Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2013, Page 202
1. Gera sér far um að mæta hverjum einstaklingi í kærleika Krists með
virðingu eftir því sem skilningur og samviska bjóða hverju sinni og láta
sér annt um líðan og velferð annarra.
2. Gæta vandvirkni, samviskusemi og heiðarleika í starfi og að orð og
athæfi samrýmist starfi og umhverfi, stað og stund.
3. Virða þagnarskyldu um hvað eina sem þau verða áskynja í starfi og
leynt skal fara.
4. Gæta þess að vanvirða ekki tilfinningar og tiltrú skjólstæðinga sinna.
5. Fara ekki í manngreinarálit og veita þeim kirkjulega þjónustu sem leita
eftir henni.
6. Þekkja og virða takmörk sín og sækja sér faghandleiðslu og sálgæslu.
7. Misnota aldrei aðstöðu sína eða ógna velferð skjólstæðings, svo sem
með óviðeigandi hegðun, orðfæri, viðmóti, kynferðislegri eða annars
konar áreitni.
8. Minnast þess að mörk einstaklinga eru mismunandi, svo sem að snert-
ing getur auðveldlega misskilist eða valdið óþægindum.
9. Stofna ekki til óviðeigandi sambands við skjólstæðing.
10. Leita eftir símenntun, fræðslu og uppbyggingu í trú og kristnu sam-
félagi.
11. Sýna ábyrgð og trúmennsku í meðferð fjármuna.
12. Gæta hófs í umgengni við áfengi og vera öðrum fyrirmynd í þeim
efnum. I skipulögðu æskulýðsstarfi og í ferðum með börnum og ung-
mennum er óheimilt að neyta áfengis og annarra vímuefna.
13. Sýna ábyrg rafræn samskipti og netnotkun.
14. Vera ávallt upplýst um lög og reglur sem gilda um börn og unglinga og
að skylt sé að tilkynna barnaverndaryfirvöldum ef ætla má að barn búi
við óviðunandi aðstæður eða er þolandi ofbeldis.
15. Vera meðvituð um að þau hafi sterkari stöðu en barnið sem þau vinna
með. Ekki má undir nokkrum kringumstæðum misnota aðstöðu sína.
16. Gæta varfærni og hlífðar í samskiptum við börn og skjólstæðinga í við-
kvæmum aðstæðum.
17. Sýna árvekni gagnvart einelti, áreitni og annarri óviðeigandi hegðun.
18. Notfæra sér ekki vitneskju eða tengsl sem verða til á vettvangi þjónust-
unnar í ábata- eða hagsmunaskyni.
19. Gæta þess að eiga gott samstarf við samstarfsfólk og yfirmenn, stuðla
að eindrægni og samhug og gæta virðingar í umtali.
20. Sýna jafnan trú og siðum annarra umburðarlyndi og forstöðumönnum
og prestum annarra trúfélaga og kirkjudeilda virðingu.
21. Gæta þess að vera málefnaleg og gæta varkárni í ummælum um kenn-
ingarleg og guðfræðileg mál, hvort sem er í samræðum eða opinberlega.
Almenn ákvœði
Miða skal við að þeir sem starfa með eða hafa umsjón með börnum og
ungmennum í æskulýðsstarfi séu lögráða og hafi þjálfun, menntun, þekkingu
eða reynslu til starfsins.
200