Þjóðmál - 01.03.2011, Blaðsíða 94
92 Þjóðmál VOR 2011
Í báðum bókum er í stórum dráttum
greint frá efni þess sem birt hefur verið
fyrir tilstuðlan WikiLeaks . Bækurnar
snúast þó í raun að mestu um umgjörðina .
Blaðamennirnir skrifa um málið frá sínum
sjónarhóli og hvernig þeir unnu að birtingu
skjalanna og að því viðhalda tengslum
við Assange . DB segir söguna frá sínum
sjónarhóli og lýsir innri átökum sínum
vegna tengslanna við Assange sem hann í
senn dáir og þolir ekki .
Hér skal engu spáð um hvert framhaldið
verður . OpenLeaks er að fara af stað undir
forystu DB með þátttöku tæknimannanna
sem sáu um WikiLeaks . Assange berst fyrir
sakleysi sínu og frelsi . Kristinn Hrafnsson
og ef til vill hinn sautján ára íslenski piltur
eru nánustu samstarfsmenn hans . Assange
býr á sveitarsetri velgjörðarmanns fyrir utan
London . Enn er óljóst hvort hann verður
framseldur til Svíþjóðar, þar sem þess er
krafist að hann svari til saka .
Helsti heimildarmaður WikiLeaks bíður
þess að verða dreginn fyrir herrétt í Banda
ríkjunum . Birgitta Jónsdóttir er flækt í mála
ferli í Bandaríkjunum vegna aðildar sinnar að
gerð myndbandsins „Collateral Murder“ .
Íslenska þýðingin á blaðamannabókinni
ber þess merki að hún hefur verið gerð í
flýti, frumtextinn er auk þess hraðsoðinn .
Farið er hratt yfir stórt svið en þó almennt
skilmerkilega . Bókin ber sama blæ og blaða
mannabækur um eigin afrek, að leitast er við
að gera meira úr hlutum en ella væri gert .
DB gaf bók sína upphaflega út á þýsku,
þannig að enski textinn sem ég las er því
þýddur, þótt hann beri þess ekki endilega
merki . Frásögnin er greinargóð og lýsingar
á staðháttum og atvikum á Íslandi eru á
þann veg að eykur traust íslensks lesanda á
nákvæmni höfundar .
Bók DB, eins og hún kom út í Banda
ríkjunum, er mun glæsilegri en blaða
manna bókin á íslensku, en engu er líkara
en að íslenski útgefandinn hafi leitast við
að útgáfa sín yrði sem ódýrust . Í hvorugri
bókanna er nafnaskrá sem er galli .
Útgáfa þessara tveggja bóka sýnir að
höfundar og útgefendur hafa talið markað
á heimsvísu fyrir þær vegna þeirrar athygli
sem WikiLeaks hefur vakið í fjölmiðlum .
Hugsanlegt er að þar sé sögð saga, sem er
í raun lokið .
Vopnabræður segja frá
Tony Blair: A Journey, Hutchinson, London
2010, 624 bls .
George W . Bush: Decision Points, Crown, New
York, 512 bls .
Eftir Stefán Gunnar Sveinsson
Nú fyrir jól komu út ævisögur tveggja mjög ólíkra manna, sem urðu að
banda mönnum . Tvíeykið Bush og Blair
hefur mátt þola ýmiss konar móðursýkisköst
af hálfu skoðanaelítunnar undanfarin ár, og
ýmis algild sannindi orðið til eins og að
Bush sé slef andi hálfviti og Blair kjölturakki
og „ný frjáls hyggjumaður“ sem hafi eyðilagt
breska Verka mannaflokkinn . Skemmst er
að segja frá því að ævisögur þeirra gefa allt
aðra mynd en al gildu sannindin sem höfð
hafa verið í hámæli .
Báðar bækurnar eiga það sameiginlegt að
vera vel skrifaðar á auðlæsilegri ensku, sér
staklega þó bókin um Bush . Báðar bækurnar
nota sem viðmið ákveðnar ákvarðanir eða
at burði til þess að varða leiðina og báðir
höf undar eru greinilega vel meðvitaðir um
að afar fáir hafa áhuga á að lesa ævisögu
stjórn málamanns til þess að fá langa lýsingu
á uppvexti og skólagöngu hans, og fara því
hratt þar yfir sögu .
George W . Bush er efalaust einn um deild
asti forseti sem Bandaríkjamenn hafa átt, og