, Side 62
60 Þjóðmál VOR 2011 Hlut hyggju byggist öll þekking á skynjun . Ýmis óhlutstæð hugtök eru síðan mikilvæg af sprengi hinnar röklegu greiningar . Hún hafnaði hins vegar að tilfinningar eða trú gæti verið uppspretta þekkingar . Í heimspeki er oft greint á milli tveggja póla: annars vegar rökhyggju, þar sem þekking er talin óháð reynslu og lögð er áhersla á abstrakt skynsemi; og hins vegar raunhyggju, þar sem reynsla er talin upp spretta þekkingar og abstrakt skynsemi er í aukahlutverki . Segja má að Hluthyggja sam eini þessa tvo skóla með því gefa hvoru tveggja, reynslu og röklegri úrvinnslu, mikið vægi . Skynsemishugtakið er hornsteinn Hlut­ hyggjunnar og hugmyndir um menningar­ legt hlutverk skynseminnar eru áberandi í túlkun Rands á mannkynssögunni . Þannig er hún hrifnust af þeim tímabilum þegar hugmyndafræði heilbrigðrar skynsemi var í fyrirrúmi að hennar mati; í því sambandi var henni tíðrætt um Grikkland til forna, Endurreisnartímabilið og nítjándu öldina Siðfræði, samkvæmt skilgreiningu Ayn Rands, er sú grein heimspekinnar sem fæst við þau gildi sem stýra vali okkar og gjörð­ um; þeim ákvörðunum sem marka lífi okkar stefnu og veitir því markmið og tilgang . Sérhver lífvera hefur frá náttúrunnar hendi sterka tilhneigingu til að þrauka og þrífast, að lifa áfram og bæta stöðu sína, en hnigna ekki og deyja . Hluthyggjan tekur eindregna afstöðu með þessari eðlishvöt . Lífið sjálft er æðsta gildið og önnur gildi taka mið af því . Dýr bregðast við af hreinni eðlis hvöt og náttúruval hefur leitt til þess að viðbrögð þeirra stuðla yfirleitt að áfram­ haldandi lífi, annaðhvort lífverunnar sjálfrar eða afkomenda hennar . En eins og áður segir er hugvitið manninum nauðsynlegt í lífs baráttunni og mikilvægur hluti af því er siðfræðin . Skynsemisverur standa frammi fyrir vali og þurfa að tileinka sér hug ar­ starfsemi sem stuðlar að lífvænlegri breytni . Siðfræði Hluthyggjunnar byggist á rót­ tækri einstaklingshyggju . Hún lítur á hvern og einn einstakling sem skýrt af markaða einingu, sem lúti sínum eigin lög málum og hafi frjálsan vilja . Aðeins ein staklingar hugsa, þroskast og hafa vilja, en ekki þjóðir, stéttir eða smærri hópar . Nánar tiltekið aðhyllist Rand upplýsta sér hyggju (e . egoism) . Sérhyggja er sú sið­ fræðikenning að athafnir eigi að ráðast af eiginhagsmunum . En hinir upplýstu sérhyggjumenn sem Rand sér fyrir sér eru ekki ófyrirleitnir eða ruddalegir, heldur lúta þeir reglum skynseminnar og virða rétt annars fólks . Sérhyggja hennar er í raun nauðalík siðfræði 17 . aldar heimspekings ins Baruch Spinoza, sem var einn áhrifa mesti og merkasti hugsuður síns tíma . Ayn Rand hvetur fólk til sjálfselsku (e . selfishness), en gagnrýnir harkalega sjálfs leys ið (e . selflessness) og ósérplægnina (e . altru ism) sem margir siðfræðingar boða . Hún telur að sjálfsleysi og ósérplægni hafi óæski leg áhrif á menningu og stjórnmál: búi til bragðdaufa einstaklinga, dragi úr sköpunar krafti og leiði til pólitískrar hjarð hyggju og harð stjórnar . En sjálfselskan kemur að sjálf sögðu ekki í veg fyrir umhyggju og ást á öðru fólki . Sérhyggjumenn elska hins vegar ekki annað fólk þess vegna, heldur sín vegna: af því að annað fólk hefur merkingu fyrir það sjálft . Stjórnspeki Rands er eðlilegt framhald af siðfræðinni: réttindi einstaklinga skipa þar stóran sess . Það leiðir af siðfræði hennar að hver maður hefur tilkall til eigin lífs og rétt til þess að ráðstafa því eins og hann kýs, svo lengi sem hann gengur ekki á sama rétt annarra . Ein forsenda þess að einstaklingur hafi forræði á eigin lífi, að hennar mati, er að hann hafi forræði á eignum sínum . Ef eignarréttur er ekki virtur eru öll önnur réttindi berskjölduð . Rand telur að fólk hafi ekki tilkall til eigna og tekna annars fólks, heldur sé eignarrétturinn friðhelgur . Hún

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.