Félagsbréf - 01.05.1960, Blaðsíða 48

Félagsbréf - 01.05.1960, Blaðsíða 48
46 FÉLAGSBRÉF En ekki þuríum vér að sækja til súrrealistanna eða eftirmanna þeirra til þess að íinna þessu stað. Þau ljóð, sem virðast í fljótu bragði mest þrungin hugarórum, munu ef þau eru lesin í kjölinn, sýna, að hugarór- ar þeirra eru engu ósannari, óraunverulegri (ef enn er þá leyfilegt að nota þetta orð), heldur en ákveðnustu staðreyndir. Hugleiðum til dæmis píanóin hans Rimbauds uppi á tindum Alpafjallanna, hérana, sem eru að biðja til regnbogans í gegn um köngulóarvefinn, litla drenginn, sem veifar hand- leggjunum sínum að vindhönunum, „Aprés le Deluge“, eftir að flóðið .hef- ur sjatnað. Berið svo þessa hóflausu 'hugaróra saman við harðsoðnar stað- reyndir sögunnar, sem bæði blaðamennirnir og sagnfræðingarnir segja frá. Ég held, að yður muni reynast það nokkuð erfitt að skilgreina muninn ná- kvæmlega. Mig undraði ekki þótt þér kæmuzt að þeirri niðurstöðu, að hug- arórarnir væru enn harðsoðnari en stað'reyndirnar. Yér erum í sannleika sagt „það efni, sem draumarnir eru gerðir úr,“ og hver sá, sem ekki hefur ennþá gert sér grein fyrir því, að þetta „litla líf vort er umlukið svefni“ hefur ekki ennþá byrjað að lifa þessu litla lífi. Eftir hvert flóð, sem drekkl hefur heiminum, hvort sem það er fyrir einn mann eða marga, komum vér aftur að þeirri andartaksstund, þegar allt er aftur sem nýtt og allt er kleift, jafnvel hið ókleifa; þegar litlir drengir og vindhanar skiptast á kveðjum. Varla getur verið til sá maður eða kona, af minni kynslóð, ef þau hafa tekið einhvern þátt í lífi þessarar kynslóðar, að þau hafi ekki lifað slíka andartaksstund — og síðan týnt henni aftur, eins og ljóð Rimbauds týnir henni. Eru þessir hugarórar ekki eins raunverulegir og staðreyndir vorar? Eru þeir ekki eins raunverulegir og morð, eða Eaubus ríkisstjóri í Arkansas, svo ekki sé nefnd stefna vor í málefnum Kína eða verð- bréfavísitala sú, sem kennd er við Dow Jones? Hefur þú nokkurn tíman mætt verðbréfavísitölu Dow-Jones seinni part sunnudags, eða séð hana fara í bað, eða yfirleitt mætt 'henni nokkurs staðar í heiminum? Og að því er snertir utanríkisstefnu vora gagnvart Kína, mundi nokkur þekkja andlit hennar, ef hún gengi hér fram á sviðið, tæki sér sæti og setti upp bros? Fjarri því að ég sé að gefa í skyn, að staöreyndir blaðamennskunnar séu óraunverulegari Ég er aðeins að drepa á, að í raun réttri sé ekki sá munur milli staðreynda blaðagreinarinnar og hugaróra Ijóðsins, sem vér höldum, þegar vér snúum þeim upp í andstæður. Þetta getur hver sannað fyrir sjálfum sér á hvorn veginn sem er með því að lesa eitthvert dagblaðanna. Hverju munum vér t.a.m. eftir úr uppreisninni í írak fyrir rétt rúmu ári?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.