Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Blaðsíða 44
ÞJÓNNINN Borga (ÞJÓNNINN kemur með reikninginn) Fjörutíuogþrjár og áttatíu
M Ha?! Djöfulsins! Er glerið innifalið!
ÞJÓNNINN Þið tvær voruð með þrjú glös og þér eitt. Frúin sem
M sat héma áðan var með þrjú glös og nautasteik Hún var full
K Frúin borgaði sjálf
M Frúin er búin að borga glösin sín þrjú, ekki satt?
K Á hreinu
ÞJÓNNINN Nei
M (M slær í borðið með lófanum) Við borgum sex vínglös / og haltu kjafti ef þú
K heldur að þú getir kúgað útúr okkur — Reyndu aldrei að keyra yfir tvær konur!
KONAN Þrjár!
(K og M leita að peningim í vösunum. Óskýrt muldur.
K: „Komdu með eitthvað." M: „Er ekki með neitt."
KONAN réttir hikandi peningaseðil til að borga allt. K
reynir að ná peningum úr veski M. M: „Burt með
krumlurnar!" o.s.frv. Myrkur.)
Hafliði Amgrímsson þýddi
Hér birtist fyrstu tvö atriði upphafsþáttar Kalldewey farsa, þýska
leikskáldsins Botho Straufi. Hann fæddist 2. desember 1944 í
Naumburg an der Saale í héraðinu Turingen í Þýskalandi. Hann
stundaði nám í germönskum fræðum, leiklistarsögu og
þjóðfélagsfræði í Köln og Munchen. Á árunum 1967-1970 var hann
einn ritstjóra og gagnrýnenda leikhústímaritsins „Theater heute".
1979-1982 var hann leiklistarráðgjafi (dramatúrg) við Schaubiihne í
Berlín. Síðan hefur hann eingöngu fengist við ritstörf og býr í Berlín.
Botho Straufí er einn mikilvægasti samtímahöfundur Þýskalands og
auk sex skáldsagna hefur sent frá sér ellefu leikrit: Hin
ímyndunarveiku (Die Hypochonder,1972), Þekkt andlit, blendnar
tilfinningar (Bekannte Geschichter, gemischte Gefúhle, 1975),
Þríleikur endurfunda (Trilogie des Wiedersehens, 1976), Stór og
smár (Grofí und klein, 1978), Kalldewey Farsi (Kalldewey Farce
44
Bjartur ogfrú Emilía