Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Page 22

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Page 22
að fara aftur heim. Hún fór í leik sem allir krakkar héma í hverfinu eru í. Þeir em með tvær harðar kúlur sem hanga í hvor í sínum endanum á bandspotta og slá þeim hratt saman með einhverri handarhreyfingu. Við þetta myndast háir smellir, svona eins og í hrossabresti. Ég held að hún hafi verið að reyna að gleðja mig. Það varð því erfiðara að senda hana í burt. Og ég hafði ekki talað við neinn í nokkra daga. Klukkan var orðin fimmtán mínútur yfir sex þegar ég kom niður eftir að hafa skipt aftur um föt. Foreldrar Jane búa tólf húsum ofar héma megin götimnar. Þar sem ég var tilbúinn 45 mínútum of snemma ákvað ég að fara út að ganga til þess að drepa tímann. Nú lá skuggi yfir götunni. Ég staldraði við fyrir framan útidymar til að finna bestu gönguleiðina. Charlie var hinum megin götunnar að gera við annan bíl. Hann sá mig og ég gekk yfir til hans án þess að hafa sérstakan áhuga á því. Hann leit upp án þess að brosa. „Hvað á nú að fara að gera?" Hann talaði við mig eins og ég væri bam. „Ég ætla að fá mér ferskt loft," sagði ég, „anda að mér kvöldloftinu." Charlie vill fylgjast með því sem gerist í götunni. Hann þekkir alla héma, þar með talin öll bömin. Ég hafði oft séð litlu stelpuna úti hjá honum. Síðast sá ég hana halda á skrúflykli fyrir hann. Af einhverjum ástæðum var Charlie alltaf að minna mig á dauða hennar. Hann hafði haft allan sunnudaginn til að velta þessu fyrir sér. Hann langaði til að heyra mína hlið á málinu en fékk sig ekki til að fara að spyrja beinna spuminga. „Ætlarðu að hitta foreldra hennar? Klukkan sjö?" „Já, klukkan sjö." Hann vildi að ég héldi áfram að tala. Ég hringsólaði í kringum bílinn. Hann var stór, gamall og ryðgaður. Ford Zodiac, svoleiðis eru bílamir í þessari götu. Það var fjölskylda frá Pakistan sem átti bílinn. Þau ráku htlu verslunina við enda götunnar. Þau höfðu einhverjar ástæður fyrir því að láta búðina heita Watsons-búð. Synir þeirra tveir höfðu verið barðir í klessu af skallaklíku úr nágrenninu. Þau vom að safna peningum til þess að 22 Bjartur ogfrú Emilía

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.