Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2013, Síða 28
Guðrún Guðmundsdóttir frá Melgerði (1889-1982) í Fellshreppi
á Ströndum ólst upp við mikla fátækt, en foreldrar hennar voru jafnan
í húsmennsku. Síðar flutti hún til Hvammstanga, þar sem hún gekk í
hjónaband. Guðrún eignaðist ekki börn. Hún var lömuð í rúm þrjátíu ár
og rúmföst. Æxli í höfði gerði það að verkum að hún þurfti að fara í stóra
aðgerð sem gerð var á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn. I kjölfar aðgerðarinnar
var Guðrún ófær um að stíga í fæturna. Það vekur athygli að í höfundatali
í sálmabókinni frá 1972 er hún kynnt sem „sjúklingur á Elliheimilinu
Grund“.
Eftir Guðrúnu kom út fjöldi ljóðabóka. Fyrsta ljóðabókin kom út árið
1944 en sú síðasta 1972. Þar að auki birtust ljóð eftir hana annars staðar,
m.a. í Kirkjuritinu. Árið 1962 kom út lítil endurminningabók eftir Guðrúnu
sem hún kallaði Endurskin?2 í bókinni eru frásögur og ljóð þar sem hún
m.a. segir frá því þegar hún lá mikið veik á sjúkrahúsi og eiginmaður hennar
veiktist og dó. Guðrún var þekkt sem mikil bæna- og trúkona. Trúin er
áberandi í öllu sem hún skrifar og þar kemur skýrt fram að trúin hjálpar
henni að takast á við sorgir og áföll í lífinu.33
Sálmur Guðrúnar var nýr í sálmabók íslensku kirkjunnar sem kom út
1972. Sálmur 140 er tileinkaður skírdagskvöldi og hefur sterka skírskotun
til altarissakramentisins, sem gjarnan er haft um hönd í skírdagsguðsþjón-
ustum. I sálminum þakkar höfundur frelsaranum fyrir að gefa líkama sinn
og blóð til þess að greiða fyrir sekt hennar og opna henni leið að blessunar-
brunni Drottins.
Á skírdagskvöld ég kem til þín,
sem kvittað hefur brotin mín,
ég kem sem barn og bið í trú,
að blessun enn mér veitir þú.
Þú gafst þitt hold, þú gafit þitt blóð,
því geng ég rósum prýdda slóð,
32 Guðrún Guðmunsdóttir, Endurskin, Reykjavík: Prentsmiðja Jóns Helgasonar, 1962. Um bókina
er fjallað í lokaverkefni til BA-gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði á Félagsvísindasviðí, júní
2011. Sjá: Gunnur Inga Einarsdóttir, Sjálfiœvisögur islenskra kvenna. Bókaskrá. Sótt 16. september
2013 af http://skemman.is/stream/get/1946/7881/20534/1 /BA_b%C3%B3kaskr%C3%Al_
um_sj%C3%Allfs%G3%A6vis%C3%B6gur_%C3%ADslenskra_kvenna.pdf
33 Þorarinn Elís. Jónsson, „Guðrún Guðmundsdóttir frá Melgerði", íslendingaþœttir Tímans, 32.
tbl./1982, bls. 3. Sótt 18. september 2013 af http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageld=3576435
26