Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2015, Blaðsíða 31
6.9. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31 Bókasöfn eru jafnan skemmtilegir staðir fyrir fjölskylduna þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Bókasafnsdagurinn verður haldinn í fimmta sinn þriðjudaginn 8. september til að vekja athygli á mikilvægi bókasafna og upplýsingamiðstöðva. Farðu á bókasafnið* Ef æskan bregst þeirri ættjörð semhenni var gefin er ekkert í heiminumtil sem bjargar því landi. Guðmundur Böðvarsson – Í Bifröst Fjölskyldumeðlimir eru: Elín Esther Magnúsdóttir, dagskrárstjóri Útilífsmiðstöðvar skáta Úlfljótsvatni, Helen Garðarsdóttir, móttökustjóri í Frost og Funa, Hveragerði, og Eldar Elí Helenarson, tveggja ára. Þátturinn sem allir geta horft á? Líklega er sam- anlögð ánægja allra fjölskyldumeðlima mest þegar við horfum á Kung Fu-pöndu. Eldar hefur haldið mikið upp á þá þætti síðasta árið og við göml- urnar höfum gaman af húmornum í þeim. Has- arinn í þáttunum er reyndar að aukast dálítið og litli maðurinn verður stundum of hræddur til að horfa. Þessa dagana fer skjátími hans því frekar sitt á hvað í Dýrin í Hálsaskógi eða Monsters vs. Aliens. Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Við getum sameinast yfir góðu kjöti, nán- ast af hvaða dýri sem er, en gott lamb slær öllu við. Drengurinn hefur einfaldan matarsmekk og vill bara kjöt og sósu, en við reynum að lauma smá fjölbreytni í matseðilinn inn á milli. Í löngum bíltúrum eða þegar tími er af skornum skammti slá SS pylsur alltaf í gegn hjá fjölskyldunni. Við erum ósköp einfalt fólk. Skemmtilegast að gera saman? Eins og með annað sem gerist á heimilinu litast þetta óneitanlega af því að yngsti fjölskyldumeðlimurinn er tveggja ára. Hann er mikill útigarpur og elskar langa göngutúra og „hjólagöngutúra“ (hjólaferðir). Hann á ekki langt að sækja það og okkur líð- ur öllum vel úti saman á góðum degi. Borðið þið morgunmat saman? Það kemur mjög sjaldan fyrir. Eldar fær morgunmat í leikskólanum á virkum dögum og önnur okkar er yfirleitt að vinna um helgar. Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Þegar illa viðrar til útiveru setjum við stundum tónlist á fóninn og skiptumst á að dansa á fullu við Eldar í stofunni. Við höfum nefnilega ekkert roð í hann nema á vöktum, hann hefur miklu meira úthald en við í svona hamagangi. Annars gengur sameiginlegur tími okkar mikið út á það sem strákurinn hefur gaman af og þar eru baðferðir og bílaleikur efst á lista. EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR „Við erum ósköp einfalt fólk“ Elín Esther, Eldar Elí og Helen. Það að eiga ung börn ætti ekki að stoppa fólk í að fara út að borða með fjölskyldunni. Bonappetit.com gefur níu góð ráð, sum gamansamari en önnur, um hvernig megi njóta þess að fara með börnin á veitingastað. 1. Bókaðu fyrr Bókaðu borð klukkustund fyrr en venjulega. (Hringdu svo aftur og pantaðu klukkustund fyrr en það). „Því miður, við eigum bara laust klukkan hálf sex“ ætti að vera fagnaðarefni en ekki neikvætt. Það er auðveldara að fá borð snemma á vinsælum stöðum og kannski að- eins færra fólk til að hneykslast á því þegar dóttir þín hellir spagettíi yfir hvítu buxurnar þínar. 2. Láttu börnin panta sjálf Andy Ward skrifar að árum saman hafi stelpurnar litið á hann eða mömmu sína þegar þjónninn spurði hvað þær vildu. Þau ákváðu eftir það að veitingastaður væri góður staður til að læra að horfa í augun á fólki og nota röddina til að panta sjálfur. 3. Taktu básinn Hann er meira prívat, þægilegri og skemmtilegri fyrir börnin. Það er líka auðveldara að fela sig ef börn- in haga sér illa. 4. Helst ekki nota græjur Þetta ráð er kannski ekki vinsælt en það er bara of auðvelt að rétta barni iPad og halda svo áfram að borða sjálfur. En það er alveg jafn auðvelt (en kannski ekki eins áhrifaríkt) að láta það fá spilastokk eða annað sem er ekki rafrænt, til dæmis litabók. Foreldrar ættu sömuleiðis að sýna gott fordæmi og láta símana sína vera. 5. Pantaðu vín þegar börnin eru lítil Ward segir að foreldrar eigi að fá sér vínglas eða bjór með matnum á meðan þeir komist upp með það. Þegar börnin verði eldri fái þau fræðslu í skólanum og fræði síðan foreldrana um skaðsemi víns og breyti þeim þar með í fólk sem drekki í laumi í bílskúrnum. 6. Pantaðu franskar Það virkar alltaf. Flestum börnum finnast franskar góðar. 7. Fáið ykkur eftirréttinn heima Það getur hreinlega tekið of langan tíma að bíða eftir eftirréttinum á veitingastað. Börnin haga sér vel framanaf en undir lokin getur hver mínúta orðið erfiðari. Þá er betra að fá sér ís eða mjólkurhristing með Oreo, eins og Ward stingur uppá, heima í rólegheitum. 8. Pantaðu eitthvað nýtt Biddu börnin um að fá sér einn bita af einhverjum nýjum rétti ef þess er kostur. Það getur verið auðveldara að læra að meta eitt- hvað nýtt og spennandi á nýjum stað. Ward mælir með gnocchi og segir það vera barnvænan mat. 9. Ekki fara með þau á stað með Michelin-stjörnu Það er nema þú hafir gaman af því að kveikja í peningum. Andy Ward og kona hans Jenny eru líka með bloggið dinneralovestory.com. Fjölskyldan fer út að borða Getty Images/iStockphoto ÞAÐ GETUR VERIÐ FLÓKIÐ AÐ FARA MEÐ UNG BÖRN ÚT AÐ BORÐA. HÉR ERU NÍU RÁÐ SEM ÆTTU AÐ HJÁLPA. UMFRAM ALLT EKKI LÁTA YKKUR FALLAST HENDUR HELDUR DRÍFIÐ YKKUR SAMAN Á VEITINGASTAÐ. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Plankaparket í miklu úrvali Burstað, lakkað, olíuborið, hand- heflað, reykt, fasað, hvíttað... hvernig vilt þú hafa þitt parket? Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.