Félagsbréf - 01.02.1959, Síða 41

Félagsbréf - 01.02.1959, Síða 41
BÆKUR Dr. Jón Jóliannesson: ÍSLIiAlH.VCA SAGA Fyrirlestrar og ritgerSir um tíma- biliS 1262—1550. Almenna bóka- jélagiS gaf út. í sögu Islendinga hefir þjóð’veldisöldin löngum verið sveipuð mestum ljóma í nieðvitund fslendinga og raunar allra, sem nokkur kynni hafa liaft af íslenzkri sögu og menningu. Af þeirri ástæðu hafa önnur tímabil lent í skugga þessa glæsilega tíma. Menning þjóðveldisins var svo einstæð, að hún hefir hvarvetna vakið bæði undrun og aðdáun, og hrun þessarar menningar og lirun og endalok þjóðveldisins lrafa orðið mörgum um- hugsunar- og rannsóknarefni, en margir bafa látið staðar numið, er því tímabili lauk. Þess vegna hafa raunir og barátta fslendinga á næstu öldum orðið útund- an við sögurannsóknina og ber þó fleira t>l þcss. Heimildirnar urn þjóðveldisöld- ma hafa laðað' margan til umhugsunar °g rannsókna, en annála og fornbréf skortir mikið af því aðdráttarafli, sem lieimildir þjóðveldisins hafa í sér fðlgið. Þegar dr. Jón Jólrannesson kom að Háskóla íslands, var aðkoman að mörgu leyti lík, og þegar komið er að lítt numdu landi í sögurannsóknunum, eink- um eftir 1262, hvarvetna blöstu við- fangsefnin við. Dr. Jón tók þegar til starfa og vann, meðan dagur entist. Hanu var ákaflega glöggskyggn og gagn- rýninn á heimildir, ég lield, að liann liafi ekki metið neinn sagnfræðing eins mikils og Ara fróða, enda gat hann hans oft í fyrirlestrum sínum. Skömmu fyrir andlát hans kom bók hans um þjóð- veldisöldina út, en honum entist ekki aldur til að vinna að útgáfu annars bind- is. Það varð því að ráði, að gefa út fyrirlestra hans um þetta tímabil, en það var efni í tun það' bil hálft bindi af sömu stærð og bindið um þjóðveldis- öldina. Síðan var bætt við ritgerðum dr. Jóns, sem uin þessa tíma fjalla, og þar ineð sameinað á einn stað, það sem hann hafði ritað um þetta skeið íslandssögunnar. Þórhallur Vilmundar- son cand. mag. var fenginn til að búa þelta bindi undir prentun og liefir gert það með hinni mestu prýði og ekki sparað sér neina fyrirhöfn, að allt væri sem bezt og traustast af hendi leyst. Það leið'ir af sjálfu sér, að bókin er ekki eins heilsteypt og annars liefði mátt vænta, ef höfundur hefði sjálfur gengið frá henni til prentunar. Þar sem fyrir- lestrar og einstakar ritgerðir fjalla um sama efni, er að vísu um nokkrar end- urtekningar að ræða, en þar getur að líta vinnubrögð dr. Jóns hvernig liann

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.