Félagsbréf - 01.05.1960, Blaðsíða 37

Félagsbréf - 01.05.1960, Blaðsíða 37
FÉLAGSB RÉF 35 Lofaðu þeim að hlusta á skýrsluna hjá Gógó um gáfnafarið í krökkunum, svaraði ritstjórinn og saup drjúgan úr glasinu. Það var lögð þung hönd á öxlina á honum. Hann leit við og andartak horfðust þeir í augu, ritstjórinn og stóri maðurinn með vinnulúnu hend- urnar. Svo vatt ritstjórinn sér til, furðu fimlega. Reyndu að hafa stjórn á þessum lúkum þínum, sagði hann, annars gætu þær orðið einhverstaðar á milli. Litli maðurinn smeygði sér upp við hliðina á mági sínum. Hann hélt um gleraugun annarri hendi. Förum ekki í hart, við skulum ræða málið. Lofaðu okkur að fara upp og tala við hana. Bara heyra hvað hún segir. Konan hafði snúið sér við og horfði á mennina tvo hissa, forvitin. Svo leit liún á ritstjórann og sagði: Hvaða menn eru þetta? Ritstjórinn brosti út að eyrum. Þetta eru vinir mínir. Miklir vinir mínir. Þeir vilja helzt ekki sleppa mér úr augsýn. Konan saup aftur á asnanum og skríkti einsog 'hún hefði heyrt eitthvað sem var helvíti gott. Ó, guð, allt þetta fólk sem þú þekkir! Svo horfði hún aftur á mennina tvo og hláturinn loddi enn í andlitsdrátt- um hennar, unz hún sneri sér að ritstjóranum og sagði: Ég segi þá hinum að ég komi ekki? Það drundi í stóra manninum og soghljóðið jókst í röddinni: Það veitti ekki af að básúna allt þetta svínarí um bæinn. Þennan skepnu- skap. Þennan níðingshátt! Konan leit á hann furðu lostin, hún var hreint ekki hrædd en öldungis hlessa. Hvað meinar maðurinn? Ritstjórinn brosti aftur. Bara vinarhót. llonum þykir svo vænt um mig. Litli maðurinn þrýsti sér enn nær þeim. Við megum ekki koma öllu í uppnám. Við verðum að ræða málið, ekki fara í hart. Ég á heimtingu að tala við hana. Ég vil fá að tala við hana. Bara sjá hana. Ritstjórinn horfði andartak þögull á litla manninn, svo kinkaði hann kolli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.