Morgunblaðið - 20.10.2015, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hundruð nýrra starfa munu verða
til á Keflavíkurflugvelli næsta sumar
og gera nær allir rekstraraðilar ráð
fyrir að fjölga hjá sér fólki. Þetta
kemur fram í samantekt Isavia og
samtölum Morgunblaðsins við tals-
menn sex fyrirtækja á vellinum.
Samkvæmt samantekt Isavia munu
bætast við ríflega 430 störf hjá
Isavia og 25 rekstraraðilum, að lög-
reglunni og tollinum meðtöldum.
Eins og sýnt er hér til hliðar áætl-
ar Isavia að um 2.800 manns muni
starfa á Keflavíkurflugvelli næsta
sumar. Það er varlega áætlað.
Þannig eru hér ekki taldir með
margir tugir leigubílstjóra og bíl-
stjórar hópferðabifreiða, ekki heldur
flugmenn, flugþjónar og flugfreyjur.
Þá skapar flugstöðin fjölda starfa
fyrir verktaka og þjónustufyrirtæki.
Flugfélögin Icelandair og WOW
Air hyggjast fjölga hjá sér fólki á
næsta ári. Samkvæmt upplýsingum
frá Icelandair má gera ráð fyrir að
starfsmönnum hjá félaginu muni
fjölga um 200 til 250 milli ára 2015
og 2016. Til viðbótar komi aukning
hjá systurfélögum í Icelandair Gro-
up. Þá hyggst WOW Air fjölga
starfsmönnum um 200 næstu níu
mánuði.
Sinna ýmsum verkefnum
Guðni Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi hjá Isavia, segir að hjá fyrir-
tækinu starfi fólk við ýmislegt í flug-
stöðinni og nefnir sem dæmi
flugvernd, þjónustuliða, skrifstofu-
fólk og bílastæðaþjónustu.
Guðni segir aðspurður að fyrir-
tækin Airport Associates og IGS
sinni þjónustu við flugvélar.
Þá áréttar Guðni að þessi saman-
tekt eigi aðeins við fólk sem vinnur á
vellinum og við flugstöðina.
„Úti á flugvallarsvæðinu starfar
nokkur fjöldi fólks við flugvallar-
þjónustu sem felur í sér snjómokst-
ur, brautareftirlit, slökkvi- og björg-
unarþjónustu, raftæknideild,
flugumferðarstjórn í flugturni og
fleiri aðila,“ segir Guðni og bendir á
að mikil fjölgun farþega kalli líka á
fjölgun í þessum hópum.
Hann segir það þumalputtareglu í
fluginu að á flugvelli þurfi þúsund
starfsmenn fyrir hverja milljón far-
þega. Nú sé áætlað að 4,8 milljónir
farþega fari um völlinn í ár, eða um
milljón fleiri en í fyrra og 1,6 millj-
ónum fleiri en árið 2013. Skv. því
ættu að hafa skapast 1.600 ný störf
frá ársbyrjun 2013 til ársloka 2015.
Guðni segir áætlað að farþegar
verði um 6 milljónir á næsta ári og
ætti því að þurfa 1.200 fleiri starfs-
menn á næsta ári en á þessu ári.
Meðal þeirra 25 rekstraraðila sem
samantekt Isavia nær til er fyrir-
tækið Lagardère Travel Retail
(LTR), sem rekur matvörumark-
aðinn Pure Food Hall, Loksins bar
og veitingastaðina Nord, Segafredo,
Mathús og Mathús suður.
Næst á eftir Isavia er IGS Ground
Services sennilega stærsti vinnu-
veitandinn á Keflavíkurflugvelli. Þar
starfa nú um 670 manns og enn fleiri
yfir hásumarið.
Svala E. Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður starfsmannaþjónustu hjá
IGS Ground Services, segir að
starfsmenn fyrirtækisins hafi verið
um 800 sl. sumar. Nú sé verið að
áætla flugumferðina næsta sumar.
900 starfsmenn hjá IGS 2016?
Við fyrstu skoðun virðist sem
starfsmennirnir geti jafnvel orðið yf-
ir 900 næsta sumar, eða 50 fleiri en
Isavia áætlar í samantektinni hér.
