Félagsbréf - 01.09.1964, Qupperneq 8
þetta mun ég gefa þér, saga frá öldinni sem leið. Er það síðasta stóra skáld-
saga Jóns þangað til nú. En allar hafa sögur Jóns Björnssonar orðið mjög
vinsælar og verið mikið lesnar.
Jómfrú Þórdís er á fjórða hundrað bls. að stærð. sett og prentuð í Víkingsprenti.
Nóvember: Hannes Hafstein eftir Kristján Albertsson
í nóvember kemur út síðari hluti annars bindis af ævisögu Hannesar Hafsteins
eftir Kristján Albertsson, en fyrri hluti bindisins kom út í fyrrahaust. Mun les-
endum öllum í fersku minni hvílíkar umræður tókust síðan um hókina, manna
á meðal og í blöðum, útvarpi og á mannfundum, svo að einsdæmi mun í ís-
lenzkri bókmenntasögu á síðari árum. Svipuð saga gerðist raunar þegar fyrsta
bindi ævisögunnar kom út árið 1961. Virðist þessi ævisaga Hannesar Hafsteins
'þannig eitt þeirra rita sem engan lesanda sinn lætur blutlausan, en hlýtur annað
hvort eindregið jákvæði lesenda ellegar vekur óbilgjarna gagnrýni. En hvað sem
skoðunum manna líður á verki Kristjáns Albertssonar, mun hitt viðurkennt, að
hann hefur með ævisögu Hannesar Hafsteins unnið brautryðjendastarf í heim-
ildakönnun frá þessum tíma og lagt drjúgan skerf til stjórnmálasögu síðustu
aldar. Er ekki að efa að mörgum verður forvitni að kynnast lokaláfanganum í
ævi Hannesar Hafsteins í frásögn Kristjáns. í þessu bindi segir hann sögu
Hannesar frá því 'hann bíður hinn mikla kosningaósigur eftir uppkastið 1908
og lætur af ráðherradómi og fram til andláts hans 1922, og lýsir jöfnum hönd-
um manninum, stjórnmálamanninum og skáldinu. Þessu lokabindi ævisögunnar
fylgir svo nafnaskrá fyrir allt verkið.
Ævisaga Hannesar Hafsteins er um 350 bls. að stærð. Hún er sett og prentuð
í Steindórsprenti, en bundin í Félagsbókbandinu. Allmargar inyndir eru í bók-
inni eins og fyrri bindunum.
Surtsey eftir Sigurð Þórarinsson
Almenna bókafélagið hefur áður gefið út myndabækur um Heklugosið 1947
og Öskjugosið 1961, Eld í Heklu og Eld í Öskju sem kom út í fyrra. Nú baetist
þriðja bókin við og segir af gosinu í Surti sem hófst í fyrrahaust og fæðingu
hinnar nýju eyjar við Island, Surtseyjar. Dr. Sigurður Þórarinsson sér um
útgáfu bókarinnar eins og hinna fyrri. 48 myndasíður eru í bókinni, þar af
20 síður í lit, og lýsa myndirnar í stórum dráttum sögu gossins og þróun og
4 FÉLAGSBRÉF