Morgunblaðið - 20.10.2015, Page 14

Morgunblaðið - 20.10.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Austin Mitchell, fyrrverandi þing- maður breska Verkamannaflokks- ins, er væntanlegur hingað til lands í vikunni til að taka á móti viður- kenningu fyrir margháttaðan stuðning við Ísland á undanförnum fjórum áratugum. Eitt af fyrstu málunum sem Mitchell beitti sér fyrir eftir að hann var kjörinn á þing fyrir hafnarbæinn Grimsby 1977 var að aflétta löndunarbanni á íslensk skip í breskum höfnum, en það hafði verið sett á í mótmæla- skyni við útfærslu fiskveiðilögsög- unnar í 200 mílur árið 1975. Ári seinna gátu íslensk skip að nýju landað í Grimsby og Hull. Þorskastríð Fiskveiðilögsaga Íslands var færð út í 12 mílur 1958 og 50 mílur 1972. Fyrir fjörutíu árum, 15. októ- ber 1975, var svo síðasta skrefið stigið með útfærslu lögsögunnar í 200 mílur. Öllum þessum útfærslum var harðlega mótmælt af Bretum og fleiri þjóðum. Gengu Bretar lengst enda hagsmunir þeirra mest- ir, en þeir sendu hingað nokkur herskip til að styðja ólögmætar veiðar fiskiskipa sinna. Landhelg- isgæslan lét hinn ójafna leik ekki trufla sig og klipptu varðskipin hik- laust á veiðarfæri breskra togara hvar sem það var hægt. Var þeim refsað með ásiglingum freigáta og dráttarbáta. Magnaðist deilan við þetta og leiddi m.a. til spennu inn- an Atlantshafsbandalagsins. Um síðir tókust samningar í deilunni eftir fundi í Ósló vorið 1976. Mitchell (fæddur 1934) var um árabil einn af þekktustu þingmönn- um Breta. Hann lét af þing- mennsku fyrr á þessu ári. Áður en hann tók sæti á þingi var hann há- skólakennari og síðan fréttamaður og þáttastjórnandi hjá sjónvarps- stöðinni ITV. Síðustu árin hefur hann verið í forystu þeirra sem gagnrýnir eru á aðild Breta að Evrópusambandinu. Hann hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands og á hér fjölda vina og kunn- ingja. Í forystu Íslandsvinafélags Mitchell var lengi formaður Ís- landsvinafélags breska þingsins. Hann hefur alla tíð verið mjög áhugasamur um útgerð og sjáv- arútvegsmál og m.a. ritað bók um þau efni. Hann sýndi stefnu Íslands í þorskastríðunum mikinn skilning. Þá hefur hann haldið á lofti fisk- veiðistefnu Íslendinga, sem hann segir einkennast af ábyrgð, og telur hana til fyrirmyndar fyrir Bretland og önnur Evrópulönd. Frægt varð árið 2002 þegar Mitchell breytti nafni sínu um tíma í Austin Haddock (ýsa) til að árétta stuðning við útgerðarhagsmuni kjósenda sinna í Grimsby. Hann er eindreginn andstæðingur hinnar sameiginlegu sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins, sem hann tel- ur að hafi skaðað breskan sjávar- útveg. Ljósmynd/Morgunblaðið Mótmæli Allar rúður voru brotnar í breska sendiráðinu í Reykjavík eftir útifund á Lækjartorgi í nóvember 1975. Beitti sér fyrir afnámi löndunarbanns á Ísland  40 ár frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur 1975 Sómi Mitchell verður sæmdur orðu. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Í reglugerð sem fylgir nýsamþykkt- um lögum um sölu fasteigna og skipa sem birt hefur verið á vef atvinnu- vegaráðuneytisins eru störf aðstoð- armanna fasteignasala skilgreind. Eins og fram hefur komið hafa að- stoðarmenn fasteignasala, sem gjarnan eru nefndir sölufulltrúar, lýst óánægju sinni vegna laganna. Þeir höfðu áður nánast óheft frelsi til þess að sinna því sem viðkemur við- skiptum með fasteignir. Er tilgang- ur laganna sá að einungis löggiltir fasteignasalar geti sinnt þeim. Í reglugerðinni eru tilgreind fjögur at- riði sem aðstoðarmenn mega sinna. Þeim er leyfilegt að útvega gögn er varða eign sem er til sölumeðferðar hjá fasteignasölu. Þá mega þeir sækja gögn sem eru til, fara með og sækja skjöl til lánastofnana og emb- ætta og annast skjalavistun og bak- vinnslu. Eins veita almennar upplýs- ingar úr söluyfirliti til viðskiptavina, án þess að í því felist ráðgjöf. Að lok- um mega þeir leggja drög að auglýs- ingum og markaðssetningu fyrir fasteignasala. Þá er tilgreint að þeir megi sinna því sem fellur utan alls þess sem kemur að starfseminni að undanskilinni umsýslu fasteignavið- skipta sem fasteignasala ber að sinna. Hægt er að senda inn um- sagnir um reglugerðina til 22. októ- ber. Rúmur helmingur starfsmanna á fasteignasölum er sölufulltrúar en tæpur helmingur löggiltir fasteigna- salar. Hafa sölufulltrúar sótt sér lög- fræðiráðgjöf til að verja hagsmuni sína. vidar@mbl.is Skjalavarsla og uppflettingar  Störf fulltrúa á fasteignasölum breyt- ast mikið  Veita umsögn um reglurnar Morgunblaðið/Ómar Fasteignir Mikil takmörkun er á störfum sölufulltrúa í nýjum lögum. Jóhannes Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Strætó, er nýkominn heim af stórri strætisvagna- og rútusýningu í Hollandi. Þar var far- ið yfir allt það nýjasta sem í boði er í þessum geira. Þetta er í fyrsta sinn sem Jóhannes fer á þessa sýningu sem haldin er á tveggja ára fresti en hann tók við framkvæmdastjórn Strætó í janúar. „Þeir sem voru með mér og hafa farið áður segja að áður hafi verið talað um hybrid eða tvinnvagna en núna er verið að horfa á rafmagns- vagna. Þeir komast um 300 kíló- metra á hleðslunni en það er tækni- lega erfitt að hlaða þá, það væri gert á ferð í gegnum þakið og það er eitt- hvað sem er ekki hægt í Reykjavík. Þetta er enn í þróunarfasa og svona sýning er til að skyggnast inn í framtíðina,“ segir hann. Jóhannes segir að Strætó muni kaupa 6-8 nýja vagna á hverju ári á næstu árum til að halda kröfum um umhverfisvottun en Strætó er grænt fyrirtæki. „Nýjustu vagnar okkar menga lítið og við viljum vera með vagna sem eru mest 6-8 ára gamlir.“ Grænn útblástur Strætó reiknar með að kaupa 6-8 vagna á ári. Rafmagnsstrætó gæti verið næsta skref Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is 1975-2015 GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu. Við tökum málin þín í okkar hendur Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki 40 ára Dálkur mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.