Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2015, Blaðsíða 35
6.9. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 H austið er að skella á með öllum sínum flottheitum og sparigugg- urnar eru alveg að tryllast eins og lög gera ráð fyrir. Upp vakna náttúrlega mjög mikilvægar spurningar um hvernig þær eiga að taka á móti nýrri árstíð með glans? Bæði smáhest- ar og arabískir veðhlaupahestar þurfa að finna út hvernig þeir ætla að brokka þetta haustið. Gullið hefur sjaldan verið meira áberandi. Spariguggurnar eru samt ekki farnar að éta gull í staðinn fyrir chia-fræ – það er 2015, ekki 2007. Nýj- ustu rannsóknir hafa heldur ekki leitt í ljós að gull sem fæða sé sérstaklega grennandi. Svo má ekki gleyma því í glundroða hversdagsins að hér varð hrun. Smáhestinum fannst mikilvægt að minnast á þetta því hann hafði á tilfinningunni að það væri örlítið búið að fenna yfir farinn veg. Sérstaklega þegar allir og amma þeirra, IceHot1 og allir vinir hans flykktust til Hollands til þess að horfa á karla sparka bolta sín á milli. Á meðan á þessum gjörn- ingi stóð voru drukkin heilu höfin af bjór og þeir allra villtustu létu mála sig í framan. Smáhestur- inn velti því fyrir sér þegar hann horfði á hvert Snapchatið á fætur öðru hvar þetta fólk hefði fengið peninga … Eru bara allir farnir að hella í sig fyrir allan peninginn á yfirdrættinum? Varla keyrir 7% launa- hækkun upp þessa stemningu eða hvað? Hvað varð um allt fólkið sem gekk sperrt um bæinn í lopapeysum og tók slátur? Það vill náttúrlega engin sparigugga láta standa sig að því að vera eins og ný- ríkur smáborgari til fara og heldur ekki eins og uppgjafa rappari (eða starfs- maður listdansklúbbs sem starfar eftir miðnætti). Það er engin að fara að hlaða á sig gullkeðjum og setja hringi á hvern fingur og það er heldur engin að fara að skreyta bílinn sinn með álímdum gull- röndum. Það mætti samt setja þessar gullrendur á einn vegg eða kannski tvo ef spariguggan er í miklu stuði … mjög miklu stuði! Það þarf að stíga svolítið varlega til jarðar því að skilin á milli vandaðs og óvandaðs eru óvenju óskýr þegar gullið er annars vegar. Það er auðvelt að falla í gryfju nýríka smáborgarans ef ekki er farið nógu gætilega. Gullið kemur inn með örlítið nýjum hætti núna. Gullrennilásar á flíkum eins og leðurjökkum og á uppháum stígvélum mega lifa. Það er líka í lagi að kaupa sér tösku með gullfestingum og svo fara vegleg gullarmbönd náttúrlega ekki úr tísku. Gulli skreyttir fylgihlutir eins og símahulstur og sólgler- augu geta keyrt upp stemninguna svona áður en rútínan skellur á með öllum sínum hafragraut, heimalærdómi og drunga. Spariguggan sem hér skrifar gekk skrefinu lengra um daginn og keypti gullhöldur á eldhúsinnréttinguna og svo tók hjartað aukaslag þegar hún rakst á gulllitaða blómapotta í Lundúnum sem hún varð að eignast. Nú eru þessir blómapottar fáanlegir á Íslandi og því ber að fagna. Þegar þessi sparigugga ætlaði að fara að kaupa sér gullveggfóður var hún stoppuð af. Arabíski veðhlaupahesturinn, vinkona hennar, sagði að gullveggfóðrið myndi breyta ásýnd heimilisins í ódýran næturklúbb í vafasömum hverfum stórborga. Þetta rugl yrði að stoppa og það strax. Spariguggan fór því tóm- hent heim og er ennþá að reyna að finna veggfóður sem passar hennar vandaða lífsstíl – eða þannig. martamaria@mbl.is Það þarf að stíga varlega til jarð- ar þegar gullið er annars vegar. Gullfestingar á kápu frá Michael Kors gefa tóninn fyrir haustið. IceHot1 mætti á leik- inn í Amsterdam. Gullfestingar á skóm og tösk- um verða mjög heitar í haust. Gull fer ekki vel í maga … Þessir gullblómapottar fást í netversluninni Winston Living og hafa verið að slá í gegn. Nú er komið að fjórða bílnum sem við gefum á þessu ári í áskriftarleik Morgunblaðsins. Þann 22. október drögum við út stálheppinn áskrifanda sem eignast sjálfskiptan Suzuki Vitara GLX sportjeppa að verðmæti 5.440.000 kr. Sjáðu meira á mbl.is/askriftarleikur Sjáðu meira á mbl.is/askriftarleikur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.