Félagsbréf - 01.09.1964, Blaðsíða 16
heimildin um gerð og innra eðli sam-
félagsins, vöxt þess og þróun, stöðu
þess inn á við og út á við. „Opinber
smekkur“ er 'kannski ekki nema vísi-
tala þess smekks, skilnings, viðhorfa
sem eru ríkjandi í samfélaginu; en
menningarpólitík hvers tíma lætur þá
líka uppi hugmyndir samfélagsins um
sjálft sig, mat þess á gildi og hlut-
verki menningar sinnar. Því kann að
vera vert að gefa gaum starfsháttum
menningar í samfélaginu, reyna að
gera sér grein þess hvað sé unnið, og
hvar, — og kannski hvers sé vant.
Það kann að skipta nokkru, að, auk
menningarlegs áhuga, sé til í samfé-
laginu einhver samhugur, sameiginleg-
ur skilningur þess hver séu eiginleg
verðmæti þessarar menningar, hvað sé,
til dæmis, skáldskapur og listir, og til
hvers. Og þá skiptir nokkru að þessi
skilningur verði látinn uppi skiljanleg-
um orðum, og hver skilji annan.
Sverrir Tómasson, stúdent i Reykjavík 1961,
leggur stund á íslenzk fræSi viS Háskóla
íslands. Sverrir hefur einnig fengizt viS
blaSamennsku, og hefur hann ritaS um þá
reynslu i Mimi, blaS stúdenta í íslenzkum
fræSum.
Jón S. Jónsson, fæddur 1934 ú IsafirSi. Jón
12 FÉLAGSBRÉF
gekk á tónlistarskólana á ísafirSi og 1
Reykjavik árin 1948—56, en stundaSi síSan
framhaldsnám i tónfræSi og tónsmíSum 1
Chicago. Hann lauk meistaraprófi í þeinl
greinum 1959, kom heim 1962, og stefnir
nú aS doktorsprófi. Jón S. Jónsson er skóla
stjóri tónlistarskólans í Kópavogi og r,1,ir
aS staSaldri um tónlist i AlþýSublaSiS.