Félagsbréf - 01.10.1964, Page 22

Félagsbréf - 01.10.1964, Page 22
skemmtanir mikinn part aflagðar, sök- um þess að oft hafa yfirboðnir af ótímabærri vandlætingu þær með öllu bannað og aftekið vegna einhvörrar misjafnra manna vanbrúkunar og gár- ungaskaps sem hneyksli og annan vondan vana hefði kunnað orsaka. En ekki vitum vér þess getið, að fyrir- menn hafi tekið sér fyrir hendur að lagfæra soddan leiki, hverjir þó senni- lega hafa við sig hundna sína nytsemi miklu stærri en menn almennilega ætla.... En að eg komi til vor ís- lendinga þá eru bæði hringbrot og glímur, fallega niðurskipaðar, ágætir leikir til að æfa mjúkleik og hreysti líkamans. í þeim gleðum er nú hrúk- ast á landi voru er lítil skynsemi og enn minni nytsemi til nokkurs lærdóms. Því væri miklu betra þær að bæta og taka sér fyrir ýms tilfelli úr sögum vorum, hvar af gott má nemast, illt forðast og sinnið til manndóms upp- hvetjast.“ Ummæli manna síðar á öldinni og á öndverðri 19. öld benda til þess, að mjög hafi verið lítið um gleðisamkom- ur á síðari helming 18. aldar. Það má hafa í huga, að leiklýsingar ganga ekki í munnmælum. Gamalt fólk man leiki frá æskuárum, og fyrir get- ur komið, að það tali um þá; hugsan- legt er, að einhver hlusti eftir, muni brot af því sem sagt var og geti rifjað eitthvað upp, ef innt er eftir; en ekki (þarf að búast við, að slíkur fróðleikur komist í þriðja lið sem sögn. Sögur um tilvist gleðistaða og afnám eru sagðar, en lýsing leikjanna er ekki þess kyns efni, að það sé sagt mann fram af manni. Þrátt fyrir þetta virð- ist afrakstur þeirrar söfnunar sem fram fór um miðbik 19. aldar og eftir miðja öld benda lil þess að gleðin hafi ekki verið almenn á síðari hluta 18. aldar og að hún sé horfin með öllu fyrir aldamót eða á síðustu áralugum 18. aldar. Séra Árni í Görðum minntist einhvers konar jólagleði frá níunda tug 18. aldar, en heldur er það allt óljóst, og óvíst er það sem haft er eftir Eyjólfi Einarssyni í Svefneyjum, af því að ekki er kunn frásögn Eyjólfs sjálfs. I Flóanum eru vökunætur árið 1733, og Marín er ung stúlka á fyrri hluta 18. aldar og í gleði í Hruna- mannahreppi, en Gunnhildur Jóns- dóttir heimildarkona Brynjólfs frá Minna-Núpi fædd árið 1787 er einnig í Árnessýslu, og hún þekkir ekki til gleðinnar af eigin raun og veit heldur lítið um hana. Dýrfirzka konan sem heyrði móður sína segja frá gleði a Sæbóli er uppi á síðari helming 18. aldar, og hún man ekki gleðina sjálf- Og Guðhrandur Vigfússon vitnar til einhverra sem fæddir voru 1762 og 1775 á vesturhluta landsins og þekktu ekkert til þessara leikja. Á síðari hluta 18. aldar stóð Bjarni sýslumaður Halldórsson fyrir jólagleði, á Þingeyrum. Ekki er vitað, hvað olli því, að Bjarni tók upp jólagleði, en um þessar mundir verður vart nokkurs 18 FÉLAGSBRÉF

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.