Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Blaðsíða 39
K2 k2 * 2
KONAN
K
K
M
K
M
kúkurinn upp í háls þegar einhver tískugella af verstu
sort fer að gera sig breiða og þú liggur slefandi fyrir
henni
Þetta er ekki satt
Jæja, góða, heldurðu að ég hafi ekki séð hvernig þú
liggur marflöt fyrir þessari skrælnuðu pakkhúshóru /
það lekur af þér bleytan ef einhver í einkennisbúningi
mætir á svæðið
Haltu kjafti
Heyrðu, vinan! Þú flaðrar nú upp um hvern sem er eins
og eitthvert allragagn
Bíttí tussuna á þér
Ef þú heldur að þú getir verið að húkka þessar gellur
bara ef ég er ekki nálægt / ókei, ég meina, mér líst oft
á einhverjar píur,—en ég leyfi mér samt ekki hvað sem
er
(KONANkemur inn, hún heldurá bréfamöppu)
Góðan dag
Daginn
(KONAN sest, K og M tala áfram ótruflaðar saman.
ÞJÓNNINN kemur, KONAN pantar vínglas)
Það eru nokkur grundvallaratriði sem þú hefur sko
ekki fattað ennþá, Mieke. Að dröslast stanslaust um
með allan próblempakkann, reyna við einn hér og
annan þar, — nei, það er sko ekki mín deild, þá læt ég
mig hverfa af svæðinu með það sama
En hvað með þig og þessa spraðabassa þína, það er nú
ekki lítið sem þú getur blaðrað framan í þá og það á að
heita að þú sért í vinnunni, þessir grámyglulegu
atómtuddar, þú smyrð á þig þessu líka flírulega
kolgeitbrosi
Hundskastu þá til að hala inn einhvern pening,
manneskja! Gerðu eitthvað! Ef það væri ekki alltaf
þetta helvítis klúður á þér þá þyrfti ég ekki að gapa
stanslaust upp í öll þessi erkifífl
Vá maður, ha?
Hver djöfullinn heldurðu að þú sért?
Tímarit um bókmenntir og leiklist
39