Fréttablaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 10
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
Klæðskerasniðin fyrir þá sem þurfa
gleraugu til að sjá bæði vel frá sér
og nær sér. Hægt er að breyta
uppsetningunni á glerinu eftir því hvort
þú ert í mikilli lestrarvinnu eða þarft
að nota fjarlægðarstyrkinn meira.
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S: 587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
SELFOSS
S:482 3949
afsláttur
til 18. nóvember
25%
MARGSKIPT GLER
VARIO
l Jóhanna María
Sigmundsdóttir
(B) er yngsti þing-
maðurinn sem náð
hefur kjöri á þing, 21
árs og 303 daga gömul.
l Víðir Smári Petersen
(D) er yngstur til
að taka sæti sem
varamaður á þingi,
21 árs og 328 daga
gamall. Það var í
september 2010.
l Jóhanna María hlaut kosningu
27. apríl en 142. þing kom ekki
saman fyrr en í júní. Víðir Smári
er því enn yngstur til að setjast
á þing.
Nokkrar tölulegar staðreyndir um þingkosningarnar
15.743 kjósa í fyrsta sinn
8.708
fleiri á kjörskrá nú
en 2013
50,1%
kjósenda er konur
1.302
frambjóðendur
13.841
á kjörskrá búsettur erlendis
4047
ára meðalaldur frambjóðenda
Fjórir gætu orðið yngsti þingmaðurinn
Sé litið til niðurstaða skoðanakannana er enginn frambjóðandi líklegur til að slá met Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur sem yngsti
kjörni þingmaðurinn. Víðir Smári Petersen er yngstur til að setjast á þing en fjórir mögulegir varamenn gætu rænt því meti frá honum.
Melkorka Ýrr Yrsudóttir
6. sæti Sjálfstæðisflokksins í
Norðausturkjördæmi.
Fædd 20. janúar 1998.
Til að slá metið þarf Sjálf-
stæðisflokkurinn að bæta
við sig þriðja þingmanninum
í Norðausturkjördæmi og Mel-
korka að taka sæti fyrir 15. desember 2019.
Helstu baráttumál Virkja ungt fólk til stjórn-
málaþátttöku, húsnæðismál og menntamál
á landsbyggðinni.
„Ég hóf að kynna mér flokkana fyrir
sveitar stjórnarkosningarnar árið 2014.
Hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um
frelsi og sjálfstæði einstaklingsins heill-
uðu mig,“ segir Melkorka Ýrr Yrsudóttir.
Út frá því hóf hún að starfa í Verði, félagi
ungra Sjálfstæðismanna á Akureyri.
Kosningabaráttan hefur gengið vel að
sögn Melkorku. Hún hafi mætt nokkrum
neikvæðum röddum en þær jákvæðu séu
fleiri og vegi þyngra. „Þetta hefur verið
mikill skóli og ég hef ítrekað þurft að stíga
langt út fyrir þægindarammann.“
Að bjóða sig fram var ekki auðveld
ákvörðun enda þátttaka í framboðinu tíma-
frek. „Það er svo margt ungt fólk sem
hefur áhuga á stjórnmálum en skortir
kannski kjark til að taka þátt. Ég tel mikil-
vægt að ungt fólk sé áberandi innan allra
flokka. Síðan hvet ég alla til að kynna sér
flokkana og nýta kosningaréttinn.“
Bjarni Halldór Janusson
4. sæti Viðreisnar í Suðvestur.
Fæddur 4. desember 1995.
Til að slá metið þyrfti
Viðreisn að ná tveimur
mönnum inn í Suðvestur-
kjördæmi og Bjarni að taka
sæti fyrir 27. október 2017.
Helstu baráttumál Húsnæðisvandinn,
aðgengilegri sálfræðiþjónusta,
frjálslyndara samfélag.
„Ég hóf þátttöku í Viðreisn árið 2014
áður en aflið var formlega stofnað,“ segir
Bjarni Halldór Janusson. Hann segir
ferskleikann og fagmennskuna í kringum
stefnumótunarstarf flokksins hafa gripið
sig. „Ég trúi því að vinnubrögð Viðreisnar
séu best til þess fallin að koma umbótum í
framkvæmd.“
Að taka þátt í kosningabaráttunni hefur
gefið Bjarna mikið. Sambönd myndist
innan flokksins og þar sé að finna sterka
liðsheild. Síðan myndist einnig vinabönd
við frambjóðendur annarra flokka þegar
fólk hittist á hinum ýmsu viðburðum.
