Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Page 30

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Page 30
farin að væla. „Þú varst að plata, það eru engin fiðrildi, þú varst að plata." Hún fór að gráta, hræðilegum uppgerðar gráti og reyndi að losa höndina. Hún vildi ekki hlusta þegar ég talaði hana til. Ég greip þéttar um höndina og dró hana inn í göngin. Nú öskraði hún, endalaust skerandi hljóð bergmálaði frá veggjum og lofti ganganna og fyllti höfuðið á mér. Ég bar hana og dró beint inn í göngin, um það bil hálfa leið í gegn. Og þar drukknaði skyndilega öskur hennar í drunum jámbrautarlestar fyrir ofan okkur og himinn og jörð hristust saman. Lestin var lengi að fara hjá. Ég hélt höndum hennar fast niður með síðum hennar og hún streittist ekki á móti, gnýrinn rændi hana öllum mætti. Þegar bergmáhð dó út sagði hún dauflega: „Mig langar til mömmu." Ég renndi niður buxnaklaufinni. Ég vissi ekki hvort hún gat séð það sem teygði sig í áttina til hennar í myrkrinu. „Komdu við það," sagði ég og tók í axlirnar á henni og hristi hana aðeins til. Hún hreyfði sig ekki, svo ég hristi hana aftur. „Komdu við mig, já. Þú veist hvað ég á við, ha?" Það sem ég vildi var sáraeinfalt. Nú tók ég í hana með báðum höndum, hristi hana óþyrmilega og hrópaði.: „Komdu við það, komdu við það." Hún rétti fram höndina og rétt straukst við typpið á mér með fingurgómunum. Það var samt nóg. Ég fór í keng og fékk það. Það gusaðist í lófann á mér. Eins og lestina tók það langan tíma að sprautast í hendumar á mér. Allar þær stundir sem ég hafði verið aleinn sprautuðust út, allir klukkutímamir sem ég hafði verið einn á gangi, allar hugsanimar, allt þetta gusaðist í lófann á mér. Þegar því var lokið var ég kyrr í sömu stellingu í nokkrar mínútur með opinn lófann fyrir framan mig. Hugur minn var skýr, líkaminn afslappaður og ég hugsaði ekki um neitt. Ég lagðist á magann teygði mig niður í vatnið og þvoði hendumar í síkinu. Það var erfitt að ná þessu jukki af í köldu vatninu. Það loddi við finguma eins og skán. Ég kroppaði það af. Þá mundi ég eftir stelpunni, hún var ekki lengur hjá mér. Ég gæti ekki hleypt henni heim núna, ekki eftir þetta. Ég yrði að elta hana. 30 Bjartur ogfrú Emilía

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.