Félagsbréf - 01.10.1964, Page 8
Svartárdalssólin eftir Guðmund Frímann
Guðmundur Frímann er löngu landskunnur fyrir ljóðagerð sína, en hann
hefur gefið út fimm ljóðabækur frumortar, síðast Söngva frá sumarengjum,
1957. Einnig hafa komið út Ijóðaþýðingar eftir Guðmund. Á seinni árum hefur
Guðmundur fengizt við skáldskap í lausu máli og birtist afrakstur 'þess í
Svartárdalssólinni. Tíu smásögur eru í bókinni og fjalla allar um ástina í
einni eða annarri mynd og gerast, að líkindum, í átthögum höfundar norðanlands.
Cuðmundur Frímann er fæddur 1903. Fyrstu ljóð hans, Náttsólir, komu út
1922, en af síðari ljóðum hans má nefna Svört verða sólskin frá 1951. Hann er
búsettur á Akureyri.
Bókin er prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar, 174 bls. að stærð.
Torfi Jónsson gerði kápu og titilsíðu.
Mannþing eftir lndriða G. Þorsteinsson
Mann'þing er þriðja smásagnasafn Indriða G. Þorsteinssonar, og eru í bók-
inni 12 sögur, nýlegar af nálinni. Mun ekki ofmælt að nokkrar beztu sögur
Indriða séu í þessari bók; en hann er í flokki beztu smásagnahöfunda okkar
um þessar mundir, og einn þeirra höfunda sem mesta athygli 'hafa vakið á
undanförnum árum og mestar vonir eru við bundnar.
Jndriði G. Þorsteinsson er fæddur 1926. Fyrstu verk hans á prenti voru
smásögur, en liann hefur einnig gefið út skáldsögurnar 79 af stöðinni og Land
og synir. Síðastnefnda sagan sem út kom í fyrra var þá almennt talin athygliS"
verðasta skáldsaga ársins. Má því vænta að hinar nýju sögur hans þyki tíðind-
um sæta.
Mannþing er ])rentað í Víkingsprenti og bundið í Bókfelli. Bókin er um
150 bls. að stærð.
Nótt í Lissabon eftir Erich Maria Remarque
Erich Maria Remarque varð víðkunnur höfundur í einni svipan þegar skáld-
saga hans Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum kom út árið 1928. Þar var lýst
lífinu í skotgröfunum í fyrri heimstyrjöldinni; sagan varð, ásamt Vopnin
4 félagsbréf