Hjá IGS Ground Services starfar
fólk í ýmsum deildum. Það starfar
við innritun, vinnur við að hlaða og
afhlaða flugvélar, starfar í vöruhúsi
fyrir flugfrakt, við ræstingu í flug-
vélum, við veitingaþjónustu á bið-
stofunni Saga Lounge og framleiðir
mat í flugvélarnar, til dæmis hjá Ice-
landair.
Daníel Kári Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Joe & the Juice á Ís-
landi, segir nú um 34 starfsmenn hjá
fyrirtækinu á Keflavíkurflugvelli, í
hlutastarfi og fullu starfi.
„Það var mjög mikið að gera í
sumar. Umferðin hefur aðeins róast
en er samt talsvert meiri en við
bjuggumst við. Aukningin á vell-
inum er langt umfram spár. Við vor-
um þegar mest var með 45-50 starfs-
menn í sumar og hefðum viljað hafa
fleiri. Það gekk hins vegar erfiðlega
að fá fólk. Það var orðin barátta um
sama fólkið á Keflavíkurflugvelli.
Þegar skólarnir byrja er enn viss há-
punktur í ferðaþjónustu og þá lenda
mörg fyrirtæki á vellinum í vand-
ræðum,“ segir Daníel Kári.
Þúsundir munu starfa á vellinum
Isavia áætlar að minnst 430 ný störf verði til á Keflavíkurflugvelli á næsta ári Nær öll fyrirtækin
ætla að fjölga fólki Til viðbótar munu m.a. bætast við 400-450 ný störf hjá Icelandair og WOW Air
Farþegum fjölgar ört
» Árið 2004 fóru 1.883.725
farþegar um Keflavíkurflugvöll.
» Til samanburðar fór
3.821.671 farþegi um völlinn á
fyrstu níu mánuðum þessa árs.
» Júlí var annasamasti mán-
uðurinn 2004 en farþegar voru
þá samtals 267.732.
» Júlí er annasamasti mán-
uður þessa árs, þá fóru
662.729 farþegar um völlinn.
» Umferðin í júlí var því 148%
meiri en í júlí 2004.
Hluti starfsmanna á Keflavíkurflugvelli sumar og haust 2015 og sumar 2016*
Fyrirtæki
Sumar
2015
Október
2015
Sumar
2016
(áætlun)
Breyting
milli
sumra Fyrirtæki
Sumar
2015
Október
2015
Sumar
2016
(áætlun)
Breyting
milli
sumra
Isavia
Fríhöfnin
Flugstöð**
249
457
193
388
262
565
5%
24%
Iceland
Excursions 8 8 10 25%
10-11 17 13 20 18% IGS 667 770 850 27%
A. Óskarsson*** 10 11 14 40% Joe and Juice 58 41 65 12%
Airport
Associates 300 200 380 27% Landsbankinn 35 22 35 0%
Airport Fashion 12 10 16 33% Lögreglan 48 32 42 -13%
Allt hreint 2 2 2,5 25% LTR**** 146 128 150 3%
Alp ? ? ? ? Optical Studio 15 10 16 7%
AÞ þrif 29 26 29 0% Penninn 11 8 14 27%
Bláa lónið 14 8 13 -7%
Rammagerðin /
66°N 31 25 35 13%
Elko 18 15 18 0%
Reykjavik
Excursions 13 10 14 8%
Fagræsting 15 9 6 -60% Tollur 53 44 53 0%
Hertz 38 13 41,8 10% WOWair 6 6 20 233%
Höldur 32 20 37 16% Securitas 20 16 24 20%
Icelandair 40 32 44 10%
Samtals 2.344 2.060 2.776 18%
* Heimild: Isavia.
**Starfsmenn Isavia í flugstöðinni starfa meðal annars við flugvernd, sem þjónustuliðar, sem skrifstofufólk, við bílastæðaþjónustu og fleira.
***A. Óskarsson er verktakafyrirtæki sem sinnir viðhaldi í flugstöðinni.
****Undir Lagardère Travel Retail (LTR) heyrir m.a. rekstur Pure Food Hall, Nord, Segafredo, Mathúss, Mathúss suður og Loksins bars.
Gestur Hjaltason, framkvæmda-
stjóri Elko, segir 15 starfsmenn nú
á launaskrá hjá fyrirtækinu á Kefla-
víkurflugvelli, eða um tveimur fleiri
en þegar reksturinn hófst 2007.
