Félagsbréf - 01.10.1964, Síða 25

Félagsbréf - 01.10.1964, Síða 25
TARJEI VESAAS Fall Næturlestin kyrrist smám saman. Það dregur ekki úr ferðinni, hún er sífellt söm — bláir gneistar hrökkva af rafleiðslunni út í svarta, vota nótt- ina, hjólin syngja og lestin nötrar öll ljós inni. Hengir fötin sín á herða- og fljót á flúðum. En það kyrrist inni í löngum vögn- unum. Næturvörðuninn hefur dregið niður gluggatjöldin í ganginum til marks um það sé háttatími. Áðan var gangurinn fullur af fólki. Tollverðir og vegabréfa kvíuðu farþegana, allt reyndist í lagi, en síðan stóðu menn stundarkorn úti í ganginum, hver við sinn klefa. Lásu blöð, skimuðu. Reyktu, skimuðu. Töluðu við bláókunnuga klefanauta, eða þögðu og virtu þá fyrir sér. Síðan hvarf einn af öðrum tnn fyrir hriktandi rennihurðir — og nú er gangurinn tómur, síðasti ferða- niaðurinn er kominn inn til sín. Hann fer inn síðastur manna. En liann hlýtur að líta einu sinni enn til dyranna við endann á ganginum. iivranna út. Þar er ekkert sérstakt að sja. Þykkar messinglokur og snerlar í réttum skorðum. Nóttin er fyrir utan. Dyrnar opnast út þegar þær opnast, hann getur ekki haft augun af þeim. Þessar dyr út í opinn dauða. Það er þetta veiklaða hjarta, hugs- ar hann. Hafðu nú hægt um þig. Hann heyrir það slá, því hægist ekki. Hvað í ósköpunum var ég að vilja upp í þessa lest! Hvernig lenti ég hér? Hann hugsar sig um. Eg ætlaði mér alls ekki að fara. En á síðustu stund keypti ég miða, hljóp um borð. Og ég fékk miðann undireins, þó allar lestir séu íullar. Það var ekki rétt. Svona nú, þetta eru taugarnar bara. Þú ætlaðir þér að fara. Nóg um það. Og ætlarðu nú ekki að koma þér í rúmið? Hinir bíða þín eflaust, að þeir fái að sofna. Hann hikar. Stendur með hönd á snerlinum. Auður gangurinn riðar til og frá. Lamparnir lýsa tómlega. Það gutlar í vatnskönnu. Glamur og högg við teinana fyrir neðan. Lestin fer á fullri ferð. Nú er dauðinn vís þeim sem fellur út. Kyrr —

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.