Þjóðmál - 01.03.2011, Blaðsíða 39
Þjóðmál VOR 2011 37
seðlabankastjóri bundinn að lögum . Hún
segist fús til að eiga samstarf um að breyta
lög unum . Gunnar Bragi bendir á að Már
hafi setið fyrir svörum sem stjórnaformaður
í ESÍ . Hann spyr hvort þagnarskylda hans
sem seðlabankastjóra nái til hans sem
stjórn ar formanns . Jóhanna segir að Már
hafi að sínu mati setið nefndarfundinn sem
seðla bankastjóri, hún sé hins vegar að láta
skoða reglur um upplýsingamiðlun vegna
einka væðingar .
3. febrúar 2011. Seðlabanki Íslands er
bund inn þagnarskyldu um allt það er
varðar hagi viðskiptamanna bankans, sam
kvæmt lögum um Seðlabanka Íslands, segir
í tilkynningu bankans til mbl.is Þar af leið
andi hafi Már Guðmundsson ekki getað
upplýst um öll þau atriði sem nefndarmenn
viðskiptanefndar Alþingis inntu hann eftir
á fundi á 28 . janúar .
Seðlabankinn hafnar gagnrýni á það
hvern ig hann hefur haldið á Sjóvársölu
ferlinu og segir í yfirlýsingu til Morgun-
blaðs ins: „Söluferlið var opið og gagnsætt
þar sem áhugasömum aðilum sem upp
fylltu tiltekin skilyrði var boðið að gera
óskuld bindandi tilboð og í kjölfar þess var
haldið áfram viðræðum við þá aðila sem
voru með hagstæðasta tilboð . Þetta er eitt
ferli sem hófst í byrjun síðasta árs og leitt
hefur til þess kaupsamnings sem nú hefur
verið greint frá .“
4. febrúar 2011. Á visir.is birtist frétt eftir
Þorbjörn Þórðarson:
„Heiðar Guðjónsson, sem fór fyrir fjár
festahópnum [í Sjóvá], segir að lögmaður
sinn hafi komið á fund viðskiptanefndar
Alþingis og aflétt trúnaði og gefið leyfi
fyrir því að upplýsingar sem snerta hann og
félög í hans í eigu verði veittar nefndinni .
„Gagnvart þingmannanefndinni þá
afléttum við öllum trúnaði sem við kemur
þessum málum því við vildum alls ekki
að Seðlabankinn væri að bera fyrir sig
einhvers konar þagnarskyldu gagnvart
okkur því gagnvart þessari nefnd þá er
hún ekki til staðar,“ segir Heiðar . Hann
segir að formlega hafi verið farið yfir þetta
á fundi nefndarinnar áður en fulltrúar
Seðlabankans komu á fund hennar og
nefndin hafi samþykkt þessa tilhögun .
Fréttastofa óskaði eftir viðbrögðum frá
Seðlabankanum vegna málsins en í svari frá
bankanum segir að Seðlabankinn hafi ekki
fengið þær upplýsingar áður að lögmaður
Heiðars hafi aflétt leynd . Þá hafi engin
formleg staðfesting, þ .e skrifleg, borist
bankanum um þetta . Berist slík staðfesting
verði málið skoðað . Þá vill Seðlabank inn
koma því á framfæri að Ríkisendurskoðun
hafi fengið upplýsingar um söluferlið á
Sjóvá eins og það stóð um áramót og ekki
gert athugasemdir . Þá segir bankinn að það
sé bankaráð Seðlabankans sem Alþingi kýs
sem hafi eftirlit með starfsemi bankans .
Í ljósi þess síðastgreinda spurði frétta
stofa hvort Seðlabankinn væri með þessu
að segja að hann dragi í efa heimildir við
skipta nefndar Alþingis til að kalla eftir upp
lýsingum, en þau svör fengust að bankinn
vildi á þessu stigi ekki tjá sig um hlutverk
viðskipta nefndar Alþingis en ljóst væri að
bankinn teldi sér ekki heimilt að afhenda
viðskiptanefnd ákveðnar upp lýsingar sem
hún óskaði eftir .“
4. febrúar 2011. Seðlabankinn sendir frá
sér opinbera yfirlýsingu í tilefni umræðu á
Alþingi og víðar sem sé með þeim hætti að
ekki verði undan því vikist að bregðast við .
Lengst hafi umræðan gengið þegar þess sé
krafist „að seðlabankastjóri fremji lögbrot
en víki ella!“ Sú staðreynd að Seðlabankinn
megi ekki samkvæmt lögum upplýsa um
alla þætti þessa máls hafi væntanlega að
ein hverju leyti alið á tortryggni en það hafi