Félagsbréf - 01.02.1959, Side 42

Félagsbréf - 01.02.1959, Side 42
40 FELAGSBREF kryfur mistraustar heimildir og ber þær saman til að liafa það sem réttara reyn- ist. I kennslu sinni brýndi dr. Jón fyrir nemendum sinum, að undirstaða allrar sagnfræði væri, að afla sem öruggstra heimilda, sem rannsóknirnar væru síðan byggðar á, og ritgerðirnar bera þess glöggt vitni, að liann breytti í samræmi við það, sem ltann kenndi, og fór það mjög að líkum, er jafn heilsteyptur maður átti blut að. Fyrirlestrarnir skiptast í þrennt: Fyrst er saga konungsvaldsins og alþingis. Þar segir frá lögbóknnunt Járnsíðu og Jóns- bók, en síðan gerð grein fyrir þeint breyt- ingum, sem urðu á stjórnarskipuninni við lögtöku þeirra. Síðan greinir frá réttinda- baráttu íslendinga og mótspyrnu þeirra gegn konungsvaldinu. Hér hefir dr. Jón gert merkilegar rannsóknir, sem bezt má sjá með því að athuga ritgerðina Réttinda- barátta Islcndinga í upphafi 14. aldar, sem prentuð er síðar í bókinni. Þá segir frá tekjum konungs af landinu til siða- skipta, og að endingu sagt frá embættis- mönnunt konungs fram til siðaskipta. Þetta yfirlit uin sögu konungsvalds og alþingis er all rækilegt og þó sérstak- Iega skýrt og greinargott. Saga kirkj- unnar verður næst fyrir bendi. Þar segir fyrst frá Staðamáluin liinum síðari og eru þeim gerð rækileg skil. Síðan segir frá Kristinrétti ltinum nýja og síðan er haldið áfratn og sagt frá liinum erlendu biskupum og þeim ólestri, sem ríkti í kirkjumálum íslendinga á þessu tíma- bili. Síðasti þáttur kirkjusögunnar fjallar um deilur Ólafs biskups Rögnvaldssonar og leikmanna um kirknamál, en fræg- astar þeirra eru Hvassafellsmál, og með þeim þætti lýkur kirkjusögunni. Þriðji og síðasti þátturinn í fyrirlestr- unum er svo verzlunar- og bagsagan. Henni er skipt í 3 tímabil. Fyrsta tíma- bilið er frá 1262—1412, þá kemur annað tíinabilið frá 1412—1490, og loks liið þriðja frá 1490—1547. Þessi þáttur er mjög skemmtilegur og varpar skýru Ijósi inn í myrkur þessara alda. Hér segir frá því, hversu sjávaraflinn verður aðal- útflutningsvaran og átökunum, sem áttu sér stað um liann meðal útlendinga og þeim breytingum, sem verða í þjóðlífinu við þessi tímamót. I sambandi við verzl- unina er svo vikið að skipaeign Islend- inga, kaupsetningum, vog og máli, út- fluttum vörum o. fl. Með þessu lýkur fyrirlestrunum. Því verður ekki neitað, að margan mundi fýsa, að hér hefði fylgt með þætt- ir úr menningar- og atvinnusögu þessa tímabils. Dr. Jón bafði samið nokkur drög að atvinnusögu yfir allt túnabilið frá uppbafi til siðaskipta, en þau voru of brotakennd til þess, að rétt þætti að birta þau. En vonandi líðtir ekki á löngu, áður en úr því verður bætt. Síðari Iiluti bókarinnar eru svo rit- gerðir, sem áður liafa birzt á prenti á víð og dreif í tímaritum. Þær fjalla allar um menn og átburði á þessu timabili, og verða þess vegna til að varpa skýrara ljósi á einstöku atburði og gera gleggri grein fyrir gangi mála og lífi einstak- linga. Ritgerðir þessar eru 6 að tölu. Lengst þeirra og viðamest er „Réttinda- barátta íslendinga í uppbafi 14. aldar“, sem áður liafði birzt í Safni til sögu íslands 1956. Þessi ritgerð er fyrir margra bluta sakir nterkileg. Húu segir merkilega sögu af mótspyrnu Íslendinfíu gegn konungsvaldinu, og sýnir okkur jafnframt vinnubrögð dr. Jóns, sem lær- dóinsríkt er að kynna sér sem bezt. Reisubók Bjarnar Jórsalafara og I

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.