Félagsbréf - 01.05.1960, Page 27

Félagsbréf - 01.05.1960, Page 27
FÉLAGSBKÉF 25 Krlingssyni breytisí þetta. vinnubrögðin verða markvissari, og hin helztu skáld síðan hafi ekki slakað á í þessu efni, enda þótt nokkur þeirra, þar á meðal Snorri Hjartarson, rísi hœrra en önnur í miskunnarlausri öguu bragforms og ljóðmáls. Hragform Snorra og ljóðmál eiga sér rætur, sem liggja vítt; þar mæt- ast ólíkir straumar: suðræn klassík, því Snorri er frábært sonnettuskáld og hefur ort eina sestínu, kvæðið Við ána; nýrómantízka aldainótanna, módern- ismi 20. aldar. og síðast en ekki sízt Edda Sæmundar og dróttkvæði og öll íslenzk ljóðbefð síðan, enda er skáldið handgengið öllu því helzta og bezta i Ijóðlist vorri frá öndverðu til þessa dags. Allt skapar þetta nýja einingu í verkum hans, frá klassíkinni fær hann bragarhætti. frá nýrómantízkunni skrúðmikið Ijóðmál. frá módernismanum táknmál og frá honum og Edd- unni frjálslega og djarfa. en þó hnitmiðaða hrynjandi, frá dróttkvæðunum hálfrímið, sem hann beitir mjög mikið. oft sem endarími, og frá öðrum eldri íslenzkum skáldskap þann þjóðlega blæ, sem er yfir sumum ljóða hans. Rækur Snorra eru því i eðli sínu symfónísk verk. fjöldi bljóðfæra ber Ijóðlist hans uppi. Þetta markar stöðu hans í íslenzkri nútímaljóðagerð, hann er klassískur. nýtízkulegur og þjóðlegur í senn, og skáldskapur hans er beint framhald íslenzkrar ljóðhefðar, 'hann auðgar hana og saihræmir kröfum tímans, eins og öll meiriháttar skáld á undan honum höfðu gert, en þó er mikilvægast af öllu: hann gengur aldrei að list sinni með kæru- leysi, heldur með alvöru og óskiptur. því hann veit að skáldskapur er alvörumál, ekki til að gamna sér við. heldur dýrmætl tæki lil að tjá á varanlegan hátt það, sem mönnum býr dýpst í hug, og hann hefur aldrei ort fyrir aðra en hina vandlátustu og kröfuhörðustu lesendur og ber þvi hátt merki hins sanna listamanns.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.