Félagsbréf - 01.10.1964, Síða 14

Félagsbréf - 01.10.1964, Síða 14
ari og dreymdi stóra drauma um fram- tíð og hlutverk íslenzku þjóðarinnar. Hann lifði sjálfur á tímum fátæktar og umkomuleysis íslendinga. En þrátt fyrir það sá hann fyrir, að íslending- ar myndu læra að hagnýta sér öll auð- æfi lands og sjávar. í AldamótaljóSum kemst hann svo að orði: Of lengi í örbirgð stóð, einangruð, stjórnlaus þjóð, kúguð og köld. Einokun opni hramm, iðnaður, verzlun, fram! Fram! Temdu fossins gamm, framfara öld! Hann íesti kaup á Þjórsárfossum og stofnaði Titanfélagið í Noregi og lét norska verkfræðinga reikna út vatns- magn fossanna og hagnýtingu þeirra til rafmagns. Hann sá í anda iðnað rísa og var vel á veg kominn að hrinda þessu í framkvæmd. Titanfélagið var stofnað 1914 og var hlutafé margar milljónir króna. Árið 1951 keypti ís- lenzka ríkisstjórnin íslenzku hlutabréf- in fyrir vægt verð og var þessi ráð- stöfun ágæt, því að nú er hægt að beizla Þjórsárfossa og mun þess ekki verða langt að bíða, unz vatnsafl þeirra verður hagnýtt. Einari var mjög annt um íslenzka tungu. Hann segir í IslandsljóSum: Ég ann þínum mætti í orði ]>ungu, ég ann þínum leik i liálfum svörum, grætandi mal á grátins tungu, gleðimál í Ijúfum kjörum. Ég elska þig, málið undurfríða, og undrtyndi krýp að lindum þínum. Ég hlýði á óminn bitra, ldíða, brimhljóð af sálaröldum mínum. Mig dreymdi eitt sinn í dagsins blíðu, þú drottning allra heimsins tungna, ég heyrði þig af fólki fríðu, frjálsu og upplitsdjörfu sungna. Hann kemst svo að orði í Snorraminni: — Ódýr strengur aldrei sleginn, úð ei blandin lágrii kennd, málsins glóð í minni (brennd, máttur orðs og hugar veginn. Þetta gæti eins vel átt við hann sjálfan, því að í skáldskap hans er ekki ein lína, þar sem tilfinningin er blandin lágri kennd. í kvæðinu um Egil Skallagrímsson kemst Einar svo að orði um uppruna íslenzkrar tungu: — Og málið var byggt í brimslegnum grjótum, við ldáhimins dýrð, undir málmfellsins rótum. Þess orð féllu ýmist sem hamarshögg eða hvinu sem eggjar, bitur og snögg, — eða þau liðu se.m lagar vogar, lyftust til himins með dragandi ómi, eða hrundu svo tær eins og drjúpandi döggi en dýr eins og gullsins logar. I Stefjahreimi segir hann um hljóm- tak tungunnar: — ég lifi í því minn ævidag og dey við auðs þess djúpu brunna. Einar unni hinni fornu braglist ls- lendinga og kunni alla bragarhætti, enda orti hann Ólafsrímu Grœnlendings 10 FÉLAGSBRÉF

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.