Félagsbréf - 01.10.1964, Blaðsíða 23

Félagsbréf - 01.10.1964, Blaðsíða 23
áhuga a viðhaldi gleðinnar eða auk- inni skemmtun landsmanna. I ÍGSÞV* III 51 er prentuð eftirfarandi grein sem gæti verið einhvers konar sam- Iþykkt eða álitsgerð, en ekki hefur ennþá hafzt upp á, hvaðan hún er tekin: „1748. 12. júlí: Að bændafólki skuli leyft að halda sína gleðileiki á vorum á virkum dögum, sér til hress- ingar, á þeim tímum sem þeir missa mega frá sínu þunga landyrkjuerfiði, eins og vani hefir til verið, þó fyrir utan ofdrykkju og óstjóm alla.“ Þess má minnast, hvort sem samband er á milli eða ekki, að í Fororðningu um húsvitjanir á íslandi frá 27. maí 1746 er eftirfarandi eitt af því sem prestinum er falið: „So og skal hann tilhalda fólkinu, að 'þeir so vel sjálfir, sem og líka þeirra undirhafandi, haldi sig frá öllum skaðlegum spilum og leikum, hvaða nafni sem heita kunni. eftir því að þar af fæðist einasta þráttan, ósamlyndi, áflog og annað vont, sem einum kristnum er ósæmi- legt; þar hjá reitist þar með guð til reiði, og sá dýrmæti tími, sem til guð- rækilegrar yfirvegunar og nytsamlegs erfiðis á að brúkast, eyðist.“ Viðhorf almennings og fastheldni á gleðina virðist koma fram í mur/nmæl- um á 19. öld. Séra Árni Hallvarðsson drukknar, og það er kennt afskiptum Jön Árnason og Ólafur Davíðsson: Is- lenzkar gátur, skemmtanir, vikivakar og bulur. hans af gleðinni á Flankastöðum. Jón Magnússon dæmir af Jörfagleði og missir á hverjum vetri vænstu kúna sína eða reiðhestinn. í Dalasýslu fara sögur af húsfreyjunni á Jörfa sem þótti svo fyrir, þegar gleðin hætti, að hún flutti sig burt. Athyglisverðar eru sagnir um óhöpp og náttúruundur við afnám gleðinnar á Jörfa. Þegar í Grímsstaðaannál er sagt frá því, að flest allt lambfé á Jörfa fæddi skrímsl og örkumluð lömb vorið eftir; og á 19. öld kunna Dalamenn skil á því, að snjóflóð hafi í fyrsta sinni hlaupið fram úr Jörfahnúks gili veturinn eftir að gleðin var afskipuð, en oft síðan. Óhöpp Jóns Magnússonar eru gjöld fyr- ir afskipun gleðinnar, snjóflóðið reiði- teikn eða óblessunar þar gleðin er af- tekin, og þessu valda álfar sem þátt tóku í gleði; þar voru ekki færri sem ekki sáust en hinir sem sáust. Hús- freyjunni sem flytur sig burtu er naum- ast dulið, að úr þessu getur brugðið til beggja vona með búsældina á Jörfa. Andstaða kirkjulegra og veraldlegra yfinralda hefur gert sitt til, að gleðinni hnignaði og hún féll að lokum alveg niður. Það var skoðun manna á síðari hluta 18. aldar og á 19. öld, og ekki ástæða til að rengja hana. En hugsan- lega hefur fleira komið til. Harðindi, stórabóla á fyrsta áratug 18. aldar og örbirgð landsmanna og deyfð á 18. öld hefur orðið gleðinni háskalegt og dregið úr viðnámsþrótti fólks og fram- kvæmd, þótt gleðiþörfin væri nægi- lega brýn. Þá má hafa í huga, að á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.