Þjóðmál - 01.03.2011, Blaðsíða 36

Þjóðmál - 01.03.2011, Blaðsíða 36
„Vegna frétta í fjölmiðlum um sölu á vá­ trygginga félaginu Sjóvá­Almennar trygg­ ingar hf . vill Fjármálaeftirlitið koma eftir­ farandi upplýsingum á framfæri . Umsókn frá umræddum fjárfestahópi, um heimild til að fara með virkan eignar­ hlut í Sjóvá­Almennum tryggingum hf ., barst Fjármálaeftirlitinu 4 . ágúst sl . Fjár­ festahópurinn hafði í hyggju að kaupa 33% af heildarhlutafé félagsins og öðlast enn fremur forkaupsrétt að allt að helmingi hluta fjár til viðbótar . Fjármálaeftirlitið hef­ ur, frá því að umsóknin barst, átt ítarleg sam skipti við umsækjendur og aflað frek ari gagna og skýringa . Fjármálaeftirlitið hef ur ekki tekið afstöðu til þess hvort um rædd­ um fjárfestahóp verði veitt heimild til að fara með virkan eignarhlut í vá trygginga­ félaginu . Þann 19 . nóvember sl . barst Fjár­ málaeftirlitinu beiðni frá um sækjand anum um að frestað yrði frekari af greiðslu um­ sóknarinnar þar sem óvissa ríkti um sölu félagsins . Athygli er vakin á því að samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi nr . 56/2010 þurfa virkir eigendur að uppfylla ýmis skilyrði, til að vera metnir hæfir til eiga og fara með virkan eignarhlut í vátryggingafélagi . Þau skilyrði lúta m .a . að því að eigendur hafi yfir að ráða fjárhagslegum styrk með tilliti til þess reksturs sem vátryggingafélagið hefur með höndum og að orðspor þeirra sé ekki með þeim hætti að það rýri traust félagsins .“ Í tilefni af þessari yfirlýsingu er vakin athygli á því að einstakt sé að Fjármála­ eftirlitið sendi frá sér opinbera tilkynningu um viðskipti sem ekki verða . 23. nóvember 2010. Hluthafafundur hald­ inn í Sjóvá og ný stjórn skipuð . Frosti Bergs­ son er nýr stjórnarformaður en Heimir V . Haraldsson, sem var stjórnarformaður Askar Capital og í stjórn Avant, heldur sæti í stjórn félagsins . Í tilkynningu frá fundinum segir að stjórnin hafi slitið söluferli vegna félagsins en muni kanna áhuga fjárfesta á félaginu . 6. desember 2010. Ríkisendurskoðun telur í athugasemd við ríkisreikning fyrir árið 2009 ámælisvert að viðskipti ríkisins vegna Sjóvár hafi ekki verið færð í bókhaldi ríkisins þegar þau fóru fram . Fjársýsla ríkisins gaf þá skýringu, segir í athugasemdinni, að þar sem viðskipti vegna Sjóvár hefðu flust til Eignarhaldsfélags Seðlabanka Íslands í árslok 2009 hefðu þau ekki verið bókuð hjá ríkissjóði . Ríkisendurskoðun óskaði eftir því við fjár­ málaráðuneytið að það gerði grein fyrir þeirri lagaheimild sem byggt var á við ákvörðun um eiginfjárframlag ríkisins til SAT eignarhaldsfélags . Ráðuneytið hefur ekki upplýst um þetta, segir í athugasemdinni . Ríkisendurskoðun telur því óljóst á hvaða lagaheimild ákvörðunin byggði . Íslenska ríkinu bar ekki lagaleg skylda til að bjarga félaginu . 16. desember 2010. Ríkisendurskoðun birtir athugasemd vegna eigin athugasemdar frá 6 . desember 2010 og segir: „Þess ber að geta að í tölvuskeyti til Ríkisendurskoðunar, dags . 10 . nóvember 2010, tók [fjármála]ráðuneytið fram að byggt hefði verið á lið 7 .20 í 6 . gr . fjárlaga 2009 sem veitir fjármálaráðherra heimild til að „kaupa af Seðlabanka Íslands þau viðskiptabréf sem bankanum hafa verið afhent til tryggingar veðlánum bankans og annast uppgjör þeirra krafna eins og hagkvæmast þykir .“ Ríkisendurskoðun leit svo á að í umræddu skeyti kæmi ekki fram efnislegt svar við fyrirspurninni . Því er ekki alls kostar rétt að ráðuneytið hafi ekki upplýst um á hvaða heimild ákvörðunin byggði, eins og segir í textanum hér að ofan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.