Félagsbréf - 01.09.1964, Page 24
vill einu sinni veita því sanna guðs
lambi skylduga lotningu. Og svo biS
ég mína jómfrú að fara vel og minn-
ast þess að engin þyrnibraut er utan
enda, og megi slá allsvaldandi drott-
inn halda sinni verndarhendi yfir þér,
fyrir sakir Jesú Krists hlessaða blóðs.“
Jómfrú Þórdís tók þakksamlega á
móti verndargripnum. Þetta fagra guðs
lamb, Agnus dei, gefið af góðum huga,
lægði strax ótta hennar. Og orð og
framkoma gömlu konunnar, sem kom
eins og sólargeisli inn í myrkur hug-
skots hennar, ekki sízt vegna þess, að
hún hafði ekki búizt við því og skildi
ekki þessa snöggu breytingu, sem orðin
var á ’henni. Ef til vill voru allar mann-
eskjur góðar — góðar þrátt fyrir
allt. .. .
20 FÉLAGSBRÉF