Félagsbréf - 01.02.1959, Page 47

Félagsbréf - 01.02.1959, Page 47
FELAGSBREF 45 vera nýtt fyrirbæri þótt segja megi að hún sé heldur fáséð í íslenzkum bók- menntum, að minnsta kosti i því formi sem Loftur Guðmundsson beitir benni. Það er að mínum dómi einkum tvennt sem Loftur deilir á í þessari sérkennilegu bók sinni: hvernig véltæknin og sívax- andi, formúlukennd einliæfing mannsins fjötrar bann í sínum eigin uppgötvunum og sem væntanleg afleiðing af þessu, hvernig sérhverri sjálfstæðri bugsun og tilfinningu er bolað burt. Mennskar til- finningar eiga ekki lieima í hugarskoti þjóðfélags sem elur menn upp í að laka við viðhorfum annarra án þess að þeir bafi tækifæri til að melta þau eða von um að eignast frið til að bugsa sjálfir. Mennskar tilfinningar eru þar bæði ó- viðeigandi og hlægilegar. Og aðhlátur- inn er einmitt það vopn sem hópsál tíðarandans beitir gegn þeim mönnum er hafa þor til að ganga eigin götur. 1 þessari bók er samt enginn hlátur þólt Loftur sé annars frægur fyrir fyndni sína. I þessari bók er aðeins sár og stundum dálitið þreytt svartsýni sem rís upp í ógnþrunginn sennileika er minnir á tryllingslegan bildarleik ragnaraka. Laxness segir á einum stað: „Þann dag sem lieimurinn er orðinn góður liættir skáldið að fi nna til, en fyr ckki. En um leið hættir liann líka að vera skáld“. í þessum anda lield ég að Loft- ur hafi ritað bók sína. Annað mál er svo hvernig honum liefur tekizt það. Um það er ég ekki fyllilega fær að dæma. Að skrifa bók er eins og að klífa hvassan tind. Sá sem aldrei hefur klifið slíkan tind getur ekki gert sér algera grein fyrir því ferðalagi. Hann getur að- eins getið sér til um það. Mér eru minnistæð tvö erlend stór- verk sem fjalla um sömu atriði heims- ádeilunnar og Gangrimlahjólið. Annað þeirra cr kvikmynd Chaplins, Nútíminn, sem með nístandi liáði tekur til með- ferðar drottnun vélarinnar yfir mannin- um, hitt verkið er skáldsagan Brave New World eftir Aldous Huxley, sem tætir í sig efnishyggju og væntanlegt til- finningaleysi framtíðarinnar. Sé bók Lofts borin saman við þessi stórvirki skortir liana að mínu viti fjölbreytni Chaplins, söguskilning og innsæi Hux- leys. En, og það er stórt en, Loftur hef- ur líka sínar aðferðir og þær eru álirifa- miklar. Stíll hókarinnar er •fábreytinn víðast livar og endurtekningar eru notaðar æ ofan í æ eins og stef í drápu. Sumir telja þetta kannski galla aðrir kost. En ég spyr: Ef lýsa á fangavist, verður þá ekki að notast við einhæft umhverfi fangans, atburðasnautt lif bans og fangelsaðar hugsanir? Sumir kunna ef til vill að segja að lesandinn fái of- næmi fyrir þessum sífelldu endurtekn- ingum. En er tilgangur bókarinnar ekki sá að lesandinn fái ofnæmi fyrir því sem á er deilt? I bókinni eru sagðar tvær sögur. Bak- sagan er cins konar mannkyiissaga, segir frá Gyðlingum, sem komnir eru af guð- um og tröllum. Segir frá hinni sérkenni- legu tilveru þeirra sem byggist að mestu á uppgötvun og smíði gangrimlahjólsins. Segir frá því hvernig foringjar þeirra blekkja liina og reiða að lokum öxi að rótum ættarmeiðs síns og smíða úr gang- rimlahjól. Sú smíði varð örlagarík. Hin sagan segir frá fiinm persónum sem vinna saman að því að telja skjöl og ganga frá þeim, raða þeim niður. Þau vita ekkert hvað þessi skjöl liafa að geyma, livaðan þau koma eða livert þau fara. Þessar persónur liafa engin nöfn.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.