Fréttablaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Nobu er veitiNga-
staður fræga
fólksiNs og þaNgað kemur
frægt fólk hvert eiNasta
kvöld að borða.
Ég kom hingað upphaflega til að taka þátt í Food and Fun, en þar kynntist ég eigendum
Burro. Eftir það vorum við í miklu
sambandi. Í kjölfarið var mér boðið
það tækifæri að koma hingað til
Íslands og aðstoða við opnun á þess-
um spennandi nýja veitingastað,“
segir Mark Morrans, meistarakokkur
frá hinum heimsfræga veitingastað
Nobu, en hann mun dvelja hér á
landi fram yfir áramót og aðstoðar
við opnun á nýjasta veitingastað
borgarinnar, Burro, sem verður opn-
aður á næstu dögum.
„Þetta er frábært tækifæri fyrir
mig,“ segir Mark spurður hvernig
honum lítist á verkefnið sem fram
undan er.
En hvernig var að vinna á svo
frægum og þekktum veitingastað
sem Nobu, stað sem hefur í gegnum
árin vakið mikla athygli fyrir gæði og
frábæra eldamennsku?
„Nobu er talin einn besti japanski
veitingastaðurinn í heiminum, og
hefur fræga fólkið sótt veitinga-
staðinn af kappi. Ég var mjög ungur
þegar ég byrjaði að vinna á Nobu og
þar var allt svo nýtt fyrir mér. Þetta
var virkilega krefjandi reynsla en
á sama tíma mjög skemmtileg og
gefandi,“ segir Mark, og bætir við að
Nobu sé meðal annars virkilega vin-
sæll hjá fína og fræga fólkinu, og er
því spurning hvort nýi Íslandsvinur-
inn sé vanur því að elda ofan í Holly-
wood-stjörnur kvöld eftir kvöld.
„Nobu er veitingastaður fræga
fólksins og þangað kemur frægt fólk
hvert einasta kvöld að borða, svo já,
ég hef eldað fyrir fullt af þekktu
fólki, og má þar nefna til dæmis
Mark Hoppers, bassaleikarann í
Blink 182, Bryan Johnson í AC/DC,
leikkonuna Nicole Kidman og lík-
lega allt Formúlu 1 keppnisliðið,“
segir hann léttur.
Mark er nýkominn til landsins
og vinnur nú af kappi við að opna
Burro. Óhætt er að segja að veit-
ingastaðurinn Burro sé vítamín-
sprauta fyrir veitingastaðamenningu
borgarinnar, með framandi réttum
og einstöku kokteilaframboði, en
efri hæð Burro verður Pablo Disco-
bar, fagmannlegur og framandi
kokteilastaður, þar sem barþjónar
munu bjóða upp á drykki í hæsta
gæðaflokki.
„Það er frábært að koma og vinna
að opnun Burro, þetta verður algjör-
lega frábær veitingastaður. Líflegt
andrúmsloft og hönnun staðarins
gefa honum fjöruga sérstöðu en gæði
staðarins eru tryggð með færustu fag-
mönnum á sínu sviði. Gott hráefni,
ásýnd staðarins og vinalegt viðmót
tryggir að gæði séu áberandi í upp-
lifuninni,“ segir hann spenntur fyrir
opnun staðarins og bætir við að
Burro verði suður-amerískur tapas-
bar, þar sem gleðin og vinalegt and-
rúmsloft verði í fyrirrúmi.
gudrunjona@frettabladid.is
frá Nobu til Íslands
Mark Morrans, meistarakokkur veitingastaðarins fræga Nobu, er
mættur til landsins og vinnur nú við opnun veitingastaðarins Burro.
Mark Morrans, meistarakokkur frá hinum heimsfræga veitingastað Nobu, er staddur hér á landi og aðstoðar við opnun á
Burro. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR
Í þessari bók er safnað saman
frægustu ljóðaflokkum
Rimbauds og hafa þýðendur
skipt með sér verkum þannig
að Sigurður Pálsson þýðir
prósaljóðasafnið Uppljómanir
en Sölvi Björn Sigurðsson
Árstíð í helvíti og ýmis
ljóð í bundnu máli.
AÐ
LOKNU
SYNDA-
FLÓÐI
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
2 8 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U D A G U r46 L í F i ð ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
8
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
8
-B
7
0
8
1
B
1
8
-B
5
C
C
1
B
1
8
-B
4
9
0
1
B
1
8
-B
3
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K