Félagsbréf - 01.09.1964, Side 42
í tónsmíðinni í nákvæmlega þeirri röð,
og ekki má nota neinn tón aftur fyrr
en röðin kemur að honum. Til að
glöggva sig betur á þessu getur les-
andinn tekið 12 eldspýtur og raðað
iþeim í röð frá vinstri til hægri, síðan
tekur hann þá eldspýtu sem er lengst
til vinstri og flytur hana til hægri yfir
hinar 11, þetta má svo endurtaka að
vild. Þetta læt ég nægja hér um kerfi
þetta að sinni, en rétt er að geta þess,
að skýringar mínar á kerfinu, eru fjarri
því að vera tæmandi. 12 tóna kerfið
getur verið afar flókið og gefur mikla
möguleika í sambandi við tónsköpun,
en við skulum hafa það í huga að hvaða
kerfi sem í hlut á er ekki hótinu betra
eða verra en sá sem meðhöndlar það.
Það er engum blöðum um það að
fletta, að hugmyndir og tónsmíðar
Schönbergs og helzta lærisveins hans,
Antons Webern, hafa haft geysileg á-
hrif á tónsmíði seinustu 50 árin. En
hins er þó rétt að minnast, að ýmsir
samtíðarmenn þeirra hafa án þess að
snúa algjörlega baki við fortíðinni,
skapað stórkostlega og merkilega tón-
list, sem haft hefur djúptæk áhrif á
tónsköpun 20. aldarinnar, og má þar
nefna Bartok, Hindemith og Stravinsky.
Rétt er einnig að geta þess til sönnun-
ar því hve sterk áhrif 12 lóna mann-
anna eru og þeirrar stefnu sem þróun
hugmynda þeirra hefur tekið, að jafn-
vel Stravinsky, sem alla tíð hefur verið
sjálfstæður frumherji í eðli sínu, hefur
nú loksins beygt höfuð sitt og er kominn
í hóp þeirra sem lagthafa hvað drýgstan
38 FÉLAGSBRÉF
skerf að þróun kerfisins. Það má geta
þess hér til fróðleiks, að um árabil voru
'þeir Stravinsky og Schönberg nábúar
í Kaliforníu, en á þeim árum og lík-
lega frá öndverðu, voru þeir svarnir
andstæðingar, og ekki er vitað til þess
að þeir ættu nokkurn tíma á þessum
árum orðaskipti um hugðarefni sitt,
tónlistina.
Þar sem markmið þessarar ritsmíð-
ar er að reyna að skýra eðli og eigin-
leika ákveðinnar tónsmíðastefnu á vor-
um tímum, stefnu sem á rætur sínar
að rekja til 12 tóna kerfisins, þá mun
ég viljandi skilja útundan aðrar 20.
aldar stefnur, nema að því leyt)
sem þær koma máli þessu beinlínis við.
Á seinustu áratugum hefur 12 tóna
kerfið, í höndum nokkurra evrópskra
íónskálda, þróazt upp í tónsmíðaaðferð
sem fengið hefur nafnið serielismi
Nafn þetta vil ég útleggja raðtækni-
Hér erum við komin að kjarna efnisins,
og mun ég nú leitast við að útskýra
þetta nýjasta tónsmíðakerfi.
Frumefni þau sem tónskáldin hafa
til að vinna úr, eru tónn, tónstyrkur og
tónlengd. Við höfum kynnzt því lit"
illega hvernig tónum er raðað niður
samkvæmt 12 tóna tækninni. ðnisir
ágætismenn 'hafa á seinustu áratugunn
reynt að finna leiðir til að meðhöndla
hin frumefnin á nákvæmlega sama hatt.
Þetta er mögulegt á pappírnum, en það
eitt er ekki nóg eins og ég mun reyna
að sýna fram á. Tónar eru það eina
af frumefnunum sem er og hefur verið
í föstum skorðum til þessa, tólf tonar