„Ég hef lengi gengið með þingmann
í maganum. Lengi vel var ég kallaður
Bjarni ráðherra í gríni því ég hafði skoðun
á svo mörgu,“ segir Bjarni. „Í grunnskóla
grínaðist ég stundum með það að ég ætlaði
að verða yngsti þingmaðurinn. Nú hefur
fólk komið til mín og gantast með að sú
gæti orðið raunin.“
HollaNd Gambía hefur nú, ásamt
Suður-Afríku og Búrúndí, boðað
úrsögn úr Alþjóðasakadómstólnum,
sem er stríðsglæpadómstóll Samein-
uðu þjóðanna í Haag.
Ríkin þrjú saka dómstólinn um
að beina kröftum sínum einkum að
Afríku en láta aðra heimshluta í friði.
„Mörg vestræn ríki, að minnsta
kosti þrjátíu, hafa framið svívirði-
lega stríðsglæpi gegn sjálfstæðum
fullvalda ríkjum og borgurum þeirra
frá því Alþjóðasakadómstóllinn tók
til starfa, en ekki einn einasti stríðs-
glæpamaður frá Vesturlöndum hefur
verið ákærður,“ sagði Sheriff Bojang,
upplýsingamálaráðherra Gambíu.
Gambía hefur reynt að fá dóm-
stólinn til að draga vestræna ráða-
menn til ábyrgðar vegna flótta-
manna sem drukknað hafa í
Miðjarðarhafi.
Namibía og Kenía hafa einnig sagt
að úrsögn komi til greina.
Flest ríki heims eiga aðild að dóm-
stólnum, en meðal undantekninga
frá því má nefna Bandaríkin, Rúss-
land, Kína og Indland. – gb
Afríkuríki úr
dómstóli
Hluti dómara við Alþjóðasakadóm-
stólinn í Haag. FréTTABlAðið/EPA
Jóhann Óli
Eiðsson
johannoli@frettabladid.is
246.515
kjósendur á
kjörskrárstofni
Páll Marís Pálsson
3. sæti Framsóknarflokks
í Suðvesturkjördæmi.
Fæddur 11. maí 1997.
Til að slá metið þarf Fram-
sókn að halda tveimur
þingmönnum í Suðvestur-
kjördæmi og Páll að taka sæti
fyrir 4. apríl 2019.
Helstu baráttumál Afnám bleika skattsins,
málefni innflytjenda og flóttamanna og nú-
tímavæðing menntakerfisins.
„Ég kynnti mér alla flokkana fyrir síðustu
kosningar og heillaðist af þessari miðju-
samvinnustefnu,“ segir Páll Marís Páls-
son. Hann segist hafa þurft að hugsa sig
tvisvar um áður en hann ákvað að bjóða
sig fram. „Maður hefur séð hvernig hið
pólitíska umhverfi er og umræðan í kring-
um það. En ég lét slag standa og sé ekki
eftir því.“
„Ég hafði ekki spáð í því að ég gæti orðið
yngstur. Ég fór ekki í pólitík til að slá nein
met,“ segir Páll en bætir við að skemmti-
legt sé að svona skuli hafa hist á. „Ef svo
fer þá eru margir sem lögðu traust sitt
á mig og ég mun gera mitt besta til að
standa undir því.“
Að lokum vill Páll minna ungt fólk á
að fara á kjörstað. „Ef við viljum að rödd
okkar heyrist þá verður ungt fólk að nýta
lýðræðislegan rétt sinn, fara á kjörstað og
kjósa.“
Starri Reynisson
3. sæti Bjartrar framtíðar
í Reykjavíkurkjördæmi
norður.
Fæddur 6. júlí 1995.
Til að slá metið þyrfti Björt
framtíð að ná inn tveimur
mönnum í Reykjavík norður og
Starri að taka sæti fyrir 30. maí 2017.
Helstu baráttumál Ísland í ESB, uppstokkun
í menntakerfinu og umhverfismál.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Starri setið
í stjórn Bjartrar framtíðar frá árinu 2014.
„Björt framtíð er frjálslyndur alþjóðasinn-
aður miðjuflokkur og ég er akkúrat frjáls-
lyndur alþjóðasinnaður maður. Þetta var
því rökréttasti kosturinn.“
Það var að miklu leyti utanaðkomandi
þrýstingur sem varð til þess að Starri bauð
sig fram. Sá þrýstingur kom bæði frá sam-
flokksmönnum hans og ALDE, evrópskum
regnhlífarsamtökum frjálslyndra miðju-
manna. „Það voru allir svo æstir í að ég
færi fram að ég sló til,“ segir Starri og
hlær.
„Kosningabaráttan hefur bara gengið
vel. Við mældumst með tvö prósent í sept-
ember en höfum verið að daðra við átta níu
prósentin nú. Björt framtíð hefur fundið
fyrir velvilja í sinn garð,“ segir Starri.
2 8 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F Ö S t U d a G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
2
8
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
8
-F
7
3
8
1
B
1
8
-F
5
F
C
1
B
1
8
-F
4
C
0
1
B
1
8
-F
3
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K