Morgunblaðið - 20.10.2015, Side 11
Litadýrð Geitá rennur úr Eiríksjökli í Hvítá við Húsafell.
hvaðanæva af landinu, jafnstórar og
allar á hæðina fremur en breiddina
og aðeins eina mynd á opnu. Á end-
anum var ég kominn með hátt á
fjórða hundrað mynda, sem mér
fannst jafn erfitt að gera upp á milli
og ef ég þyrfti að að gera upp á milli
barnanna minna. Þegar ég hafði
fækkað myndunum í 200 fór ég að
ganga skipulega til verks, til dæmis
gætti ég þess að hafa ekki alltof
margar myndir frá einum landshluta
frekar en öðrum, þótt Suðurland og
miðhálendið hefðu reyndar vinning-
inn þegar upp var staðið,“ segir Páll
Jökull. „Enda er ég Mýrdælingur og
bý á Selfossi,“ bætir hann við.
Kjörlendur og heilun
Reynisdrangar sem blasa við frá
Vík í Mýrdal og Eystrahorn austan
við Lón eru hans uppáhaldsstaðir.
Annars vegar tignarlegir kletta-
drangar og hins vegar vígalegt fjall,
þar sem eru gríðarleg veðrabrigði og
mikið skýjafar. Kjörlendur ljósmynd-
ara eins og Páls Jökuls, sem líður að
eigin sögn best þegar hann er úti í
náttúrunni. Slíkum stundum líkir
hann við heilun.
Ekki er ólíklegt að slík stund
hafi runnið upp á Vaðlaheiði um mið-
nætti 20. júlí í fyrra þegar hann var á
leið í Eyjafjörðinn og tók forsíðu-
mynd bókarinnar. „Það var að
minnsta kosti súrrealísk stund,“ rifj-
ar hann upp og lýsir nánar: „Skýja-
bakki í norðri og fjörðurinn í appels-
ínugulri þoku svo langt sem augað
eygði. Þrjár kindur stóðu grafkyrrar
og horfðu spakar á þennan litríka
graut. Eftir fimm mínútur röltu þær
svo í rólegheitum niður fjörðinn.“
Fyrir tveimur árum sameinaði
Páll Jökull sín helstu áhugamál;
ferðalög og ljósmyndun, í atvinnu-
skyni og hóf að bjóða erlendum ferða-
mönnum upp á ljósmyndaleiðangra
um allt land.
„Undirbúningurinn tók tölu-
verðan tíma. Ég þurfti að vera með
alls konar leyfi upp á vasann sem og
taka meirapróf og leigubílapróf, þótt
ég keyri aldrei meira en fjóra ferða-
langa í jeppanum mínum, útbúa vef-
síðu og auglýsa þjónustuna á ýmsum
samfélagsmiðlum. Framtakið mælt-
ist vel fyrir, ég fór sjö mislanga og
mismunandi túra í sumar og hef feng-
ið fjölda fyrirspurna. Flestir voru að
koma í fyrsta sinn til landsins og voru
ánægðir með að fá tækifæri til að
taka myndir af stórbrotnu landslag-
inu, svo ekki sé minnst á norðurljósin.
Með svona fáa í hópi get ég aðstoðað
fólkið við myndatökuna og náð per-
sónulegum tengslum við það. Sumir
voru svo ánægðir að þeir vildu helst
ættleiða mig og bjóða mér heim til sín
um jólin,“ segir hann kankvís á svip.
Páll Jökull er oft beðinn að
mynda eitt og annað fyrir fólk úti í
bæ. Sérkennilegasta myndabeiðin
kom nýverið frá indónesísku pari sem
vill fá myndir af sér í brúðkaups-
skrúðanum á Snæfellsnesi um miðjan
nóvember rétt fyrir brúðkaupið.
Hann er efins um að vel viðri fyrir
hvort heldur sem er flíkur, brúðar-
vönd eða myndatöku en ætlar að slá
til.
Hvað ljósmyndatúrismann
áhrærir kveðst hann bjóða upp á
ferðir á ákveðnar slóðir en kappkosti
jafnframt að koma til móts við óskir
hvers og eins, jafnvel þótt hann sé
beðinn að keyra að litlum fossi í litlum
og afskekktum dal sem útlending-
arnir hafa séð myndir af á netinu og
langar að mynda. Páli Jökli finnst
ekkert mál að taka á sig krók. Verra
finnst honum að þurfa að taka á sig
króka framhjá sífellt fleiri möstrum
og háspennulínum sem sjónmenga
umhverfið og hann kærir sig ekki um
að hóparnir sínir sjái. „Vonandi verð-
ur ekki úr þeim áformum að leggja
háspennulínu yfir Sprengisand,“ seg-
ir náttúruunnandinn og víkur talinu
að norðurljósunum, sem allir vonast
til að sjá.
Norðurljósin heilla
„Sumir verða fyrir vonbrigðum
þegar þeir komast að því að norður-
ljósin eru ekki sýnileg og alls ekki á
sumrin. Þeir sem eru svo heppnir að
berja þau augum verða fyrir miklum
hughrifum, veina og hrópa af hrifn-
ingu og „jesúsa sig“ í bak og fyrir.“
Sjálfur er Páll Jökull svolítið
veikur fyrir að mynda norðurljósin. Í
því skyni fer hann stundum út um tíu-
leytið á kvöldin og kemur ekki aftur
heim til sín fyrr en um tvöleytið.
„Myndirnar eru eina sönnun þess að
ég hafi ekki bara verið á einhverju
randi,“ segir hann. Allmargar norð-
urljósamyndir prýða bókina A
Portrait of Iceland.
Eftir tugi ferða um landið þvert
og endilangt er Páll Jökull orðinn
býsna vel að sér í landafræði og veit
hvar hætturnar leynast. Hann gætir
þess að leggja ekki upp í óvissuferðir
með hópana og brýnir fyrir þeim að
horfa í kringum sig og fara varlega.
„Maður bara svitnar við að horfa á
ferðamenn standa á brún Goðafoss og
taka sjálfsmyndir með beljandi foss-
inn í baksýn.“
Þótt Páll Jökull hafi í áranna rás
myndað menn og mannlíf og sitthvað
fleira finnst honum ekkert eins gef-
andi og að mynda landslagið – það
kvarti til dæmis aldrei yfir að vera
ekki með hárgreiðsluna í lagi.
Norðurljós Norðurljósin heilla flesta ljósmyndara.
www.palljokull.net
„Sumir voru svo ánægð-
ir að þeir vildu helst
ættleiða mig og bjóða
mér heim um jólin.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
Hringbraut-miðlun ehf. | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um
starfsemi Landspítala og viðtali við forstjórann
Pál Matthíasson, auk sérfræðinga.
Síðari þátturinn verður á dagskrá Hringbrautar 27. október kl. 21.00.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ
Heimsókn til
Landspítala
við Hringbraut
- fyrri þáttur af tveimur
í þættinum Atvinnulífið
sem er á dagskrá Hringbrautar
kl. 21.00 í kvöld
• Stærsti vinnustaður landsins heimsóttur
þar sem 300.000 komur eru á bráða-
móttökur og framkvæmdar 13.000
skurðaðgerðir á síðasta ári
• Fylgst er með skurðaðgerðum og
rætt við forstjóra auk sérfræðinga
•Þröngur húsakostur og nauðsynleg endur-
nýjun lækningatækja á komandi árum
Á dagskrá
Hringbrautar
í kvöld kl. 21.00