Félagsbréf - 01.10.1964, Page 39

Félagsbréf - 01.10.1964, Page 39
kröfu, sem löngum hefur verið gerð til „bókagagnrýnenda“, hátt og í hljóði, og margir þeirra hafa gert sér of mikið far um að verða við — kröfuna um það, að þeir, sem skrifa um bækur skilji anda og eðli verks- ins eins vel og höfundurinn eða bet- ur og geti leitt lesandann við hönd sér um myrkviðu þess og völundar- hús, svo að honum opnist sýn, sem annars væri hulin. Þetta er að sjálf- sögðu hættulegur misskilningur. Eng- inn getur skilið skáldverk fyrir annan mann, né heldur miðlað honum að fullu sínum skilningi, fremur en nokk- ur getur elskað fyrir annan eða neytt matar fyrir hann. Svo persónulegt 'hlýtur hvort tveggja að vera — list- túlkun höfundar og skilningsnautn lesandans — að enginn „bókagagn- rýnandi“ getur borið þar heilt ker á milli. Þegar grannt er skoðað getur ridómari ekki fremur sagt lesanda, hvert sé inntak bókar, en höfundi hennar. Að svo mæltu vil ég taka fram, að ég tel orðið „bókagagnrýnandi“ frá- feitt heiti á 'þeim manni, sem skrifar að staðaldri um nýjar bækur í dag- fdað. Það orð á helzt ekki við, nema þegar sérfræðingur gagnrýnir ritverk annars sérfræðings í sömu grein. Hlutverk þess, sem skrifar um nýjar bækur í dagblað, er fyrst og fremst að vera góður lesandi sem segir öðrum nokkur deili á bók, sem hann hefur lesið. Hann á fremur að reyna að bregða upp ljósri mynd og renna stoðum og forsendum undir sjálfstætt mat þess, sem greinina les, en að kveða upp dóminn sjálfur og ætlast til þess að aðrir telji hann ó- skeikulan. Hann á fremur að vera bókakynnir en gagnrýnandi og allra sízt dómari. Hann verður að sjálf - sögðu að segja sitt álit, en það getur aldrei orðið annað eða meira en per- sónulegt mat. Það er reginmunur á dómi og persónulegu áliti, og því má aldrei blanda saman. Að vísu geta ýmis ytri einkenni bókar eða ritverks, til dæmis búningur, málfar eða efnismeðferð, verið með svo augljósum annmörkum eða ágætum, að persónulegt álit hljóti að eiga samleið með almannadómi, en það er eigi að síður mjög brýnt að gera skýran mun á þessu í skrifum um bækur. Umbótakröfur á hendur þeim, sem segja álit sitt á bókum í dagblöðum, hafa lengi verið töluvert háværar, og ætti ég að reyna að vísa til betri vegar um þetta, mundi ég vísa kröfugerðinni að hálfu leyti aftur heim til föður- húsanna. Að vísu tel ég umbótaþörf- ina ærna, en ég held það vonlítið, að um skipist, nema báðir aðilar leggi nokkuð af mörkum — þeir sem skrifa um bækur, og þeir, sem lesa bóka- skrifin. Ef hinir fyrrnefndu vöruðust það betur að setjast í dómarasæti, og hinir síðarnefndu minntust þess oftar, að í þessum skrifum kemur aðeins fram persónulegt álit en ekki dómur, gætu þeir mætzt í betri skilningi á miðri leið. FÉLAGSBRÉF 35

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.