Félagsbréf - 01.09.1964, Qupperneq 28
TRUMAN CAPOTE
Demantsgítar
Næsta borg við fangabúðirnar er
tuttugu mílur í burtu. Greniskógur
skilur að búðirnar og borgina, og það
er í þessum skógi sem limirnir vinna;
þeir safna terpentínu. Sjálft fangelsið
stendur í skógi. Það er að finna við
enda rauðförótta troðningsins; yfir
veggi þess fikrar sig gaddavír líkt og
vínviður. Þar dveljast hundrað og níu
hvítir menn, níutíu og sjö svertingjar,
og einn Kínverji. Þáð eru tveir svefn-
skálar — mikil græn timburhús með
tjörupappaþaki. Hvítu mennirnir sofa
í öðru, svertingjarnir og Kínverjinn í
hinu. I hvorum svefnskála er einn
belglaga ofn, en hér eru vetur kaldir,
og þegar grenið skekur sig kulda-
lega í nístandi niðlýsinu á kvöldin
liggja mennirnir endilangir á járn-
rúmunum, vakandi, og það glampar á
rauðlogana í augum þeirra.
Þeir sem eiga flet næst ofninum eru
áhrifamenn sem hinir óttast og líta
upp til. Herra Schaeffer er einn þeirra.
Hr. Schaeffer — en svo er hann
nefndur í sérstöku virðingarskyni —
er skinhoraður sláni. Á rautt hár hans
slær silfurslikju og hann er toginleit-
ur með guðræknissvip; við bein hans
tollir ekki hold, það má sjá þau bif-
ast, en augun sljó, móleit. Hann er
læs og skrifandi og kann að leggja
saman tölur. Þegar einhver fær bréf,
fer hann með það til hr. Schaeffer.
Flest bréfin eru dapurleg og í nöldur-
tón. Hr. Schaeffer diktar mjög oft
upp ánægjulegri tíðindi en les ekki
það sem stendur skrifað. í svefnskál-
anum eru tveir aðrir læsir. Samt sem
áður kemur annar þeirra með bréfin
sín til hr. Schaeffer, sem er ætíð hjálp-
samur við að hagræða sannleikanum-
Hr. Schaeffer fær aldrei póst, ekki
einu sinni á jólunum; svo er að sjá
sem hann eigi enga vini fyrir utan
fangelsið, og reyndar á hann engan
þar — engan sérstakan. Því var þo
ekki alltaf svo farið.
Á sunnudegi fyrir nokkrum vetrum
sat hr. Schaeffer á tröppum svefn-
skálans og telgdi brúðu. Hann er
einkar laginn við það. Hann tálgaði
hvern part fyrir sig, síðan tengdi hann
iþá saman með svolitlum gormum;
hendur og fætur hreyfast, kollurinn
kinkar. Þegar hann hefur fyllt tylft'
ina, tekur Stjórinn þær með í borg-
ina, og þar eru þær seldar í kaupfélag-
24 FÉLAGSBRÉF