Þjóðmál - 01.03.2011, Page 54
52 Þjóðmál VOR 2011
drepa stór dýr . Íslendingar þekkja annað
dæmi um þokkafullt risadýr: Hvalinn . Þótt
þeir tveir hvalastofnar, sem Íslendingar
veiða úr, langreyður og hrefna, sé hvorugur
í útrýmingarhættu, berst fjöldi manns um
heim allan af alefli gegn slíkum veiðum .8
Engu er líkara en Orwell leggi að jöfnu
þjáningar fílsins, eftir að hann er skotinn,
og mannsins, sem fíllinn hafði troðið undir .
Hann lýsir líka áhorfendaskaranum af lítilli
samúð . „Indverjarnir voru farnir að koma
með körfur og poka, áður en ég fór, og var
mér sagt, að þeir hefðu ekki skilið annað eftir
en beinin af fílnum um kvöldið .“ Hvarflar
ekki að Orwell, að þetta fátæka fólk sé sumt
hungrað? Að það hafi fengið kærkomna
magafylli? Það er ekki allt á föstum launum
eins og breskur lögreglumaður .
Sennilega er rétt, að nýlendustjórn spilli
ekki síður húsbændum en hjúum . Sjálfur
er Orwell dæmi . Þegar grannt er skoðað,
gætir nokkurs yfirlætis í lýsingu hans á því,
hvernig sálarlíf lögreglumannsins sé flóknara
en áhorfendaskarans, sem telur fílinn
réttdræpan . Eðlilegt hlutverk lögreglumanns
er að vernda fólk gegn vágestum eins og fíl,
sem ærist, jafnar hús við jörðu og treður
mann til dauðs . Hins sama hroka verður vart
á okkar dögum, þegar umhverfisöfgamenn
vilja banna öll viðskipti með fílabein, þótt
kostnaður af slíku banni lendi nær óskiptur
á örsnauðum íbúum á fílaslóðum . Það er
að vísu rétt, að fílar eru í útrýmingarhættu
í Asíu . En í Afríku eru tíu fílastofnar öflugir
og ekki í útrýmingarhættu . Hvers vegna
mega íbúarnir á þeim slóðum ekki nýta þá?
Þeir geta einkum gert það á tvennan hátt,
með því að selja auðugum ferðamönnum
leyfi til að veiða fíla og með því að selja síðan
fílabeinið, sem eftirsótt er til útskurðar . Með
því væri fjölda fíla haldið innan hæfilegra
marka, svo að þeir yrðu ekki of frekir til
fóðurs og trufluðu ekki hina sjálfbæru þróun
í lífríkinu .9 Hindúar trúa því, að kýrin
sé heilagt dýr . Bannað er að slátra kúm á
Indlandi . Vesturlandamenn brosa að þessum
hugsunarhætti . En vandséð er, hvers vegna
friða ætti fíla (eða hvali) frekar en kýr . Er hik
Orwells við að skjóta fíl ekki jafnfrumstæð
og tregða hindúans til að slátra kú?10
Tilvísanir
1 Hún kom þá út hjá Prentsmiðju Austurlands (Lárusi Jóhann
essyni alþingismanni) undir nafninu Félagi Napóleon, en 1985
sem eitt af Lærdómsritum Hins íslenska bókmenntafélags, og
skrifaði Þorsteinn Gylfason heimspekingur formála . Hafði
Þorsteinn áður hafnað formála eftir Arnór Hannibalsson
prófessor, af því að þar hafði verið deilt á Halldór K . Laxness
fyrir lof hans um Ráðstjórnarríki Stalíns . Sá formáli Arnórs
birtist í Frelsinu, 1 . hefti 7 . árg . (1986), 29 .–34 . bls .
2 Ungir sjálfstæðismenn undir forystu Geirs Hallgrímssonar,
sem andsnúnir voru kommúnisma, létu þýða bókina og gefa út
hjá Stuðlabergi . Hún var endurútgefin 1983 .
3 George Orwell: „Þegar ég skaut fílinn,“ þýð . Halldór
Stefánsson, Rauðir pennar, ritstj . Kristinn E . Andrésson, III .
árg . (1938), 44 .–54 . bls . Upphaflega birtist smásaga Orwells á
ensku undir heitinu „Shooting an Elephant“ í New Writing, 2 .
hefti 1 . árg . (1936) .
4 Hér er Birma í þýð . Halldórs Stefánssonar breytt í Búrma,
sem er viðtekið nafn á íslensku . Herforingjastjórnin í landinu
kallar það Myanmar .
5 Halldór Stefánsson þýðir „Empire“ ýmist sem einveldi eða
keisara dæmi, en nákvæmara væri auðvitað að kalla það breska
heims veldið eða Bretaveldi .
6 William Graham Sumner: „The Conquest of the United
States by Spain,“ On Liberty, Society, and Politics. The Essential
Essays of William Graham Sumner, ritstj . Robert C . Bannister
(Indianapolis, 1992), 272 . bls .
7 Um breska heimsveldið er fróðleg bók Nialls Fergusons,
Empire (London, 2002) .
8 Nytjastofnar sjávar 2008/2009, skýrsla Hafrannsóknar
stofnunar (Reykjavík, 2009), 89 .–91 . bls .
9 Ike Sugg og Urs Kreuter: Elephants and Ivory (London, 1994) .
10 Tvær aðrar bækur Orwells hafa nýlega komið út í íslenskum
þýðingum sem Lærdómsrit Hins íslenska bókmenntafélags,
Í reiðuleysi í París og London 2005 og greinasafnið Stjórnmál
og bókmenntir 2009, báðar í þýðingu Ugga Jónssonar . Í
Stjórnmálum og bókmenntum er hvergi minnst á, að tvær
grein arnar þar höfðu birst áður í íslenskum þýðingum, annars
vegar „Þegar ég skaut fílinn“ 1938, sem hér er rætt um, hins
vegar „Hvers vegna hann skrifar“ (útdráttur) í Alþýðublaðinu
31 . janúar 1947 . Sigurður A . Magnússon þýddi einnig grein
Orwells um, hvers vegna hann skrifaði, og flutti í Ríkisútvarpinu
28 . september 1961 . Útgefandi tekur ekki heldur upp í
greinasafnið merka ritgerð eftir Orwell um Leiðina til ánauðar
eftir F . A . von Hayek, en hún birtist í íslenskri þýðingu minni í
Frelsinu, 2 . hefti 5 . árg . (1984), 156 .–166 . bls . Þá má nefna, að
Alþýðublaðið birti ritgerð e . Orwell, „Marokko — fátækt land,
en hamingjusamt“ 6 . febrúar 1943 .
_____________
Ritgerð þessi er þáttur í rannsóknarverkefninu „Umhverfisvernd,
eignaréttindi og auðlindanýting“, sem Hannes H. Gissurarson
hefur umsjón með í Háskóla Íslands.