Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Page 31

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1991, Page 31
Ég stóð upp og sá dökka útlínumynd hennar við gangaendann. Hún gekk í ofbirtu hægt meðfram síkisbakkanum. Ég gat ekki hlaupið hratt því ég sá ekki veginn framundan. Því meir sem ég nálgaðist sólarljósið við enda ganganna því erfiðara var að sjá. Jane var nærri því komin út úr göngunum. Þegar hún heyrði fótatak mitt nálgast, leit hún við og rak upp einskonar gelt. Hún tók til fótanna en hrasaði um leið. Það var erfitt að átta sig á hvað hafði gerst þaðan sem ég var, dökk útlínumynd hennar sem bar við himin hvarf skyndilega niður í sortann. Þegar ég kom að henni lá hún á grúfu með vinstri fótinn fyrir utan slóðann, nærri því út í síkinu. í fallinu hafði höfuðið skollið í götuna og hún var með kúlu fyrir ofan hægra augað. Hægri hönd hennar teygði sig fram, næstum því út í sólarljósið. Ég hallaði mér upp að andliti hennar og hlustaði á andardráttinn. Hann var djúpur og reglulegur. Augun voru alveg lokuð og augnhárin enn tárvot. Mig langaði ekki lengur að koma við hana, nú hafði það allt sprautast út, niður í síkið. Ég strauk óhreinindin framan úr henni og aftan af rauða kjólnum. „Heimska stelpa," sagði ég, „engin fiðrildi." Síðan tók ég hana varlega upp, ofurvarlega, eins og til að vekja hana ekki og lét hana svífa hljóðlega niður í síkið. Oftast sit ég á tröppum bókasafnsins, mér finnst það betra en að fara inn og lesa bækur. Maður lærir meira fyrir utan. Ég sat þar núna seinnipart sunnudags, hlustaði á hjartslátt minn róast og verða aftur eins og hann er dagsdaglega. Aftur og aftur hugsaði ég um það sem gerst hafði og hvað ég hefði átt að gera. Ég sá steininn fleyta kerlingar eftir götunni og hvernig ég tók hann laglega niður með fætinum, nærri því án þess að snúa mér við, þakkaði lófatak þeirra með örlitlu brosi. Svo hefði ég átt að sparka steininum til baka eða enn betra hefði verið að stíga yfir hann og ganga kæruleysislega til þeirra og síðan þegar boltinn kæmi til baka hefði ég verið með, einn af þeim, í liði. Ég spilaði á götunni með þeim á hverju kvöldi, lærði nöfn þeirra og þeir mitt. Að degi til myndi ég sjá þá niður í bæ og þeir myndu kalla á mig þvert yfir götuna, koma síðan yfir og spjalla. Þegar leikurinn er búinn kemur einn þeirra til Tímarit um bókmenntir og leiklist 31

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.