Morgunblaðið - 20.10.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
!
"#
$%
#
#
!"
$!
""%
$"
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
!!#
##
% !%
!"
$"
!$
$
"#
"
!%!
#%%
% !
#
!$%
$%
"#"
#"
##
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Greining Íslandsbanka spáir því að
vísitala neysluverðs, VNV, muni hækka
um 0,1% í október frá septembermán-
uði. Ef spáin gengur eftir helst verð-
bólga óbreytt í 1,9%. Verðbólga verður
því áfram undir 2,5% verðbólgumark-
miði Seðlabanka Íslands.
Hagfræðideild Landsbankans spáir
hins vegar 0,2% hækkun vísitölunnar
milli mánaða. Gangi spá þeirra eftir
hækkar ársverðbólgan úr 1,9% í 2%.
Bráðabirgðaspá Landsbankans til
næstu þriggja mánaða gerir ráð fyrir að
árstaktur verðbólgunnar muni aukast
hratt og verða 3,2% í janúar á næsta
ári.
Hagfræðingar bankanna
spá 1,9-2% verðbólgu
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fasteignasjóðirnir SRE I og SRE
II, sem að langstærstum hluta eru í
eigu íslenskra lífeyrissjóða, hafa
gengið frá sölu á nærri 18 milljarða
fasteignasafni til fasteignafélagsins
Reita. Eignirnar, sem eru nokkrar
af verðmætustu fasteignum Reykja-
víkur, voru ekki auglýstar opinber-
lega til sölu. Samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum Morgunblaðsins
hófust þreifingar um mögulega sölu
eftir að Reitir óskuðu eftir viðræð-
um við fasteignasjóðina um mögu-
leg kaup á eignunum.
Aðkoma Arion banka
SRE I og SRE II eru hvorir
tveggja í rekstri hjá Stefni, sem er
sjóðastýringarfyrirtæki í eigu Arion
banka en fyrirtækið er með um 400
milljarða í virkri stýringu fyrir ein-
staklinga og fagfjárfesta.
Arion banki er fjórði stærsti eig-
andi kaupanda eignanna því bank-
inn á tæp 9% í fyrirtækinu. Það eru
aðeins lífeyrissjóðirnir Gildi, Líf-
eyrissjóður verslunarmanna og
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins sem eiga stærri hluti í fyrirtæk-
inu.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka
hafði umsjón með sölunni og kaupin
eru fjármögnuð að fullu af bankan-
um.
Ekki boðið að borðinu
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri
Regins, segir að fyrirtæki sínu hafi
ekki verið boðið að bjóða í eignirnar.
„Þetta eru mjög verðmætar eign-
ir og staðsetning þeirra góð og það
hefðu margir viljað eiga þess kost
að bjóða í þær og það á meðal ann-
ars við um okkur. Það kemur mér á
óvart að þetta hafi ekki verið aug-
lýst og þannig tryggt að sem hæst
verð fengist fyrir eignirnar.“
Í samtali við Morgunblaðið tekur
Garðar Hannes Friðjónsson, for-
stjóri Eikar fasteignafélags, í svip-
aðan streng. Hann segir að fyrir-
tækið sem hann veiti forstöðu hefði
haft áhuga á því að kynna sér eigna-
safnið betur og kanna flöt á mögu-
legum kaupum.
Stærstu eigendur SRE I og II
Eins og fyrr segir eru lífeyris-
sjóðirnir langstærstu eigendur fast-
eignasjóðanna sem seldu umræddar
eignir til Reita. Stapi lífeyrissjóður
er stærsti eigandi SRE I og þá er
sjóðurinn næststærsti eigandi SRE
II. Lífeyrissjóður verslunarmanna
er stærstur í SRE II og annar
stærsti eigandi SRE I. Aðrir sjóðir
eiga minna en þar eru á meðal Líf-
eyrissjóður bankamanna, Festa, Al-
menni, Lífeyrissjóður bænda og
Frjálsi lífeyrissjóðurinn sem rekinn
er af Arion banka. Ásamt sjóðunum
eiga TM og VÍS í SRE II og TM á
einnig hlut í SRE I.
Arion banki á hlut í sjóðunum
báðum í gegnum dótturfélag sitt
Stefni, sem eins og áður segir stýrir
sjóðunum fyrir hönd eigenda.
Lífeyrissjóðir seldu milljarða
fasteignasafn án auglýsingar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fasteignir Hótel borg var meðal þeirra eigna sem Reitir eignuðust við kaupin á eignasöfnum SRE I og SRE II.
Hinar seldu eignir
» 37.500 fermetrar auk 6 þús-
und fermetra byggingaréttar í
Borgartúni.
» Eignirnar eru Hótel Borg.
Borgartún 37, Skúlagata 17, Guð-
rúnartún 10, Laugavegur 77, Fiski-
slóð 11, Síðumúli 16-18, Faxafen 5
ásamt Þingvallarstræti 23 á Akur-
eyri.
» Leigutekjur á ársgrundvelli eru
um 1.360 milljónir króna og
meðaltími leigusamninga er 12 ár.
Arion banki á hlut í seljanda og kaupanda Bankinn sá um söluna og fjármögnun
„Stærstu áhrifin á hagvísinn eru af
þrennum toga. Aflaverðmætin eru
að aukast mikið, það er blússandi
gangur í ferðaþjónustunni og svo er
heilmikil bjartsýni meðal landans því
væntingavísitala Gallup er í tölu-
verðri uppsveiflu,“ segir Yngvi
Harðarson, hagfræðingur hjá Ana-
lytica. Í nýrri greiningu Analytica
kemur fram að leiðandi hagvísir hafi
hækkað um 0,3% í september og
gildi hagvísisins hafi ekki verið
hærri í uppsveiflu síðan 2006. Hag-
vísirinn er vísitala sem gefur vís-
bendingu um efnahagsumsvif að sex
mánuðum liðnum eða í mars á næsta
ári.
Yngvi segir það skipta máli hvort
við erum í uppsveiflu eða niður-
sveiflu þegar hagvísirinn er borinn
saman milli tímabila. „Til að finna
jafngott árferði og er núna þarf að
fara aftur til ársins 2006. Okkur sýn-
ist að hann sé umfram það sem jafn-
vægisvöxtur er til lengri tíma.“
Það eru þó áhættuþættir í ytra
umhverfinu sem gætu ógnað hag-
vextinum, þeir eru einkum tengdir
stöðunni í alþjóðastjórnmálum,
óvissu í efnahagsmálum nýmarkaðs-
ríkja og Kína og áhrifum á helstu
viðskiptalönd.
Það er hlutverk vísitölunnar að
veita skýra sýn á efnahagshorfur og
vara tímanlega við umskiptum í
efnahagsumsvifum. Vísitalan er
reiknuð á grundvelli sömu aðferða-
fræði og annars staðar þar sem sam-
bærilegar vísitölur eru reiknaðar en
sérstaklega er tekið mið af
verklagi OECD. Leiðandi hagvísir
Analytica er samsettur úr sex und-
irþáttum af mismunandi toga.
Morgunblaðið/Eva Björk
Hagvöxtur Ferðaþjónustan hefur
meðal annars áhrif á hagvöxtinn.
Jafngott árferði
og á árinu 2006
Hagvísir Ana-
lytica hækkaði í
september
Kjálki