Fréttablaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 40
Nanna er ekki óvön því að koma
fólki í gang aftur eftir hlé frá rækt
inni. Hún segist fá marga til sín
sem hafa aldrei stundað líkams
rækt. Nanna er með hópeinkaþjálf
un á Seltjarnarnesi sem hentar fólki
ákaflega vel. Fólk fær þann stuðn
ing og aga sem þarf. „Það þurfa allir
að finna hvað hentar best. Með því
að prófa einkaþjálfun í nokkra mán
uði er hægt að komast að því. Auk
þess er fylgst vel með fólki og það
fær fagleg ráð. Það eru auðvitað
til fjölmargar leiðir til að byrja að
hreyfa sig, hópeinkaþjálfun er ein
af þeim bestu að mínu mati. Það er
ódýrara fyrir fólk en einkaþjálfun
og oft skemmtilegra,“ segir Nanna.
Raunhæf markmið
„Öll hreyfing er til bóta. Hálf
tíma göngutúr á dag gerir heilmik
ið fyrir líkamann. Ég held að allir
séu meðvitaðir um nauðsyn hreyf
ingar en fólk kemur með alls kyns
afsakanir fyrir því að hreyfa sig
ekki. Tímaleysi er algeng afsökun,“
segir Nanna. „Þetta snýst fyrst og
fremst um raunhæft markmið og
að koma hreyfingu dagsins upp í
vana. Við getum ákveðið að hreyfa
okkur þrisvar sinnum í viku í fjór
ar vikur og sjá til hvernig það geng
ur. Ef það gengur ekki upp þarf að
endurskoða markmiðið. Við megum
aldrei ofgera okkur og markmiðin
eiga að vera raunhæf. Tímaleysi er
engin afsökun. Það er alltaf hægt
að finna hálftíma í sólarhringnum
fyrir sig, hvort sem það er mjög
snemma á morgnana, í hádeg
inu eða á kvöldin.
Meiri lífsgæði
Hreyfingin getur verið heima.
Ekki er nauðsynlegt að fara
í líkamsræktarstöð. Það er
meira að segja oft hægt að
gera hreyfingu í vinnunni,
fara í stuttan göngutúr í
kaffitímanum. Lífs
gæði fólks aukast
alltaf með hreyf
ingu. Ég segi við
fólk að ef það vill
fara eitt í búðina
þegar það verð
ur á áttræðis
aldri eða geta haldið á barna
börnunum síðar á ævinni verði
það að hreyfa sig. Það hefur orðið
mikil vakning í hreyfingu á Ís
landi sem er mjög til bóta. Mér
finnst mjög gaman að sjá fjölda
fólks úti að hlaupa eða hjóla á
sumrin. Fólk er orðið meðvitað um
að hreyfing er nauðsynleg,“ segir
Nanna.
Zumba góð hreyfing
Hún segir að dans sé líka hreyf
ing og að margir hafi fundið sig
í zumba. „Fullt af fólki gleymir
stað og stund í zumba og finnst
tímarnir æðislegir. Það upp
lifir sig ekki í líkamsrækt en
zumba er mjög góð hreyfing.
Þegar fólk byrjar að hreyfa
sig breytist hugsunarháttur
ósjálfrátt og þar með mat
aræðið,“ segir Nanna og
hvetur fólk til að fara
rólega af stað en með
ákveðin markmið.
„Ef fólk fylgir því
nær það árangri og
fer fljótt að finna
breytingar. Það
sefur betur, líður
betur andlega,
losnar við höf
uðverk og er
orkumeira.“
Mikil vakning
í hreyfingu á meðal fólks
Nanna Árnadóttir, íþróttafræðingur og danskennari, kann öll trixin þegar þarf að fá sófadýr til að hreyfa
sig. Hún bendir þó fólki á að fara rólega af stað. Besta leiðin er að hafa einhvern sem hjálpar manni að
komast yfir erfiðasta þröskuldinn. Ekki þarf að fara út úr húsi í líkamsrækt, hægt er að stunda hana heima.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Nanna Árna-
dóttir íþrótta-
fræðingur
hvetur fólk til að
setja sér raunhæf
markmið þegar
það byrjar að
hreyfa sig.
MyNd/VAlli
Þetta snýst fyrst
og fremst um
raunhæft markmið og að
koma hreyfingu dagsins
upp í vana. Við getum
ákveðið að hreyfa okkur
þrisvar sinnum í viku í
fjórar vikur og sjá til
hvernig það gengur. Ef
það gengur ekki upp þarf
að endurskoða mark-
miðið.
Hágæða prótein eftirréttir
fyrir alla!
Glæsibæ
Verð
frá
3990
kr.
hEilsurækt kynningarblað
28. október 201610
2
8
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
8
-D
9
9
8
1
B
1
8
-D
8
5
C
1
B
1
8
-D
7
2
0
1
B
1
8
-D
5
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K