Félagsbréf - 01.05.1960, Blaðsíða 32
30
FÉLAGSBRÉF
Við ætlum að tala við hann uppi, sagði sá litli.
Það er enginn rekinn út héðan, sagði dyravörðurinn, en fólk stendur
ekki hér lengur en það þarf.
Við vitum hann var ekki einn uppi á herberginu, sagði sá litli og
rétti úr bakinu og horfði beint framan í dyravörð'inn.
Hvað er með það? Öllum er frjálst að hafa gesti til klukkan tólf. Við
skiptum okkur ekki af því.
Hann var með gifta konu á herberginu, sagði sá litli og var farið að
stríkka á rómnum. Herðabreiði maðurinn með stóra nefið skimaði í kring-
um sig en festi ekki augun á neinum hlut.
Það er enginn spurður hver sé giftur og hver ekki giftur, sagði dvra-
vörðurinn, ritstjórinn er inni á bar. Taliði við hann þar. Eftir fimm mínút-
ur kemur hingað balletflolðkur með allt sitt hafurtask og þá er eins golt
að sé nóg pláss.
Við ætlum ekki að hanga hér, sagði stóri maðurinn nú og hafði hendur
djúpt í vösunum á úlpunni, en það væri kannski ekki vanþörf á að ýmsir
vissu um svínaríið hér.
Dyravörðurinn svaraði ekki strax en virti manninn fyrir sér og var
lengi að draga andann.
Hótelstjórinn er á annarri hæð, sagði hann, þú getur snúið þér til hans.
Ég hef ekkert við hann að tala, sagði stóri maðurinn og fór nú aftur að
skima í kringum sig. Hann boraði höndunum lengra niður í vasana.
Þá geturðu snúið þér til lögreglunnar ef þú ert hræddur um að ekki
sé farið eftir reglugerðinni hér, sagði dyravörðurinn og krosslagði hendur
fyrir aftan hak. Annars sé ég ekki hvað þér kemur þetta hótel við. Þú ert
bara maður af götunni. Við hugsum um gestina sem borga fyrir sig.
Ekki borgar systir mín fyrir sig, sagði nú stóri maðurinn og það var
einsog röddinni væri lyft af þungri bylgjuhreyfingu.
Mig varðar ekkert um systur þína, ég þekki hana ekki, það er eklci
mitt mál ef hún borgar ekki fyrir sig, svaraði dyravörðurinn. En nú fer
balletflokkurinn að koma.
Hann gekk aftur að borðinu og sveiflaði fætinum örlítið um leið og
hann sneri sér við. Hann hallaði sér yfir horðið og fór að tala við síma-
slúlkuna. Hún lagði frá sér hlaðið, keyrði aftur höfuðið og hló að ein-
hverju sem dyravörðurinn sagði.
Litli maðurinn hnippti aftur í stóra manninn.