Hluti starfsmanna sé ekki í fullu
starfi.
Spurður hvernig verslunin gangi
á flugvellinum segir Gestur að hún
sé nú svipuð og metárið 2007.
„Verslunin dróst verulega saman
árið 2008. Þá fækkaði Íslendingum
um helming. Það hafði auðvitað
gríðarleg áhrif á afkomuna hjá okk-
ur. Nú erum við að nálgast veltutöl-
ur sem við sáum
2007,“ segir
Gestur og bendir
á að vörugjöld
hafi verið afnum-
in um síðustu
áramót. Því þurfi
mikla magnaukn-
ingu til að salan
aukist milli ára í
krónum talið, líkt og hún hafi gert í
ár. Vegna afnáms vörugjalda og
styrkingar krónu sé verð á raftækj-
um nú 13% lægra en í fyrra.
„Þannig að magnaukningin í söl-
unni hjá okkur er mikil. Það er held-
ur meiri aukning í flugstöðinni en í
öðrum búðum hjá okkur. Í heild er
þetta ár svipað hjá okkur og þegar
best gekk,“ segir Gestur og vísar til
áranna 2006 og 2007. Gestur segir
erlenda ferðamenn að baki 30-35%
af veltunni hjá Elko. Hann áætlar að
hlutur snjallsíma í allri sölu í flug-
stöðinni sé um 50%. Hægt sé að
gera góð kaup enda séu símarnir að
jafnaði 15% ódýrari en í öðrum
verslunum Elko. Árið 2007 hafi
myndavélar hins vegar verið að
baki helmingi sölunnar.
Salan hjá Elko jafnast á við metárið 2007
FRAMKVÆMDASTJÓRI ELKO SEGIR MIKLA MAGNAUKNINGU Í SÖLUNNI MILLI ÁRA
Gestur Hjaltason
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Minjastofnun Íslands hefur lagt
fram tillögu um friðlýsingu á ytra
byrði Laugavegar 3 í Reykjavík.
Í rökstuðningi fyrir friðlýsingunni
kemur fram að Laugavegur 3 sé
fjórlyft verslunar- og skrifstofuhús,
byggt í áföngum á árunum 1920-29
eftir uppdráttum Guðjóns Samúels-
sonar húsameistara.
Byggingin sé „eitt af fyrstu stór-
hýsum Guðjóns í miðborg Reykja-
víkur og eitt veglegasta versl-
unarhús við Laugaveg frá
upphafsárum steinsteypualdar“.
Húsið hafi nýlega endurheimt sinn
upphaflega glæsileik.
Spurður um friðlýsinguna segir
Pétur H. Ármannsson, arkitekt og
sviðsstjóri hjá Minjastofnun, að hún
feli í sér viðurkenningu vegna end-
urbóta á húsinu.
„Við höfum nú ákveðið að leggja
þetta til. Það er reyndar svo að einn
af megineigendum hússins óskaði
eftir þessu sérstaklega og sendi okk-
ur erindi fyrr í sumar. Sá aðili hefur
staðið fyrir viðgerðum á öllum
gluggum í húsinu, sem er orðið mjög
fallegt. Þessi tillaga er því viður-
kenning á því góða starfi og þeirri
fórnfýsi sem viðkomandi húseigandi
hefur sýnt, sem fordæmi fyrir aðra.
Það má segja að þetta sé viss heið-
ursfriðlýsing. Hún tekur til ytra
borðs hússins. Hún á ekki að tak-
marka nýtingu þess á nokkurn
hátt,“ segir Pétur.
Vilja friða ytra byrði Laugavegar 3
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugavegur 3 Veitingastaðurinn Dunk-in’ Donuts er á jarðhæð hússins.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Margar
stærðir
og gerðir
Ódýrar mottur
40x60 cm frá kr.
350
PVC mottur 50x80 cm1.590
66x120 cm kr 2.890
100x150 cm kr 5.590
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Breidd: 67 cm
Verð pr. lengdarmeter
1.595
Breidd: 1 metri
Verð pr. lengdarmeter
1.890
6mm gúmmídúkur grófrifflaður
2.990pr.lm.
einnig til 3mm á kr.
1.990
Gúmmímottur margar
gerðir og stærðir,
verðdæmi 66x99cm
2.190